„Skömmin er okkar sem beittum ofbeldinu“

Fæstir barn­a­níð­ingar játa brot sín. Maður sem braut gegn börnum kemur hér fram í til­raun til að fá aðra kyn­ferð­is­brota­menn til að opna augun fyrir eigin gjörðum. Hann lýsir aðferðum og hug­ar­heimi barn­a­níð­ings í við­tali, til að auð­velda við­brögð og grein­ingu. Hann hafði talið aðstand­endum sínum trú um að hann væri sak­laus en brotn­aði niður í fang­els­inu og ját­aði fleiri brot en hann hafði verið dæmdur fyrir.

„Ég er búinn að brjóta af mér og hef enga afsökun fyrir því sem ég hef gert,“ segir maður á miðjum aldri, þar sem hann situr, klæddur í ljósan jakka og köflótta skyrtu, svo­lítið álútur og með der­húfu sem hann dregur niður á enni, en kurt­eis í fram­komu. Hann ber það ekki með sér að hafa brotið á börnum, en hann gerði það nú samt. „Mér líður skelfi­lega yfir því sem ég gerði. En ég er ekki kom­inn hingað til þess að fá hvít­þvott. Minn til­gangur með þessu við­tali er að koma reynslu minni á fram­færi við menn sem eru að brjóta á börnum svo þeir skilji hvað það er rangt. Um leið langar mig að und­ir­strika hversu mik­il­vægt það er að menn sem eru haldnir barna­girnd geti leitað sér aðstoðar. Loks vil ég hvetja börn til að kæra menn sem hafa brotið á þeim. Þau þurfa ekki að skamm­ast sín. Ég, og aðrir menn eins og ég, berum alla skömm­ina.“

Skömmin 

Maðurinn kemur ekki fram undir nafni. Ástæðan fyrir því er að hann er hræddur um að valda brota­þolum sínum enn frek­ari sárum með því að stíga fram í fjöl­miðlum. Sjálfur hefur hann engu að tapa lengur, er dæmdur barn­a­níð­ingur, útskúf­aður af sam­fé­lag­inu og sætir reglu­lega áreiti frá fólki sem þekkir til verka hans. Hann hefur hins vegar sætt við­tals­með­ferð hjá sál­fræð­ingi frá því að hann fór í fang­elsi og vill lýsa því hvernig hann komst smám saman til með­vit­undar um alvar­leika brota sinna og hvetja aðra menn í sömu stöðu til þess að gang­ast við sjálfum sér. Af því að það er hægt að fá hjálp. „Mig langar að bæta fyrir brot mín. Ef þetta getur verið liður í því, þá er ég til­bú­inn til að segja frá því sem ég hef lært.“

Fyrst tekur hann fram að hann sé þakk­látur þeim sem kærðu hann fyrir kyn­ferð­is­of­beldið, af því að það er þeim að þakka að hann neydd­ist til að horfast í augu við sjálfan sig og takast á við vanda­málið. „Stundum er talað um að börn glími við skömm vegna þess að þau voru beitt ofbeldi, en þau þurfa ekki að skamm­ast sín. Skömmin er okkar sem beittum ofbeld­inu. Það er svo auð­velt að koma börnum í þessar aðstæður, því þau hafa enga þekk­ingu eða reynslu til að takast á við þetta. Mér finnst mik­il­vægt að þetta komi fram. Börn eiga að vera óhrædd við að kæra.“

Ranghugmyndirnar 

Annað sem er honum hug­leikið er skil­grein­ingin á ofbeldi. Það tók hann langan tíma að skilja hvað í því felst. „Þegar ég var dæmdur í fang­elsi var ég í svo mik­illi afneitun að ég leit aldrei á mig sem kyn­ferð­is­brota­mann. Ég var svo upp­fullur af rang­hug­myndum. Á þessum tíma drakk ég mikið og þótt drykkjan hafi ekki valdið ofbeld­inu þá brengl­aði hún dóm­greind­ina og ég þurfti að vinda ofan af alls­konar rang­hug­myndum og hug­sýki. Mér tókst að gera það með sál­fræð­ingnum mínum og þá fyrst komst ég til með­vit­undar um hvað ég var búinn að gera.“

Í gegnum tíð­ina hefur hann fylgst með fjöl­miðlaum­fjöllun um kyn­ferð­is­of­beldi líkt og aðrir og var jafn lík­legur til þess að bregð­ast illa við slíkum fréttum. Af því að honum mis­bauð ofbeldið, án þess að átta sig á því að hann var sjálfur að beita ofbeldi. „Í mínum huga var ég aldrei að beita ofbeldi því að ofbeldið sem ég beitti til að ná mínu fram var ekki lík­am­legt.“ 

„Ég beitti aldrei lík­am­legu valdi en ég beitti ann­ars konar valdi“

Í stað þess að halda brota­þolum niðri á meðan hann mis­not­aði þá not­færði hans sér valda­ó­jafn­vægið á milli þeirra, beitti vits­muna­legu og and­legu ofbeldi. Aðferð­irnar sem hann beitti voru að gera börnin hænd að sér, vera almennt góður við þau og leið­beina þeim, tala við þau og veita þeim athygli. „Ég reyndi að vera góður við börn.“ Þannig öðl­að­ist hann traust til þess að byrja með. „Þess vegna leit ég ekki á  mig sem ofbeld­is­mann. Þegar ég leit seinna til baka þá sá ég að ég hafði beitt and­legu ofbeldi í tölu­verðum mæli. Ég lét börnin vita hvað ég vildi frá þeim og að ég hefði ekki áhuga á frek­ari sam­skiptum við þau ef ég fengi ekki mínu fram. Ég beitti aldrei lík­am­legu valdi en ég beitti ann­ars konar valdi.“

Aðferðirnar 

Hann lýsir því hvernig honum tókst að rétt­læta gjörðir sínar fyrir sjálfum sér. „Þegar börn kveiktu í mér þá fékk ég dúndr­andi hjart­slátt. Það komst ekk­ert annað að í huga mínum. Líka af því að hug­ur­inn var ekki í lagi. Þegar þú ert með þessar rang­hug­myndir þá leyfir þú þér að fara lengra. Ég leit til dæmis á að það væri í lagi að snerta börn sem leit­uð­ust eftir snert­ingu frá mér vegna þess að ég hafði verið góður við þau. Það kom fyrir að ég fengi bak­þanka þegar ég hafði lokið mér af en þegar kyn­þörfin kom aftur upp þá átti ég erfitt með að ná stjórn á huga mínum og tókst alltaf að selja mér að þetta væri ekki ofbeldi.“ 

Innst inni vissi hann alltaf hvað hann var að gera. „Auðvitað vissi ég að það sem ég væri að gera væri rangt. Auðvitað leið mér illa yfir því. En mér tókst að rétt­læta það fyrir mér. Það var engin rök­hugsun, ég vildi bara gera þetta.“ Hann lýsir þessu eins og fíkn, hann hafi verið hald­inn eins konar rör­sýn og alltaf verið að hugsa um þetta. Það komst ekk­ert annað að. „Ég not­aði þetta líka til að losa um spennu.“

Til að tryggja þögn þeirra þá gaf hann börn­unum gjafir og pen­inga, auk þess sem hann hót­aði þeim sjálfs­vígi ef þau myndu segja frá. „Auðvitað fór ég líka var­lega. Brotin fóru til dæmis alltaf fram á heim­ili mínu.“

Þess vegna vill hann vara for­eldra við. Stundum er ekki allt sem sýn­ist. 

Afneitunin 

Fæstir kyn­ferð­is­brota­menn gang­ast við gjörðum sínum. Játn­ingar fyrir dómi eru afar sjald­gæfar þegar kemur að þessum mála­flokki. Þegar hann var kærður neit­aði hann alfarið að hafa brotið gegn börn­unum, bar á þau sakir og hélt fram sak­leysi sínu. „Ég taldi öllum trú um að ég væri blásak­laus maður.“ Hann var engu að síður dæmdur í fang­elsi og gekk jafn­vel svo langt að óska eftir við­tali við félags­ráð­gjafa í fang­els­inu því hann vildi senda for­set­anum bréf og fara fram á náðun. „Ég var bil­aður,“ segir hann.

 „Ég taldi öllum trú um að ég væri blásak­laus maður“ 

Það var ekki fyrr en hann hafði setið um stund í fang­elsi sem hann fór að átta sig. „Ég var ekki með­vit­aður um valda­ó­jafn­vægið fyrr en ég var búinn að vera nokkra mán­uði í fang­elsi. Þá var ég far­inn að sjá aðeins hvernig ég hafði hagað mér. Sam­fangar mínir voru nefni­lega voða­lega dug­legir við að benda á hvorn annan, en töl­uðu aldrei um sjálfa sig. Við áttum allir erfitt með að sjá okkur sjálfa. Svo fór ég að hugsa hvort ég væri kannski líka með svona hrika­lega brenglað raun­veru­leika­skyn.“

Þegar hann heyrði svo af afdrifum eins brota­þol­ans, sem leið auð­sýni­lega mjög illa og átti erfitt upp­dráttar, var eins og hann hefði verið sleg­inn. „Það vissi eng­inn hvað ég hafði gert honum, en ég vissi það. Allt í einu skildi ég hvað ég hafði gert. Þetta hellt­ist yfir mig, eins og kjafts­högg.“

Viðurkenningin 

Eftir þetta ákvað hann að leggja öll spilin á borðin. Hann fór á fund sál­fræð­ings þar sem hann brotn­aði niður, hágrét og greindi frá öllum sínum brotum, líka því sem hann hafði ekki verið dæmdur fyrir. Í kjöl­farið var fjöl­skyldan boðuð til fundar þar sem hann sagði sínum nán­ustu aðstand­endum allt af létta. „Það var mjög átak­an­legt,“ segir hann. Sumir fjöl­skyldu­með­limir sneru alfarið baki við honum í kjöl­farið, en aðrir hafa reynt að vera til staðar fyrir hann þótt það sé erfitt fyrir þá. „Ég finn hvað þetta kemur illa við alla fjöl­skyld­una mína. Það er ekki bara brota­þolar mínir sem þjást. Þetta veldur öllum skaða sem tengj­ast mér.“

Að fundi loknum sett­ist hann niður við að skrifa brota­þolum sínum bréf. „Ég bað þá afsök­unar og greiddi þeim fullar skaða­bætur.“ Til að geta gert það not­aði hann pen­ing­ana sem hann fékk fyrir sölu á íbúð­inni sinni. „Um leið og ég náði loks að sjá hvað ég hafði gert var ég alveg eyði­lagður yfir því.“ 

„Ég bað þá afsök­unar og greiddi þeim fullar skaða­bætur“ 

Það tókst með aðstoð fanga­varða og sál­fræð­ings sem mættu honum af virð­ingu og hjálp­uðu honum að horfast í augu við sjálfan sig. „Ég held að þegar mönnum er mætt með fyr­ir­litn­ingu þá fari þeir frekar í vörn. Eðli manns­ins er að neita fyrir brot sín og verj­ast ásök­unum. Ef þér er mætt með mann­virð­ingu er þér gert kleift að opna þig og fara í sjálfs­skoðun. Ákveðnir fanga­verðir náðu mér vegna þess að þeir voru almenni­legir í fram­komu og sömu­leiðis sál­fræð­ing­ur­inn sem kom fram af virð­ingu. Þegar ég fór að tala við sál­fræð­ing­inn skildi ég hvað það var mikið af rang­hug­myndum í höfð­inu á mér. Fram að því var alveg lokað fyrir mér að mínir vits­munir væru meiri en barn­anna. Eða að þessi börn ættu eftir að verða full­orðnar mann­eskjur, að þau hefðu til­finn­ingar og þetta hefði afleið­ingar, sú hugsun var ekki til hjá mér.“ 

Úrvinnslan

Á þessum tíma glímdi hann við reiði­köst þar sem hann vildi helst taka allt í fanga­klef­anum og grýta því í gólfið, en var fyr­ir­munað að skilja af hverju hann væri svona reiður. „Kannski vegna þess að ég var búinn að gera þetta,“ útskýrir hann, en sál­fræð­ing­ur­inn hvatti hann til þess að reyna að festa fingur á hvað væri að ger­ast innra með honum þegar reiðin tæki völdin. „Einn dag­inn fékk ég reiði­kast og fatt­aði að þetta var svo mikil sorg. Sorgin vakti með mér reiði. Reiðin var mín leið til að vinna gegn sorg­inni. En á þess­ari stundu lagð­ist ég í rúmið og leyfði sorg­inni að flæða. Eftir það fór mér að líða aðeins betur.“

Áfram glímdi hann samt við þung­lyndi en hug­ræn atferl­is­með­ferð og núvit­unda­ræf­ingar hafa hjálpað aðeins til. Eins hefur verið gagn­legt að skilja að til­finn­ingar eru ekki endi­lega sam­tvinn­aðar hugs­un­inni. „Ég hélt að þetta væri allt í einum graut, en þeim tókst að fá mig til að skilja að ég get aðskilið til­finn­ingar frá hug­anum. Í stað þess að láta stjórn­ast af til­finn­ingum þarf ég að hafa stjórn á til­finn­ing­unum, vera með­vit­aður um þær og geta gripið inn í. Ekki aðeins til þess að halda kyn­hvöt­inni niðri heldur einnig til að takast á við þung­lyndi, kvíða og streitu.“

Brenglunin 

Nú hefur hann verið í sam­tals­með­ferð í hátt í tíu ár og er enn að glíma við sjálfan sig. „Ég er enn hald­inn barna­girnd. Ég hef ekki áhuga á full­orðnu fólki. Þegar ég lít til baka þá hefur það verið þannig frá því að ég varð kyn­þroska sem ung­lingur, en það trufl­aði mig ekki fyrr en ég komst í aðstæður þar sem ég gat skapað nánd með börnum og upp­lifði snert­ingu við þau. Þá vatt þetta smám saman upp á sig þar til ofbeldið var orðið mjög alvar­legt. Ég þarf að lifa með því að ég er svona, en núna er ég alla­vega með­vit­aður um hversu skelfi­lega rangt þetta er. Þetta er brenglun. Eftir allar þessar með­ferðir þá hefur mér að tek­ist að lifa með þessu án þess að valda skaða, en ég mun alltaf þurfa að vera í sál­fræði­við­tölum.“

„Ég er enn hald­inn barna­girnd“

Hann von­ast til að geta verið áfram í sál­fræði­við­tölum á vegum Fang­els­is­mála­stofn­unar um ókomna tíð. „Það sama þarf að vera í boði fyrir aðra sem hafa kyn­ferð­is­legar lang­anir í börn. Menn sem eru haldnir svona hugs­unum þurfa að leita sér aðstoðar og sú aðstoð þarf að vera í boði. Það er eitt­hvað rangt við að kyn­ferð­is­brota­menn geti hvergi fengið hjálp. Fullt af fólki er haldið barna­girnd en það getur hvergi leitað sér aðstoðar vegna þess að for­dóm­arnir eru svo miklir og fólki er mætt með fyr­ir­litn­ingu. Samt hlýtur það að vera best fyrir alla að efla for­varnir gagn­vart þessu, svo menn geti leitað sér aðstoðar áður en þeir brjóta af sér.“

Aðstoðin 

Eitt af því sem hefur fylgt honum er ótt­inn við að við­ur­kenna þessar hugs­anir. Hann minn­ist þess til dæmis að hafa séð eða lesið við­tal við mann sem hafði greint frá því að hann væri með kyn­ferð­is­legar lang­anir gagn­vart börnum. Sá maður sagði frá því að um leið og hann við­ur­kenndi þessar hugs­anir hefði barna­vernd ætlað að taka af honum börnin. Þegar þetta var þá var hann sjálfur á þrí­tugs­aldri og þetta sat alltaf í honum. „Hann fékk ekki hjálp heldur var honum mætt af fyr­ir­litn­ingu. Þannig að þótt það hvarfl­aði að mér síðar að leita mér aðstoðar þá ótt­að­ist ég alltaf að ég yrði dæmdur fyrir þessar hneigðir. Reyndar hélt ég líka framan af að þetta myndi fara úr mér ef ég færi að vera með konu, en svo missti ég alla löngun til þess að vera með henni. Eftir að ég byrj­aði að brjóta af mér hug­leiddi ég auð­vitað að leita mér aðstoðar en ég ótt­að­ist um afdrif barn­anna minna.“ 

Það var því ekki fyrr en hann hafði brotið af sér sem hann fékk við­eig­andi með­ferð. Eftir það hefur margt breyst. Núorðið á hann til dæmis auð­veld­ara með að skynja til­finn­ingar ann­arra og finna fyrir sam­kennd. „Þetta var alveg lokað fyrir mér,“ útskýrir hann, „en það er eins og það hafi tengst nýjar brýr í hausnum á mér.“ 

„Mik­il­væg­asta skrefið var að við­ur­kenna þetta“

Annað sem hann vill taka fram að það er ekki endi­lega það sama að langa og vilja. „Ef þú finnur seðla­veski fullt af pen­ingum þá langar þig í pen­ing­ana en þú vilt ekki taka þá því þú veist að það á þá ein­hver. Þetta er mun­ur­inn á því að langa og vilja. Þig langar kannski í ákveð­inn mat en af því að þú veist að það eru skað­leg efni í honum þá viltu kannski ekki borða hann. Ég er enn með barna­girnd en vilj­inn til að brjóta af mér er ekki lengur til staðar. Það er svo stórt atriði. Það er hægt að laga þetta með sam­tals­með­ferð. Mik­il­væg­asta skrefið var að við­ur­kenna þetta. Menn verða að taka á þessu af heil­indum. Þótt ég muni lifa við enda­lausa refs­ingu og það líði ekki sá dagur að ég hugsi ekki um það sem ég gerði, glími við skömm og sé í hálf­gerðu áfalli yfir dóm­greind­ar­leys­inu sem ég sýndi, þá finn ég samt að mér líður betur en áður. Þetta er ekki að trufla mig í dag.“

Meðvitundin 

Til að kom­ast þangað þurfti hann að taka til í sínu lífi. Liður í því var að læra að takast á við erf­ið­leika og streitu á annan hátt en áður. Hann hefur einnig snúið baki við hlutum sem voru að valda honum skaða, svo sem klámi, en hann horfði mikið á barnaklám á sínum tíma. „Það brenglar á þér haus­inn,“ segir hann, sem hefur heitið sér að snerta ekki aftur á slíku efni.

Eins hefur hann ákveðið að snerta ekki aftur á áfengi. Af því að hann átti það til að fá sér í glas að vinnu­degi loknum og þótt hann væri kannski ekki alltaf fullur var hann gjarna rakur. „Menn sem eru haldnir svona brenglun verða að láta áfengi og fíkni­efni vera. Þú þarft að við­halda skýrri með­vit­und til að brjóta ekki af þér.“ Fyrir honum er þetta alveg skýrt, hann braut af sér og iðr­ast gjörða sinna. Þótt áfengi hafi ekki verið afsökun þá hafði það þau áhrif að það los­aði um hömlur og skerti dóm­greind­ina. „Jafnvel þótt þú sért bara sísull­andi er höfðuð óskýrt,“ útskýrir hann. „Ég ætla mér aldrei að drekka áfengi aftur. Mér finnst ég ekki geta gert það gagn­vart mínum brota­þolum. Þeir eiga þó það inni hjá mér.“ 

„Ég ætla mér ekki að umgang­ast börn aftur“

Ef það er eitt­hvað sem hann er ákveð­inn í þá er það að valda öðrum ekki frek­ari skaða. Sem þýðir um leið að hann ætlar ekki heldur að koma sér aftur í aðstæður þar sem hann gæti fengið tæki­færi til að brjóta aftur á börnum. „Ég ætla mér ekki að umgang­ast börn aftur. Þessu tímbili í lífi mínu er lokið. Ég hef svo mikla skömm og and­styggð á því sem ég gerði að þegar ég sé börn í dag líður mér illa. Ég vil bara koma mér burt. Mér finnst ég ekki verð­ugur að vera nálægt barni. Þetta verða menn að skilja sem hafa gert þetta, þeir eiga ekki að vera nálægt börnum.“ 

Tilgangurinn 

Und­an­farið hefur hann unnið mark­visst að því að finna leiðir til þess að dreifa hug­anum og halda sér upp­teknum, meðal ann­ars með því að hella sér út í alls­konar áhuga­mál. Verst er að fá hvergi vinnu.

Hann útskýrir af hverju og segir sögu af manni sem var nýlega dæmdur aftur í fang­elsi eftir að hafa lokið afplánun fyrir kyn­ferð­is­brot. „Þegar hann kom út úr fang­elsi var ekk­ert fyrir hann að gera. Þetta á almennt við um dæmda kyn­ferð­is­brota­menn, ekki síst þá sem brutu gegn börnum. Ég hugsa að það sé hættu­legra að hafa svona menn hang­andi heima hjá sér. Þá er styttra í að þeir leiti aftur í tölv­una, eða flösk­una eða fari jafn­vel að brjóta af sér aftur. Af því að þeir hafa engu að tapa. Það skiptir svo miklu máli að hafa til­gang í líf­inu.“ 

Sjálfur hefur hann leitað að vinnu í tvö ár en hvergi fengið svar. „Ég er gjör­sam­lega útskúf­aður. Maður ráfar bara um borg­ina.“ Hann veit til þess að hann hefur haft meiri þekk­ingu og reynslu en aðrir sem voru ráðnir í hans stað. Hann veit líka að ástæðan fyrir því að hann er ekki ráð­inn er þessi for­tíð hans. 

Iðrunin 

Mestu máli skiptir samt máli að hann fái við­eig­andi eft­ir­fylgd. „Ég vil halda áfram á þess­ari braut vegna þess að ég iðr­ast þess sem ég hef gert. Þetta sam­tal hér og nú hjálpar mér til dæmis að takast á við sjálfan mig og minn hug­ar­heim. Það eflir mína hugsun og hjálpar mér að vera með­vit­aður, af því að ég var orð­inn svo rugl­aður.“

Aðspurður hvernig hann lifir með því sem hann gerði svarar hann: „Ég er betri maður í dag,“ segir hann og bætir við: „Það hjálpar að hafa við­ur­kennt brot mín.“ En það var engin synda­af­lausn. „Ég mun lifa með því sem ég gerði og það er bara gott á mig. Mér líður illa yfir því. Á sama tíma er ég þakk­látur fyrir að vera laus við þetta. Mér líður eins og ég sé frels­aður, ég létti svo svaka­lega á mér þegar ég gekkst við þessu og losn­aði út úr afneitun og rang­hug­myndum. Um leið hellt­ist yfir mig iðrun og skömm, en það var líka léttir. Það er hollt að horfast í augu við það sem þú hefur gert. Þá fyrst getur þú orðið betri maður.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár