Ný fagráð sjúkrahúsa ekki lýðræðislega kosin

Læknaráð og hjúkr­un­ar­ráð hafa verið lögð niður með lögum og með­limir nýrra fagráða verða valdir af for­stjórum sjúkra­hús­anna sam­kvæmt reglu­gerð. Formaður lækna­ráðs Land­spít­al­ans hefur sagt að for­stjóri verði „býsna ein­ráður“ og að aðhald minnki.

Ný fagráð sjúkrahúsa ekki lýðræðislega kosin
Svandís Svav­ars­dóttir Heil­brigð­is­ráð­herra hefur verið gagn­rýnd fyrir að leggja niður lækna- og hjúkr­un­ar­ráð.

Meðlimir nýrra fagráða sjúkra­húsa verða valdir af for­stjórum þeirra, en ekki lýð­ræð­is­lega kosnir eins og áður. Þetta kemur fram í drögum að nýrri reglu­gerð sem birt hefur verið á sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Læknaráð og hjúkr­un­ar­ráð á heil­brigð­is­stofn­unum, þar á meðal Land­spít­al­anum, voru lögð niður með lögum þegar frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um heil­brigð­is­þjón­ustu var sam­þykkt á loka­dögum Alþingis í júní. Formaður lækna­ráðs, Anna Margrét Hall­dórs­dóttir, hefur gagn­rýnt breyt­ing­una og sagt að for­stjóri verði „býsna ein­ráður“ og að aðhald minnki við breyt­ing­una. Læknaráð hefur verið mjög gagn­rýnið á Svandísi í hennar ráð­herra­tíð, meðal ann­ars hvað varðar stöð­una á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans.

Samkvæmt drögum að reglu­gerð­inni, sem birt voru í gær, munu for­stjórar heil­brigð­is­stofn­ana skipa fagráð  sem í sitja að minnsta kosti einn full­trúi lækna, einn full­trúi hjúkr­un­ar­fræð­inga og einn full­trúi ann­arra heil­brigð­is­stétta sem eru í föstu starfi innan heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar. Eins og áður ber for­stjóra að leita álits fagráðs um mik­il­vægar ákvarð­anir sem varða heil­brigð­is­þjón­ustu og skipu­lag heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar en er þó ekki bund­inn af álit­inu.

Hingað til hafa stjórnir lækna- og hjúkr­un­ar­ráða verið kosnar á aðal­fundum þeirra. Þá mun for­stjóri þurfa að stað­festa starfs­reglur sem ráðin setja sér, en ekk­ert slíkt hefur komið fram í starfs­reglum ráð­anna sem lögð hafa verið niður. Auk þess er skipan fagráð­anna tíma­bundin til þriggja ára, en ekki tveggja eins og hefur verið í til­viki lækna­ráðs Land­spít­al­ans.

Drögin að reglu­gerð­inni verða til umsagnar til 8. ágúst og hafa breyt­ing­arnar því ekki tekið gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.
Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg
FréttirHeilbrigðismál

Til­kynn­ing um her­manna­veiki í blokk fyrir eldri borg­ara vekur ugg

Íbúum á Granda­vegi 47 barst nýlega orð­send­ing frá sótt­varn­ar­lækni og Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur þess efnis að mikið magn her­manna­veik­is­bakt­er­í­unnar hefði fund­ist í einni íbúð blokk­ar­innar. Dóttir níræðrar konu í blokk­inni hefur veru­legar áhyggjur af móður sinni en her­manna­veiki er bráð­drep­andi fyrir fólk sem er veikt fyrir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár