„Ég er mjög hrifin af Austfjörðum. Mér finnst þeir vera fallegasta landsvæðið á Íslandi,“ segir Anna Linda Bjarnadóttir lögmaður. „Það sem mér finnst heillandi við Austfirðina er fyrst og fremst náttúran; öll þessi fjöll, náttúruperlur og jökulár og svo er auðvitað Vatnajökull norðanverður. Ég hvet alla, sem hafa tækifæri, til þess að fara á Austfirði og alls ekki fyrir minna en viku. Austfirðir hafa mikið upp á að bjóða og sérstaklega fyrir þá sem eru mikið fyrir útilíf, veiði og göngur. Það er líka gaman að kynnast gamalli, íslenskri menningu og hún virðist varðveitt miklu betur úti á landi heldur en á höfuðborgarsvæðinu.“
Heimabakaðar lummur
Anna Linda hefur stundað fjallgöngur árum saman og hún ætlar að nota tækifærið fyrir austan til að fara upp á einhver fjöll og segir hún margar fallegar gönguleiðir vera í boði og er að þessu sinni spenntust fyrir því að ganga í Borgarfirði eystra en …
Athugasemdir