Félagsmálaráðherra segir að „allir vilji fá fjármagn fyrir að gera ekki neitt“

Ásmundur Einar Daðason seg­ist ekki vilja að náms­menn né „aðrir sem eru á atvinnu­leys­is­skrá“ fái fjár­muni úr rík­is­sjóði fyrir að „gera ekki neitt“. Stúd­enta­hreyf­ingar hafa kallað eftir því að náms­menn geti fengið atvinnu­leys­is­bætur í sumar líkt og þeir gátu fengið sum­arið eftir síð­asta hrun þegar atvinnu­leysið var hvað mest.

Félagsmálaráðherra segir að „allir vilji fá fjármagn fyrir að gera ekki neitt“

„Ég er ekki hvata­maður þess að hvorki náms­menn eða aðrir sem eru á atvinnu­leys­is­skrá fái fjár­magn úr rík­is­sjóði fyrir að gera ekki neitt.“

Þetta sagði Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra í Silfrinu í dag, aðspurður um kröfur náms­manna um að fá atvinnu­leys­is­bætur í sumar.

„Ég hef raunar áhyggjur af því að við séum ein­hvern veg­inn alltof mikið, í öllu sem við erum að gera núna – allar kröfur sem koma fram, hvort sem er frá náms­mönnum, fyr­ir­tækjum eða öðrum – þær miða rosa­lega mikið að því að við eigum að slökkva allt og loka öllu. Allir vilji fá fjár­magn fyrir að gera ekki neitt,“ sagði ráð­herr­ann.

„Ég held það sé ekki skyn­sam­legt vegna þess að við erum með tugi þús­unda á atvinnu­leys­is­skrá, og við – því við erum núna að sjá að þetta er lang­tíma­at­vinnu­leysi, hluta­bæt­urnar að trapp­ast niður – þá þurfum við einmitt að fara að huga að því að koma fólki í virkni. Og inni í hag­kerf­inu núna höfum við gríð­ar­mikil tæki­færi til að gera það, því það er góður slaki, fjár­hags­staðan er góð og það er miklu skyn­sam­legra að gera það svona, og það á við um náms­menn­ina og atvinnu­lífið líka.“

Ásmundur Einar sagði mik­il­vægt að nálg­ast atvinnu­leys­is­bóta­kröfur náms­manna með þessum hætti og það hefði þegar gengið ágæt­lega. „Þetta er svona verk­efnið og þess vegna nálg­ast ég þessar atvinnu­leys­is­bóta­kröfur náms­manna öðru­vísi heldur en þannig að við eigum bara að skaffa þeim fram­færslu, við eigum að skaffa þeim vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár