Hjólreiðar á tímum veirunnar

Margir hafa upp­götvað gildi hreyf­ingar í nærum­hverfi sínu í sam­komu­banni, skrifar Árni Dav­íðs­son, for­maður Lands­sam­taka hjól­reiða­manna.

Hjólreiðar á tímum veirunnar
Gera ætti ráð fyrir auk­inni umferð hjólandi og gang­andi Ekki væri úr vegi að flýta fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum við hjóla­stíga­gerð sem aðgerð í efna­hag­skrepp­unni. Mynd: Davíð Þór

Heims­far­aldur COVID veirunnar hefur haft víð­tæk áhrif á sam­fé­lagið allt. Margir eiga um sárt að binda vegna far­ald­urs­ins og efna­hags­leg áhrif eru skelfi­leg fyrir marga. Áhrif far­ald­urs­ins eru þó ekki að öllu leyti nei­kvæð og meðal ann­ars hafa áhrifin verið mikil á lofts­lags­málin. Í borgum víða um heim sést nú í bláan him­in­inn og fjöll og bygg­ingar sem hafa verið ósýni­leg vegna loft­meng­unar frá umferð og iðn­aði kom nú í ljós aftur. Það hefur opnað augu margra að sjá svart á hvítu hversu mikil áhrif lífs­hættir okkar hafa á umhverfið og margir vilja ekki snúa aftur til fyrra ástands. Það má spyrja sig hvort við getum lifað betra og heil­brigð­ara lífi eftir veiruna en samt haldið við­un­andi lífs­gæðum og öryggi? 

Eftir sam­komu­bann hafa margir upp­götvað gildi hreyf­ingar í nærum­hverfi sínu og fólk hefur tekið fram reið­hjólin úr geymslum og bíl­skúrum og farið í hjóla­ferð með fjöl­skyld­unni. Á stígum og gang­stéttum má sjá fjölda fólks sem gengur, hleypur og hjólar  Þetta sést greini­lega í taln­ingum á stígum á vegum sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þar varð mikil aukn­ing gang­andi og hjólandi á úti­vist­ar­stígum eftir sam­göngu­bannið, sam­an­ber 1. mynd.

1. myndUmferð gang­andi, hlaup­andi og hjólandi fram­hjá taln­ing­ar­stað í Kópavogi á norður-suður leið á stíg yfir Digra­nes­háls.

Breytingar eru mögulegar 

Þegar sam­fé­lagið verður fyrir áfalli er gott að staldra við og hugsa sinn gang. Síðast þegar Ísland lenti í svona áfalli í Hruninu 2008 horfð­ist þjóðin í augu við skakkt gild­is­mat og margir breyttu lífs­háttum og gild­is­mati til fram­búðar. Það sást meðal ann­ars vel í breyttum ferða­mátum sem tóku stakka­skiptum hjá tals­verðum fjölda fólks sam­an­ber 2. mynd, sem sýnir aukn­ingu hjól­reiða í Reykja­vík eftir hrun. Sú breyt­ing í ferða­venjum hefur hald­ist að mestu og sýnir að breyt­ingar eru mögu­legar. Á þessum árum hefur líka verið gerð gang­skör að lagn­ingu göngu- og hjóla­stíga og það hefur skapað skil­yrði fyrir auk­inni hreyf­ingu almenn­ings.

„Eftir veiruna sjá kannski margir að virk hreyf­ing með því að ganga, hjóla eða hlaupa getur verið sam­göngu­máti“ 

Það er samt svo að í flestum til­fellum snýst breyt­ing í ferða­venjum um hug­ar­far, sál­ar­líf, menn­ingu og þjóð­fé­lags­skipan. Veiran hefur þau áhrif að hrista upp í lífs­háttum. Fólk hefur meiri tíma, lífstakt­ur­inn er öðru­vísi og fjar­vinna er allt í einu mögu­leg. Allt ýtir þetta undir að fók end­ur­hugsi líf sítt og breyti jafn­vel for­gangs­röðun. Eftir veiruna sjá kannski margir að virk hreyf­ing með því að ganga, hjóla eða hlaupa getur verið sam­göngu­máti í og úr vinnu, skóla og til að sækja þjón­ustu. Ef sú verður raunin getum við við horft bjart­sýn fram á veg­inn og svarað spurn­ing­unni hér að framan ját­andi. Já, við getum að þessu leyti lifað betra og heil­brigð­ara lífi eftir veiruna og sú breyt­ing mun bæta lífs­gæði okkar og auka öryggi.

2. mynd.Hlutfall full­orð­inna (yfir 17 og seinna 18 ára aldur) Reyk­vík­inga, sem hjólar að jafn­aði í vinnu eða skóla í skoð­ana­könnun sem oft­ast hefur verið fram­kvæmd á haust­mán­uðum.

 Meðan veiran herjar er virk hreyf­ing senni­lega besta leiðin til að fara um. Menn fá nauð­syn­lega hreyf­ingu og teng­ingu við umhverfi sitt jafn­vel þótt sund­laugin og ræktin sé lokuð. Ganga, hlaup og hjól­reiðar með fjöl­skyldu, vinum eða kunn­ingjum í minni hópum er alls ekki á skjön við sam­komu­bannið meðan menn virða 2 metra regl­una.

Æskilegt er líka að yfir­völd geri ráð fyrir auk­inni umferð hjólandi og gang­andi í fram­tíð­inni og skipu­leggi umhverfið okkar með það í huga. Aukin umferð á stíg­unum sýnir fram á nauð­syn þess að umferð gang­andi og hjólandi á stígum verði aðskilin mun víðar. Það væri ekki úr vegi að flýta fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum við stíg­ana því það gæti komið sér vel í atvinnu­leys­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár