Villandi skilaboð um aðgerðapakka – Fyrirtæki fá stuðning þótt þau noti skattaskjól

Engin skil­yrði í brú­ar­lána­lög­unum og frum­varp­inu um stuðn­ings­lán girða fyrir að fyr­ir­tæki sem not­færa sér skatta­skjól eða eru með eign­ar­hald á lág­skatta­svæði fái rík­is­stuðn­ing. Þing­maður VG sagði það stað­reynd að gerð hefði verið „ský­laus krafa um það af hálfu rík­is­ins“ að fyr­ir­tæki í skatta­skjólum nytu ekki stuðn­ings­ins.

Villandi skilaboð um aðgerðapakka  – Fyrirtæki fá stuðning þótt þau noti skattaskjól

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hélt því fram í ræðu­stól Alþingis þann 30. apríl síð­ast­lið­inn að gerð væri „ský­laus krafa“ um það í frum­vörpum rík­is­stjórn­ar­innar vegna heims­far­ald­urs­ins að fyr­ir­tæki í skatta­skjólum fengju ekki rík­is­stuðn­ing. Vísaði hann þá sér­stak­lega til brú­ar­lána og stuðn­ings­lána. 

Raunin er sú að hvorki brú­ar­lána­lögin né frum­varpið um stuðn­ings­lán girðir fyrir að fyr­ir­tæki sem not­færir sér skatta­skjól eða er með eign­ar­hald á lág­skatta­svæði fái rík­is­stuðn­ing­inn. Engin skil­yrði í þá veru er að finna í frum­vörp­unum og ekki er fjallað um neitt slíkt í grein­ar­gerðum og nefnd­ar­á­litum vegna laga­setn­ing­ar­innar. Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri segir í sam­tali við Stundina að frum­varpið taki ekki á því með nokkrum hætti hvort fyr­ir­tæki sem fá rík­is­að­stoð not­færi sér skatta­skjól eða séu með eign­ar­hald í skatta­skjóli.

Þingmenn sem Stundin hefur rætt við binda þó vonir við að breyt­ingar verði gerðar á frum­varp­inu í með­förum þings­ins til að fyr­ir­byggja að stuðn­ings­lán og önnur rík­is­að­stoð renni til fyr­ir­tækja sem not­færa sér lág­skatta­svæði.

„Skýr vilji ríkisstjórnarinnar“

Orðrétt sagði Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé í þing­ræðu sinni í síð­ustu viku: „Það er stað­reynd að í þeim lánum og stuðn­ingi sem við erum að veita til fyr­ir­tækja í formi brú­ar­lána og stuðn­ings­lána er gerð ský­laus krafa um það af hálfu rík­is­ins að ann­ars vegar njóti fyr­ir­tæki sem séu í skatta­skjólum ekki þess stuðn­ings og hins vegar að fyr­ir­tækin geti ekki greitt sér út arð á meðan rík­is­á­byrgðar nýtur við á þeim lánum. Þetta er skýr vilji rík­is­stjórn­ar­innar sem er að finna í þeim málum sem hafa komið fyrir þing. Það er kraf­ist ótak­mark­aðrar skatt­skyldu á Íslandi. Þetta er í sam­ræmi við það sem önnur lönd hafa gert, örfá önnur lönd, Danmörk og Pólland svo dæmi séu tekin.“

Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð deildi svo mynd­bandi af ræð­unni á Facebook með orð­unum: „Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé minnti á það á þingi í dag að skil­yrði fyrir því að fyr­ir­tæki geti notið ýmiss stuðn­ings frá rík­inu vegna Covid-19 er að þau séu ekki skráð í skatta­skjól.“

Skatta­snið­ganga gegnum skatta­skjól fer alla jafna fram með þeim hætti að tengdur aðili, móð­ur­fé­lag eða syst­ur­fé­lag, er skráð í skatta­skjóli og tekur við greiðslu, arði, þókn­unum eða vöxtum frá íslenskum rekstr­ar­að­ila. Ekki liggur fyrir útfærsla á dönsku skil­yrð­unum um að fyr­ir­tæki sem þiggja rík­is­að­stoð noti ekki skatta­skjól. Í Póllandi er hins vegar gerð krafa um að aðal­eig­endur fyr­ir­tækja sem fá aðstoð séu ekki skráðir með lög­heim­ili í ríkjum sem eru á lista Evr­ópu­sam­bands­ins yfir skatta­skjól. Þá hefur fjár­mála­ráð­herra Frakk­lands boðað að regl­urnar eigi að ná bæði til fyr­ir­tækja með höf­uð­stöðvar og dótt­ur­fé­lög í skatta­skjólum.

Í frum­varpi fjár­mála­ráð­herra um stuðn­ings­lán eru til­greind átta skil­yrði fyrir rík­is­á­byrgð á stuðn­ings­lánum. Er meðal ann­ars gerð krafa um að rekstr­ar­að­il­inn hafi ekki greitt út arð, óum­samda kaupauka eða keypt eigin hluta­bréf. Hins vegar eru engin skil­yrði gerð um að fyr­ir­tæki sé ekki í eigu skatta­skjóls­fé­lags eða eigi dótt­ur­fé­lag eða félög í skatta­skjóli. Slík skil­yrði er heldur ekki að finna í lögum sem liggja til grund­vallar rík­is­á­byrgð á brú­ar­lánum né í samn­ingi fjar­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við Seðla­banka Íslands um fram­kvæmd á veit­ingu ábyrgð­anna.

Ótakmörkuð skattskylda á Íslandi

Kolbeinn Proppé hefur vísað til 1. gr. frum­varps til laga um fjár­stuðn­ing til minni rekstr­ar­að­ila vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru máli sínu til stuðn­ings en þar kemur fram að lögin gildi um ein­stak­linga og lög­að­ila sem stunda atvinnu­rekstur eða sjálf­stæða starf­semi og bera ótak­mark­aða skatt­skyldu á Íslandi. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði áherslu á hið sama í útvarps­þætt­inum Sprengisandi um helg­ina. „Það er mjög mik­il­vægt að koma því á fram­færi að við höfum sett þá kröfu að fyr­ir­tæki sem munu njóta þessa stuðn­ings séu með fulla og ótak­mark­aða skatt­skyldu á Íslandi. Þarna erum við að gera þessa kröfu sem er sam­bæri­legt við það sem Danir…“ sagði hún áður en þátta­stjórn­andi greip fram í fyrir henni.

Indriði H. Þor­láks­sonfyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri

Stundin bar efni laga­á­kvæð­is­ins undir Indriða H. Þor­láks­son fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóra. „Þessi grein lag­anna og aðrar hafa að því er mér sýn­ist ekk­ert að gera með skatta­skjól,“ segir hann. „Ótak­mörkuð skatt­skylda þýðir ein­fald­lega að við­kom­andi sé skatt­skyldur hér á landi af öllum tekjum sem hann aflar sér hvar sem er í heim­inum. Frum­varpið tekur á engan hátt á því hvort fyr­ir­tæki not­færa sér skatta­skjól eða eru með eign­ar­hald í skatta­skjóli.“

Aðspurður um ummæli sín og hvort hann vildi útskýra þau nánar segir Kolbeinn: „Vilji stjórn­valda er skýr, eins og ég kom inn á, um að fyr­ir­tæki í skatta­skjólum geti ekki nýtt sér stuðn­ing­inn. Ég hef ekki fengið aðrar upp­lýs­ingar en þær að þetta sé sam­bæri­legt við það sem gert er í öðrum löndum. Ef þarf að hnýta fast­ari hnúta um þetta, þá treysti ég því að það verði gert í nefnda­vinn­unni þannig að vilji stjórn­valda komi fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár