Menning í sóttkví og skemmtun að heiman

Tón­leik­ar, sýn­ing­ar og við­burð­ir 24. apríl til 7. maí.

Menning í sóttkví og skemmtun að heiman

Þetta og ekki svo margt fleira er á döf­inni næstu vik­urnar. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara. Allir við­burð­irnir eru ókeypis, en hægt er að styðja lista­menn með því að kaupa verk þeirra eða plötur á net­inu.


Sóttkví #3

Hvar? Víðs­vegar
Hvenær? 2. maí kl. 15.00 til 3. maí kl. 20.00
Streymi: Fb-síða Sóttkví 2020

Sóttkví 2020 er við­burð­ar­sería sem hóf göngu sína í mars þegar ljóst var að margir tón­leikar myndu falla niður. Á hverjum við­burði kemur fram rjóm­inn af gras­rót tón­list­ar­sen­unnar, af hism­inu sem fellur utan meg­in­straums­ins og skapar áhuga­verð­ustu tón­ana. Á þessum þriðja við­burði koma fram 23 hljóm­sveitir og lista­menn. Meðal þeirra eru IDK IDA og MSEA; sú fyrri er dönsk tón­list­ar­kona sem hefur lengi verið virk í íslenskri jað­ar­senu, en í flutn­ingi hennar takast á hið vél­ræna og líf­ræna; sú síð­ar­nefnda er kanadískur lista­maður sem hefur skapað flók­inn hug­ar­heim þar sem feg­urð og óþæg­indi tengj­ast órjúf­an­legum böndum.


Kúltúr klukkan 13

Hvar? Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi
Hvenær? 24. apríl kl. 13.00
Streymi: Stundin.is

Nú er komið að lokum ser­í­unnar Kúltúr klukkan 13 þar sem Stundin og Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi hafa haldið uppi virkri dag­skrá þrisvar í viku, en þriðja og síð­asta Gerð­ar­Stundin verður streymd 24. apríl. Þar leiða mynd­list­ar­menn­irnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Margrét Árna­dóttir skap­andi fjöl­skyldusmiðju.


Heima í Hörpu

Hvar? Harpa
Hvenær? Til 1. maí
Streymi: Fb-síða Hörpu

Harpa, Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands og Íslenska óperan taka höndum saman og bjóða upp á lif­andi tón­list­ar­streymi úr Eldborg klukkan 11 flesta morgna á meðan sam­komu­bann varir. Fram undan spilar meðal ann­ars Dúó Edda 24., Nicola Lolli konsert­meist­ari Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands og Bjarni Frímann Bjarna­son píanó­leik­ari 27. og Voces Thules 30. apríl.


Tómamengi

Hvar? Mengi
Hvenær? 25. & 30. apríl & 2. maí kl. 20.00
Streymi: Youtube-síða Mengis

Mengi hefur brugð­ist við sam­komu­bann­inu með því að færa tón­leika­hald yfir á Youtube-rás sína. 25. apríl stíga paunkar­arnir í Korter í flog á svið,  30. apríl flytja Daníel Friðrik Böðv­ars­son, Eiríkur Orri Ólafsson og Matthías Hemstock djass, fönk og rokk, og 2. maí verður verkið Mörk eftir Jóhannes Dagsson og Gunnar Andread Krist­ins­son flutt.


Mimesis

Hvar? Gallerí Fold
Hvenær? Frá 25. apríl
Streymi: Fb-síða Gallerí Foldar

Vegna sam­komu­banns­ins verður opnun einka­sýn­ingar Berg­lindar Svav­ars­dóttur ekki í per­sónu, heldur streymt á Facebook-síðu Gallerí Foldar. Áhorf­endum er boðið að skyggn­ast inn í lit­ríkan og heill­andi heim í gegnum eins konar stækk­un­ar­gler þar sem hægt er að fylgj­ast með plöntum, dýrum og skor­dýrum heyja sína dag­legu bar­áttu til að kom­ast af. 


Borgó í beinni

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 25. & 26. apríl 
Streymi: Youtube-síða Borg­ar­leik­húss­ins

Borg­ar­leik­húsið hefur haldið úti beinu streymi af ýmsu efni frá því í mars og heldur því áfram. Hinn 25. apríl les leik­ar­inn Arnar Dan Krist­jáns­son ævin­týra­sög­una Þar sem óhemjurnar eru, og þann 26.  er skyggnst bak við tjöldin á sýn­ing­unni Billy Elliot sem var sýnd 2015. Einnig er hægt að horfa á streymi frá öllum fyrri við­burðum.


Látum okkur streyma

Hvar? Hljóma­höll
Hvenær? 29. apríl & 6. maí kl. 20.00
Streymi: FB-síða Hljóma­hallar

Í hverri viku heldur Hljóma­höll tón­leika sem verða streymdir á net­inu og hjá RÚV, en þar koma fram margar af fremstu hljóm­sveitum og tón­list­ar­fólki lands­ins. 29. apríl spilar silki­mjúki og við­kunn­an­legi R&B tón­list­ar­mað­ur­inn Auður, en hann gaf nýlega út kyn­ferð­is­bombusmá­skíf­una Ljós. 6. maí vaknar kynn­gi­magn­aða indí rokk-sveitin Mammút úr dvala.


Leikhúsveisla í stofunni

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? Alla virka daga
Streymi: ruv.is

Þjóð­leik­húsið sýnir upp­tökur af mörgum af ást­sæl­ustu leik­sýn­ingum síð­ustu ára. Þar að auki flytja leik­arar ljóð fyrir einn áhorf­anda (og þjóð í streymi) í Ljóð fyrir einn, leik­arar flytja ein­verk í Ein­leik­ar­inn og taka við­töl við hvert annað í Stúdíó Kristall. Einnig er hægt að horfa á Leik­sýn­ing verður til, um sýn­ing­una Kar­demommu­bær.


Fjarsjóður þjóðar

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? Á meðan sam­komu­bannið er í gangi
Streymi: lista­safn.is/360

Hægt er að skoða alla sýn­ing­una Fjár­sjóður þjóðar að heiman, en í henni má finna þjóð­lista­verk úr saf­n­eign Lista­safns Íslands. Búið er að taka myndir af allri sýn­ing­unni og er því hægt að ráfa um hana í vef­heimum á sama hátt og í per­sónu. 


Hjáleið

Hvar? Veður og vindur gluggagall­erí
Hvenær? Til 25. apríl
Streymi: Í per­sónu

Á sýn­ing­unni Hjáleið má sjá verk eftir Helga Má Krist­ins­son sem líkja eftir umferð­ar­skiltum í mis­mun­andi upp­setn­ingu. Helgi hefur lengi unnið list sem tengja má við abstrakt stefn­una, en á þess­ari sýn­ingu eru skilti og veg­merk­ingar settar fram í nýtt sam­hengi. Skoða má sýn­ing­una í gegnum glugga Hverf­is­götu 37.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár