Fyrst íslenskra kvenna til að útskrifast sem hjarta- og lungnaskurðlæknir

„Ég ætla að verða læknir þegar ég verð stór,“ sagði Ragn­heiður Martha Jóhann­es­dóttir við ömmu sína, þegar hún var ekki nema tveggja ára. Nú, þrettán árum eftir að hún hóf lækna­nám við Háskóla Íslands, er hún orðin hjarta- og lungna­skurð­læknir, fyrst íslenskra kvenna.

Fyrst íslenskra kvenna til að útskrifast sem hjarta- og lungnaskurðlæknir
Braut­ryðj­andi Ragn­heiður Martha hefur alltaf stefnt á að verða læknir. Mynd: Úr einkasafni

Á sjúkra­hús­inu í Umeå í Svíþjóð starfar Ragn­heiður Martha Jóhann­es­dóttir sem sér­fræði­læknir í hjarta- og lungna­skurð­lækn­ingum. Hún er fyrsta íslenska konan til að útskrif­ast sem slíkur. Þegar hún ákvað að fara þessa leið var hún þó ekki með­vituð um að svo fáar konur störf­uðu á því sviði. „Ég hafði í raun­inni ekki hug­mynd um það. Það var ekki fyrr en ég byrj­aði í deild­ar­lækna­prógramm­inu á skurðsviði Land­spít­al­ans að ég tók eftir því að þetta voru allt karl­menn í kringum mig. Þegar ég svo frétti að það væri heldur engin kona í sér­námi erlendis átt­aði ég mig á því að ég yrði sú fyrsta,“ segir Ragn­heiður Martha. 

„Amma man eftir mér tveggja ára að segj­ast ætla að verða læknir“

Takmark hennar, að verða læknir, hefur hins vegar alltaf verið skýrt. „Amma man eftir mér tveggja ára að segj­ast ætla að verða læknir. Það var kannski helst í kringum ferm­ingu að eitt­hvað annað komst að. Þá ætl­aði ég kannski að verða klippi­kona eða hesta­kona – en alltaf læknir líka. Það breytt­ist aldrei.“

Með eigin líkamsrækt í skúrnum

Íþrótta­konaRagn­heiður Martha og mað­ur­inn hennar eru bæði mikið fyrir úti­vist, lík­ams­rækt og hin ýmsu far­ar­tæki. Þau keyra snjó­sleða á vet­urna og kross­ara á sumrin. 

Hún talar í sím­ann út úr sinni eigin einka-lík­ams­rækt­ar­stöð, sem hún og mað­ur­inn hennar, Benjamín Þór, hafa komið upp í bíl­skúrnum. Þau búa í Umeå í Svíþjóð, þangað sem þau fluttu fyrir fimm árum svo hún gæti hafið sitt sér­fræði­nám. „Við byggðum okkur hús hérna sem við fluttum inn í fyrir einu og hálfu ári síðan. Við vorum með sem skil­yrði að setja upp gym í bíl­skúrnum okkar. Það var eitt­hvað sem okkur lang­aði bæði til að gera,“ segir Ragn­heiður Martha.

Maðurinn hennar er einka­þjálf­ari en þau hafa bæði tvö mik­inn áhuga á lík­ams­rækt. Hún tók meira að segja þátt í keppn­inni um sterk­ustu konu Íslands fyrir nokkrum árum, auk þess að taka tvisvar þátt í Hálanda­leik­unum. „Við reynum að æfa 5–6 sinnum í viku og við erum með voffa sem við löbbum með á hverjum degi. Svo erum við á kross­urum á sumrin og snjó­sleðum á vet­urna,“ segir Ragn­heiður Martha og bætir því við að þau Benjamín séu heppin að deila áhuga­málum, enda geri þau flesta hluti saman. „Svo er draumur hjá okkur að setja upp rækt úti í garði líka. Vera með smá svona Hálanda­leika-strong­man-fíl­ing hérna úti.“ 

Þrettán ár í námi

Áður en Ragn­heiður Martha flutti út hafði hún starfað á skurðsviði Land­spít­al­ans, þar sem hún hafði hún fengið góða reynslu sem nýtt­ist sem grunnur fyrir námið. Þar róter­að­ist hún á milli skurð­deilda, auk þess að vera um tíma í svæf­ingum og á gjör­gæsl­unni. Hún var þó löngu búin að ákveða að hún ætl­aði að verða hjarta­skurð­læknir. „Það var gott að fá reynsl­una áður en ég kom hingað út til Sví­þjóðar. Ég gat líka fengið sumt af því sem ég vann við heima metið. Það er til dæmis skylda að taka hálft ár í svæf­ingu til þess að öðl­ast rétt­indin hér.“

Á spít­al­anum þar sem Ragn­heiður Martha starfar eru þrjár aðrar konur sem einnig eru hjarta- og lungna­skurð­læknar, sem er óvenju­legt þar sem almennt eru mun færri konur í því starfi en karlar. Myndin er end­ur­gerð þeirra sam­starfs­kvenna á teikn­aðri for­síðu­mynd New Yorker 2017 en í blað­inu var fjallað um kven­kyns skurð­lækna.

Ragn­heiður Martha var tví­tug þegar hún byrj­aði í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands. Nú er hún 33 ára og loks orðin sér­fræði­læknir, en hún útskrif­að­ist af Norr­lands-háskóla­sjúkra­hús­inu fyrir skömmu. Hún er komin með stöðu á sjúkra­hús­inu í Umeå og verður þar að öllum lík­indum fast­ráðin innan skamms. „Það þarf að aug­lýsa allar stöður form­lega svo ég þarf að sækja um. En ég er komin með öll leyfi og titla mig sem sér­fræði­lækni núna.“ Hún er ein fjög­urra kvenna sem starfa sem hjarta- og lungna­skurð­læknar á spít­al­anum. Fjöldi þeirra hefur vakið tals­verða athygli, því enn eru konur almennt mun færri í þeim hópi en karlar. 

Á sömu klossum í sjö ár 

Titli sér­fræði­læknis fylgir ýmis­legt skemmti­legt, svo sem nýir lækna­klossar.

Það var reyndar hennar eigin þrjóska – að hennar eigin sögn – sem kom í veg fyrir að hún fengi nýja skó. „Ég keypti mér klossa þegar ég byrj­aði að vinna sem deild­ar­læknir á skurð­deild­inni heima á Íslandi 2013. Þeir hafa fylgt mér síðan þá og komu með mér hingað til Sví­þjóðar árið 2015. Fyrir tveimur árum voru þeir farnir að láta ansi vel á sjá og skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir hér farnir að koma með athuga­semdir: „Jæja! Þú veist að þú getur fengið nýja skó hér þegar þú vilt?“ En ég var búin að bíta það í mig að fá mér ekki nýja klossa fyrr en ég væri orðin sér­fræð­ingur. Það voru því mikil fagn­að­ar­læti þegar ég kom loks á nýjum skóm í vinn­una.“

„Maður lifir ekki án hjartans“

Ragn­heiður Martha er dóttir Lauf­eyjar Lindu Harð­ar­dóttur og Jóhann­esar Georgs­sonar. Hún segir for­eldra sína báða hafa hvatt hana og systur hennar tvær til að sækja sér menntun sem gæfi þeim fjár­hags­legt öryggi. „Pabbi vildi sjá okkur í lækn­is­fræði eða lög­fræði og tal­aði um það alveg frá því að við vorum litlar,“ segir hún. Önnur af yngri systrum Ragn­heiðar Mörthu, Alex­andra, er einmitt lög­fræð­ingur og gegnir nú starfi sveit­ar­stjóra á Skaga­strönd. Hún er yngsti sveit­ar­stjóri lands­ins. „Pabba finnst algjör draumur í dós að ég sé læknir,“ segir Ragn­heiður Martha. „Hann vildi verða læknir sjálfur en gat það ekki vegna aðstæðna í heima­landi hans. Hann er frá Rúmeníu en flúði þaðan og fékk vinnu sem kontra­bassa­leik­ari við Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Hann hafði eflaust mikil áhrif á mig, en samt hefði ég aldrei farið út í þetta nema að hafa brenn­andi áhuga á lækn­is­fræði sjálf. Þetta er svo 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár