Kordo kvartettinn spilar Mendelssohn

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag flytur Kordo kvar­tett­inn Strengja­kvar­tett nr. 2 op. 13 í a-moll eftir Felix Mendels­sohn. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Í dag flytur Kordo kvar­tett­inn Strengja­kvar­tett nr. 2 op. 13 í a-moll eftir Felix Mendels­sohn. Til stóð að flytja verkið á Tíbrár­tón­leikum núna í mars en í ljósi aðstæðna mun kvar­tett­inn flytja verkið í Kúltúr klúkkan 13. Streymi af við­burð­inum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið. Útsend­ingin hefst klukkan 13.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Kúltúr klukkan 13 | Kordo kvar­tett­inn

Kordo kvar­tett­inn flytur Strengja­kvar­tett nr. 2 op. 13 í a-moll eftir Felix Mendels­sohn í Salnum. Til stóð að flytja verkið á Tíbrár­tón­leikum núna í mars en í ljósi aðstæðna mun kvar­tett­inn flytja verkið í Kúltúr klúkkan 13.

Kordo kvar­tett­inn skipa fiðlu­leik­ar­arnir Páll Pal­omares og Vera Pantich, víólu­leik­ar­inn Þórarinn Már Bald­urs­son og selló­leik­ar­inn Hrafn­kell Orri Egilsson. Kvar­tett­inn var stofn­aður síðla sum­ars 2018 og flutti sína fyrstu tón­leika í febr­úar 2019. Tón­leik­arnir hlutu mikið lof gagn­rýnenda sem sögðu hann skipa sér í röð fremstu kamm­er­hópa lands­ins.

Fiðlu­leik­ar­arnir Vera Panitch og Páll Pal­omares eru nýráðin í leið­andi stöður við Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, Vera sem annar konsert­meist­ari og Páll er leið­ari ann­arrar fiðlu.

Páll er einn fremsti fiðlu­leik­ari sinnar kyn­slóðar á Íslandi. Hann hefur hlotið verð­laun í fjöl­mörgum keppnum á íslenskri jafnt sem erlendri grund og komið fram sem ein­leik­ari með fjölda hljóm­sveita víða í Evrópu.

Vera Panitch er fædd í Danmörku en er af rúss­neskum og úkra­ínskum upp­runa. Hún hefur unnið til verð­launa í fjölda keppna og lauk nýverið ein­leik­ara­prófi frá Kon­ung­lega danska tón­listar-háskól­anum í Kaup­manna­höfn. 

Víólu­leik­ar­inn Þórarinn M. Bald­urs­son hefur verið virkur í íslensku tón­list­ar­lífi um ára­bil. Ásamt því að leika með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands hefur hann spilað með stórum og smáum kamm­er­hópum, s.s. Caput, Kamm­er­sveit Reykja­víkur, Elektru og Kúbus. 

Hrafn­kell Orri Egilsson selló­leik­ari hefur verið fast­ráð­inn við Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands frá árinu 2002 og leysir nú af sem stað­geng­ill leið­ara. Veturinn 2000 - 2001 var Hrafn­kell Orri fast­ráð­inn selló­leik­ari við Fíl­harm­on­í­u­sveit­ina í Lübeck. Auk þess að vera með­limur í Kamm­er­sveit Reykja­víkur leikur hann með hinum ýmsu tón­list­ar­hópum.

Um tón­skáldið Felix Mendels­sohn:

Þótt Felix Mendels­sohn hafi verið aðeins átján ára þegar hann samdi strengja­kvar­tett sinn í a-moll, hafði hann þegar þónokkra reynslu við skrif kamm­er­verka. Eftir hann lágu þegar þrír píanó­kvar­tettar, strengja­k­vin­tett  og strengja­oktett, auk nokk­urra óút­gef­inna frumæsku­verka. Kvar­tett­inn var sam­inn nokkrum mán­uðum eftir lát Beethovens og er undir tals­verðum áhrifum síð­ustu strengja­kvar­tetta hans. Þau verk hlutu blendnar við­tökur í byrjun, og var faðir Mendels­sohns meðal þeirra sem þótti lítið til þeirra koma. En Felix sjálfur var stórr­hif­inn og vís­aði ekki aðeins í kvar­tetta Beethovens í sínum kvar­tett, heldur til­eink­aði sér form­bygg­ingu þeirra og þró­aði áfram.

Mendels­sohn vitnar í eigið söng­lag “Ist es wahr?” og kall­ast þannig á við titil lokakafla síð­asta kvar­tetts Beethovens, “Muss es sein?” í þessum til­finn­inga­ríka kvar­tett sem byggir brú á milli klass­ísks forms og róm­an­tískrar tján­inga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr mat­vælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár