Jóninna Margrét lést af völdum COVID-19: „Hún var minn allra besti vinur“

Sonur Jóninnu Mar­grétar Pét­urs­dóttur segir sárt að vita til þess að móðir sín hafi verið ein þegar hún kvaddi.

Jóninna Margrét lést af völdum COVID-19: „Hún var minn allra besti vinur“
Besti vinur Þröstur, sonur Jóninnu heit­innar, segir hana hafa verið afskap­lega góða konu og sinn allra besta vin.

Sonur Jóninnu Mar­grétar Pét­urs­dóttur, kon­unnar sem lést í síð­ustu viku af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar á Land­spít­al­anum, segir mjög erfitt til þess að vita að hún hafi verið ein þegar hún kvaddi þennan heim. Það sé ein birt­ing­ar­mynd þess hvernig veiran herji á sam­fé­lagið, að fólk sé eitt og ein­angrað að takast á við erf­ið­leika. „Mig grunar að fæstir geri sér grein fyrir því,“ segir Þröstur Reyn­is­son. Hann segir móður sína hafa verið afskap­lega vand­aða og góða konu og sinn besta vin. Eig­in­maður Jóninnu og faðir Þrastar liggur mikið veikur af vírusnum á gjör­gæslu en tek­ist hefur að halda honum stöð­ugum síð­ustu daga sem vekur vonir.

Jóninna var 71 árs gömul, búsett í Hvera­gerði, en COVID-19 veiran hefur hitt bæj­ar­fé­lagið afar illa fyrir eins og hefur verið fjallað um í Stund­inni. Jóninna var astma­sjúk­lingur en að sögn Þrastar hafði sjúk­dóm­ur­inn ekki áhrif á dag­legt líf hennar, hún tók sín lyf og lifði eðli­legu og virku lífi. Jóninna lést á Land­spít­al­anum 23. mars síð­ast­lið­inn, fyrst Íslend­inga, eftir að hafa verið flutt þangað mikið veik viku áður, 16. mars síð­ast­lið­inn. Fram að því hafði hún engin ein­kenni sýnt. 

„En hún var ein þegar and­látið bar að garði. Það er mjög erfitt að vita til þess“

Sökum eðlis COVID-19 veirunnar og hversu bráðsmit­andi hún er gátu fáir hitt Jóninnu á meðan hún lá inni á Land­spít­al­anum. Þröstur gat þó hitt móður sína stutt­lega en hann hefur verið í ein­angrun síðan að veik­indin komu upp. „Annars hitti ég hana ekk­ert meir en náði að tala við hana í síma á laug­ar­deg­inum. Aðeins pabbi og elsti bróðir minn fóru og hittu hana og svo ein frænka mín. Mér skilst að hún hafi þó getað heyrt í ansi mörgum í gegnum síma. En hún var ein þegar and­látið bar að garði. Það er mjög erfitt að vita til þess, þetta er nú ein birt­ing­ar­mynd þess hvaða áhrif þessi veira hefur.“

Liggur mikið veikur á gjörgæslu

Eig­in­maður Jóninnu heit­innar er 75 ára gam­all og hefur að sögn Þrastar sonar hans ekki glímt við nein veik­indi fram til þess að hann smit­að­ist af COVID-19 veirunni. Hann hafi hríð­versnað mjög hratt og liggi mikið veikur á Land­spít­al­anum. Þröstur segir þó að tek­ist hafi að halda líðan hans stöðugri síð­ustu daga sem veki vonir um að hann muni ná að kom­ast yfir þann hjalla. 

Þröstur telur að móðir sín hafi vitað að hverju dró í veik­indum sínum. „Já, mér skilst að hún hafi gert sér grein fyrir því, og við vorum held ég öll búin að und­ir­búa okkur fyrir þetta.“

„Almenn­ingur er hins vegar allt of væru­kær og þarf alvar­lega að skoða sín mál“

Starfs­fólk Land­spít­ala stendur sig eins og hetjur í þessum aðstæðum sem nú eru uppi, að mati Þrastar, og nú komi vel í ljós hvers konar fag­fólk við Íslend­ingar eigum. „Almenn­ingur er hins vegar allt of væru­kær og þarf alvar­lega að skoða sín mál þegar kemur að sam­skiptum og for­vörnum.“ Spurður hvort hann hafi þá áhyggjur af því að enn fleiri eigi eftir að verða alvar­lega fyrir barð­inu á veiru­far­aldr­inum svarar Þröstur: „Mikið fleiri.“ Hann brýnir fyrir fólki að veiru­sýk­ingin sé dauð­ans alvara og allir, með engum und­an­tekn­ingum, verði að hlýða fyr­ir­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda, fyrir sig sjálfa og fyrir með­borg­ar­ana. 

Beðinn um að lýsa móður sinni heit­inni svarar Þröstur: „Hún var afskap­lega vönduð og góð kona og minn allra besti vinur.“

Mun allt sitt líf reyna að heiðra ömmu sína

Barna­barn Jóninnu setti inn fal­lega kveðju um ömmu sína á Facebook-síðu hennar fyrir fjórum dögum síðan sem lesa má hér í heild sinni: „Jesús hvað það er erfitt að missa. Amma var mér sem önnur móðir enda tók hún þátt í upp­eldi á mér. Alltaf hægt að treysta á þig og alltaf stóðstu með mér. Við áttum svo margt eftir saman elsku amma en þú áttir að verða partur af öllu því stóra sem ég á eftir. Þú áttir að ganga með mér niður kirkju­gólfið, þú áttir að verða skírn­ar­vottur, þú áttir eftir að sjá fyrstu eign­ina sem við kaupum okkur. Allar úti­leg­urnar, mat­ar­boðin, jóla­und­ir­bún­ing­ur­inn og allt sem við vorum vanar að gera saman. Að vita það að ég heyri aldrei 'nei hæ ástin mín' aftur stingur mig. Þú varst svo fal­leg, svo góð og svo ofboðs­lega traust. Ég mun allt mitt líf reyna að heiðra þig og þú átt alltaf stað í mínu hjarta. Elsku amma ég vona að amma Sigga hafi tekið vel á móti þér og ég sé þig þegar kemur að mér. Lovjú.“

Yfir 1.000 manns hafa nú sýkst af COVID-19 kór­óna­veirunna á Íslandi og 25 manns liggja veikir á sjúkra­húsi af völdum veirunnar. Þar af eru tíu á gjör­gæslu. Hins vegar hefur 135 manns sem fengu veiru­sýk­ing­una nú batnað af henni. Ríflega 9.500 manns eru í sótt­kví og tæp­lega 900 manns í ein­angrun. Tæplega 5.000 manns hafa lokið sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár