Eiginmaður konunnar sem lést úr COVID-19 berst fyrir lífi sínu á gjörgæslu

Ætt­ingjar hjón­anna segja veiru­far­ald­ur­inn dauð­ans alvöru og fólk verði að hlusta á og hlíta fyr­ir­mælum til að berj­ast gegn veirunni. Að öðrum kosti muni afleið­ing­arnar verða alvar­legar.

Eiginmaður konunnar sem lést úr COVID-19 berst fyrir lífi sínu á gjörgæslu
Berst fyrir lífi sínu Eig­in­maður kon­unnar sem lést síð­ast­lið­inn mánu­dag af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar liggur nú fár­veikur á gjör­gæslu Land­spít­al­ans af völdum veiru­sýk­ing­ar­innar. Myndin teng­ist frétt­inni óbeint. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eig­in­maður íslensku kon­unnar sem lést síð­ast­lið­inn mánu­dag af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar liggur mjög alvar­lega veikur á gjör­gæslu Land­spít­al­ans af völdum veiru­sýk­ing­ar­innar og berst þar fyrir lífi sínu. Ætt­ingjar hjón­anna vilja brýna fyrir öllum Íslend­ingum að bar­áttan gegn veiru­far­aldr­inum sé dauð­ans alvara og nú sé ekki annað í boði en hlíta fyr­ir­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda. Ef mis­brestur verði á því muni það hafa mjög alvar­legar afleið­ingar. 

Konan sem lést af völdum COVID-19 veirunnar þann 23. mars síð­ast­liðin, fyrst Íslend­inga, var 71 gömul og var astma­sjúk­lingur. Eft­ir­lif­andi eig­in­maður hennar er 75 ára gam­all og hefur ekki glímt við neina sjúk­dóma fram að þessu. Líkt og eig­in­kona hans heitin hefur honum hríð­versnað á stuttum tíma og er sem fyrr segir mjög alvar­lega veikur. Í dag var hann færður í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu­deild þar sem allt er reynt að gera fyrir hann. 

Fyrirmæli yfirvalda ekkert grín

Sonur þeirra hjóna kvaddi móður sína með færslu á Facebook 24. mars síð­ast­liðin. Þar sagði hann að þrátt fyrir að dauðs­fall í fjöl­skyldum væru að einka­mál þá vildi hann að sem flestir lærðu eitt­hvað af því hvernig mál hefðu þró­ast.  Fleiri úr fjöl­skyld­unni væru veikir. „Það er al­veg kom­inn tími til að þessi þjóð og þegn­ar henn­ar taki þessu al­var­lega og hætti að haga sér eins og hálf­vit­ar,“ skrif­aði hann.

Ætt­ingjar hjón­anna sem höfðu sam­band við Stundina ítrek­uðu þessi skila­boð með miklum þunga. Nú yrðum við, íslenska þjóðin, að hlusta á og fylgja fyr­ir­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda og Almanna­varna. Að öðrum kosti væri hætta á að mjög illa færi. 

„Við glímum við vágest sem ógnar lífi og heilsu fólks“

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son sendi fjöl­skyld­unni  inni­legar sam­úð­ar­kveðjur. „Við glímum við vágest sem ógnar lífi og heilsu fólks. Mestu varðar að verja þá sem eru veik­astir fyrir. Við verðum að fylgja öllum til­mælum og leið­bein­ingum í hví­vetna. Og við treystum á okkar færa starfs­fólk í heil­brigð­is­kerf­inu. Allt það lið á miklar þakkir skildar þessa erf­iðu daga,“ sagði for­set­inn, sem hvatti fólk til að gæta ítr­ustu var­úðar.

Fólk á að taka þetta alvarlega

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra, lýsti því með mjög ákveðnum hætti á blaða­manna­fundi almanna­varna síð­ast­lið­inn þriðju­dag að ótækt væri að fólk virti leið­bein­ingar almanna­varna að vettugi. „Það er bara mjög mik­il­vægt, það sem við erum að leggja áherslu á, að fólk fari eftir þessu. Við erum ekk­ert að grín­ast með þetta. Þetta er full alvara á bak við þessar tölur. Þess vegna verður fólk að taka þetta alvar­lega,“ sagði Víðir.

Alls hafa 802 greinst með kór­óna­veiruna hér á landi, þar af eru 720 manns í ein­angrun. Smitum hefur fjölgað um 65 síð­asta sól­ar­hring. Sautján liggja inni á Land­spít­al­anum, en sam­kvæmt frétt Vísis sem birt var fyrr í kvöld, þar sem rætt var við Má Krist­jáns­son, yfir­lækni smit­sjúk­dóma á Land­spít­al­anum, eru þeir flestir með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Þrír eru á gjör­gæslu í önd­un­ar­vél, tveir karl­menn og ein kona. Már sagði með­ferð­ina ganga betur en við var búist, en erfitt sé fyrir ætt­ingja að mega ekki heim­sækja fólkið sitt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár