Reiknar með að amma sín verði í marga mánuði í sóttkví

Ónefnd kona segir að amma sín, sem er með lungna­krabba­mein og bælt ónæm­is­kerfi, muni þurfa að bíða COVID-19 far­ald­ur­inn af sér alein í sótt­kví á heim­ili sínu. Hún hefur þegar verið í sótt­kví í um hálfan mánuð og mun lík­lega þurfa að vera í nokkra mán­uði til við­bótar.

Reiknar með að amma sín verði í marga mánuði í sóttkví
Óttast ein­mana­leika Fjöl­skyldan hefur þungar áhyggjur af kon­unni sem um ræðir. Myndin er úr safni og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Shutterstock

Stundin ræddi við konu sem segir að amma sín þurfi að bíða af sér far­ald­ur­inn alein í sótt­kví. Ástæðuna fyrir því segir hún vera þá að amma sín sé mjög veik fyrir og því í mik­illi hættu ef það kæmi til þess að hún smit­að­ist af COVID-19. Glímir hún við lungna­krabba­mein á efsta stigi, auk þess sem hún er með bælt ónæm­is­kerfi.

„Hún er með lungna­krabba­mein og síðan slas­að­ist hún á fæti, þannig að hún var búin að vera akkúrat mjög mikið heima. Svo kemur þetta í ofaná­lag. Hún rak sig í tröppu. Það blæddi að innan og þess vegna var hún mjög bólgin mjög lengi af því að ónæm­is­kerfið gat ekki unnið á þessu,“ útskýrir konan.

Amma hennar er nú búin að vera í sótt­kví í um hálfan mánuð og stefnir að því að vera það allt þar til far­ald­ur­inn gengur yfir, sem gæti að end­ingu orðið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aðskilin vegna veirunnar

FréttirAðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um pásk­ana“

„Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Vegna heim­sókna­banns hafa hjónin ekki hist í margar vikur.
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Kór­óna­veiran á Spáni: Flúði elli­heim­ilið af ótta við að deyja einn

Tala lát­inna vegna kór­óna­veirunnar á Spáni er orðin hærri en í Kína. Á föstu­dag­inn höfðu 1.000 lát­ist á Spáni en nú hafa tæp­lega 3.500 beðið bana. Kór­óna­veiran hefur herjað á mörg elli­heim­ili í land­inu, meðal ann­ars á eitt í Madríd þar sem 89 ára heim­il­is­maður ákvað að taka til sinna ráða áður en röðin kæmi að honum.
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Mik­il­vægt að halda í jákvæðn­ina

Kjartan Jarlsson er dval­ar­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi. Algjört bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vegna COVID-19 far­ald­urs­ins veldur því að kona hans, dætur og barna­börn munu ekki geta heim­sótt hann næstu mán­uði, fari svo að bannið verði ekki end­ur­skoðað. Kjartan lætur þetta þó ekki á sig fá og heldur sem fast­ast í jákvæðn­ina.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár