Heilbrigðiskerfið komið í hendur stéttarfélaganna

Und­an­farin ár hafa sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna tekið á sig æ þyngri byrðar í heil­brigð­is­kerf­inu. Nokkrir sjúkra­sjóðir eru tómir eða reknir með tapi og þetta kemur sér­lega illa niður á stétt­ar­fé­lögum á lands­byggð­inni.

Heilbrigðiskerfið komið í hendur stéttarfélaganna
Hjá lækni Sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna taka á sig sífellt meiri kostnað við heil­brigð­is­þjón­ustu félags­manna sinna, kostnað sem for­svars­menn nokk­urra stétt­ar­fé­laga telja að eigi að vera á herðum hins opin­bera. Mynd: Landspítali/Þorkell

Eftir því sem dregur úr heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­byggð­inni taka sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna á sig æ meiri kostnað við heil­brigð­is­þjón­ustu sem ætti að vera á ábyrgð hins opin­bera. Þetta segir Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Hún segir að mörg félag­anna þurfi að for­gangs­raða fjár­munum sínum vegna þessa og því sé minna fé til for­varna.  For­svars­menn nokk­urra stétt­ar­fé­laga taka í sama streng. Sjúkra­sjóðir sumra félaga eru nú reknir með tapi og engu sé lík­ara en að heil­brigð­is­geir­inn sé að fær­ast yfir til stétt­ar­fé­lag­anna að þeim for­spurðum og þetta sé ein birt­ing­ar­mynd byggða­vand­ans.

Drífa nefnir sem dæmi að þegar komu­gjöld í krabba­meins­skoðun voru hækkuð fyrir nokkru hafi verið vísað á þátt­töku sjúkra­sjóð­anna og þeir komið til móts við félags­menn. Það hafi ein­fald­lega þýtt meiri kostnað fyrir sjóð­ina. „Þetta er bara eitt dæmi um hvað verka­lýðs­hreyf­ingin er farin að taka stóran hluta af vel­ferð­ar­kerf­inu. Að mínu mati er það farið að vera hættu­legt þegar ríkið er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár