BSRB samþykkir verkfall

Verk­falls­að­gerðir 15.400 félaga í 15 aðilda­fé­lögum BSRB hefj­ast 9. mars, hafi samn­ingar ekki tek­ist fyrir þann tíma. Verk­fallið mun hafa áhrif á starf­semi Land­spít­ala, leik- og grunn­skóla og frí­stunda­heim­ila. Um er að ræða bæði tíma­bundnar og ótíma­bundnar aðgerðir.

BSRB samþykkir verkfall
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir Verkfall BSRB hefst í mars að óbreyttu. Mynd: Aðsend/BSRB

Verk­falls­að­gerðir félaga í 15 aðild­ar­fé­lögum BSRB hefj­ast 9. mars, hafi samn­ingar ekki tek­ist fyrir þann tíma. Þetta var nið­ur­staða atkvæða­greiðslu sem lauk í gær, þar sem 87,6% þeirra sem tóku þátt sam­þykktu boðun verk­falls.

Verk­fallið mun hafa áhrif á starf­semi Land­spít­ala, leik- og grunn­skóla og frí­stunda­heim­ila og um er að ræða bæði tíma­bundnar og ótíma­bundnar aðgerðir.  Annars vegar mun meiri­hluti félags­manna hjá rík­inum, Sambandi íslenskra  sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borg leggja niður störf dag­ana 9., 10., 17., 18., 24., 26. og 31. mars og 1. apríl. Hins vegar munu smærri hópar starfs­manna fara í ótíma­bundið verk­fall frá og með 9. mars. Meðal þeirra eru starfs­menn í grunn­skólum og leið­bein­endur á frí­stunda­heim­ilum á nær öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu, auk Akraness.

Í til­kynn­ingu frá BSRB segir að reikna megi með að frí­stunda­heim­ilin verði lokuð frá upp­hafi verk­falls. Að auki eru í þessum hópi starfs­menn Rík­is­skatt­stjóra og sýslu­manns­emb­ætta um allt land.

Hafi samn­ingar ekki tek­ist fyrir 15. apríl munu félags­menn aðild­ar­fé­laga BSRB, sem starfa hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum, fara í ótíma­bundið alls­herj­ar­verk­fall. Félögin hafa verið án kjara­samn­ings frá 1. apríl í fyrra og munu kjara­samn­ings­við­ræður halda áfram.

Að með­al­tali  tóku um 69% félags­manna hvers aðild­ar­fé­lags þátt í atkvæða­greiðsl­unni. Innan BSRB eru 17 félög , hjá einu félag­anna Starfs­manna­fé­lagi Garða­bæjar var þátt­taka í atkvæða­greiðsl­unni ekki næg. Atkvæða­greiðsla hjá Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna stendur enn yfir.

Sjúkra­liða­fé­lagið er eitt þeirra aðild­ar­fé­laga BSRB sem sam­þykkti verk­falls­boð­un­ina  Um 89,4% þeirra sem tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unni sam­þykktu boðun verk­falls hjá rík­inu. Um 5,8% voru and­víg boðun verk­falls og 4,7% tóku ekki afstöðu.

Einnig var kosið um verk­falls­boðun hjá þeim félags­mönnum sem starfa hjá Akur­eyr­arbæ. Um 90,4% þeirra sem þátt tóku í atkvæða­greiðsl­unni sam­þykktu verk­falls­boðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár