Fer af stað klukkan fjögur að nóttu

Guðjón Reyn­is­son hefur 319 þús­und krónur í grunn­laun fyrir að ryðja göngu- og hjóla­stíga borg­ar­innar. Mikil yfir­vinna yfir vetr­ar­tím­ann hífir launin upp en er slít­andi og tekur tíma frá fjöl­skyldu­líf­inu.

Fer af stað klukkan fjögur að nóttu
Vinnur allt að 100 tíma í næt­ur­vinnu Guðjón vinnur mikla næt­ur­vinnu yfir vetr­ar­tím­ann en er á ber­stríp­uðum taxta á sumrin. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðjón Reyn­is­son vinnur á drátt­ar­véla­deild Reykja­vík­ur­borgar. Yfir vetr­ar­tím­ann sinnir hann því einkum að ryðja og salta hjóla- og göngu­stíga borg­ar­innar. Að sumr­inu er aðal­vinnan fólgin í að slá gras í borg­ar­land­inu og hirða það en sú vinna stendur fram eftir hausti að öllu jöfnu. Auk þess sinnir drátt­ar­véla­deild almennu við­haldi við göngu­stíga, að klippa tré og runna, sópa auk ann­ars. Fyrir vinn­una sína fær Guðjón 319 þús­und krónur í grunn­laun. Laun sem hann segir að séu auð­vitað ekki mann­sæm­andi.

„Ég kann vel við vinn­una. Ég byrj­aði í maí í fyrra hjá borg­inni en ég var búinn að vinna við nákvæm­lega sömu störf árum saman. Ég vann hjá fyr­ir­tæk­inu Garðlist sem sinnir einmitt þess­ari þjón­ustu fyrir Reykja­vík­ur­borg að hluta, á ákveðnum stöðum í borg­ar­land­inu. Þannig að ég kunni á þessu öll tök,“ segir Guðjón.

Vinnur allt að 100 tíma í næturvinnu

Af þessum sökum var Guðjón eft­ir­sóttur, verk­stjórar hjá Reykja­vík­ur­borg höfðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár