Laxadauðinn hjá Arnarlaxi að minnsta kosti fimmfalt meiri en nefnt hefur verið

Endanleg tala um laxa­dauð­ann hjá Arn­ar­laxi í Arn­ar­firði á eftir að koma í ljós þar sem aðgerðir til að bjarga eld­is­löxum og verð­mætum eru enn á fullu. Laxa­dauð­inn er hins vegar miklu meiri en 100 tonn. Ein af skýr­ing­unum á laxa­dauð­anum er of mikið af eld­is­laxi í kvíum fyr­ir­tæk­is­ins.

Laxadauðinn hjá Arnarlaxi að minnsta kosti fimmfalt meiri en nefnt hefur verið
Laxa­dauð­inn miklu meiri Talan um umfang laxa­dauð­ans í Arn­ar­firði er miklu hærri en nefnt hefur verið. Kjartan Ólafsson hefur ekki viljað svara spurn­ingum um umfangið þrátt fyrir ítrek­anir.

Laxa­dauð­inn hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi í Arn­ar­firði er að minnsta kosti fimm sinnum meiri en nefnt hefur verið opin­ber­lega. Eins og Stundin greindi frá fyrir tveimur dögum var laxa­dauð­inn í sjó­kví­unum um 100 tonn, sam­kvæmt því sem Gísli Jónsson, yfir­maður fiski­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofnun Íslands, sagði við blaðið þá  eða á milli 16 og 20 þús­und laxar.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar og mati sér­fræð­inga sem blaðið hefur talað við er laxa­dauð­inn hins vegar var­lega áætl­aður 500 tonn eða allt að um 100 þús­und laxar en er mögu­lega ennþá meiri eða um 1.000 tonn, eða allt að 200 þús­und laxar. Um 4.000 tonn af eld­is­laxi í slát­ur­stærð, í kringum 800 þús­und laxar, eru í kvíum Arnarlax í firð­inum. 

Út af þessum laxa­dauða var nóta­skipið Sig­hvatur Bjarna­son frá Vest­manna­eyjum fengið til að hreinsa dauðan lax upp úr eld­iskví­unum og slát­ur­skipið The Norwegian Gannet mun slátra upp úr kví­unum á næstu dögum - starfs­menn skips­ins geta slátrað um 100 tonnum á kukku­stund sam­kvæmt því sem Gísli Jónsson segir. Ôveðrið sem vænt­an­legt er getur hins vegar sett strik í reikn­ing­inn við slátr­un­ina og er tím­inn pen­ingar fyrir Arnarlax. Þeim mun lengur sem slàtr­unin dregst þeim mun meira verður tjónið í eld­iskví­unum.

Sig­hvatur Bjarna­son hefur verið í Arn­ar­firði síð­ustu daga við að hreinsa upp dauða eld­is­laxa og er enn að sam­kvæmt upp­lýs­ingum um stað­setn­ingu skips­ins hjá heima­síð­unni Marine Traffic. Þetta þýðir að slátrun á eld­is­löxum Arnarlax í Arn­ar­firði mun ljúka nú í febr­úar í stað­inn fyrir í apríl. 

„Vísa til heima­síðu Arnarlax“

Gísli sagði við Stundina á þriðju­dag­inn að þessar aðstæður séu þær „verstu“ sem komið hafa upp í lax­eldi á Vest­fjörðum frá því Arnarlax tók til starfa en fyr­ir­tækið hefur áður lent í því upp komi laxa­dauði vegna veð­urs. Mat­væla­stofnun hefur ekki sent eft­ir­lits­mann á Bíldudal til að fylgj­ast með stöðu mála sam­kvæmt því sem Gísli segir við Stundina í dag og hann hefur ekki farið þangað sjálfur til að taka út aðstæður á vett­vangi.

Stundin bíður eftir frek­ari form­legum svörum frá Mat­væla­stofnun við spurn­ingum um umfang og ástæður laxa­dauð­ans. 

Stjórnarformaðurinn svarar ekki

Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hefur ekki svarað þeirri spurn­ingu Stund­ar­innar hvort laxa­dauð­inn hafi verið kom­inn í 1000 tonn á þriðju­dags­kvöldið. Stundin spurði: „Var laxa­dauð­inn kom­inn í yfir 1000 tonn í gær­kvöld. Svar Kjartans, eftir ítrekun í morgun, var: „Vísa til heima­síðu Arnarlax.“

Ekkert stendur hins vegar um umfang laxa­dauð­ans á heima­síð­unni. 

Þetta er ein­ungis ein af nokkrum spurn­ingum um laxa­dauð­ann sem Kjartan hefur ekki viljað svara.  

Á þriðju­dag­inn sagði Kjartan um laxa­dauð­ann að hann væri í skoðun en væri ennþá minni en hann var í fyrra. „Erum að skoða. Enn sem komið er er dauð­inn minni en í fyrra.“

Dauði vegna óveðurs

Laxa­dauð­inn er vegna veð­urs­ins sem geisað hefur á Vest­fjörðum og vegna þrengsla í sjó­kvíum Arnarlax, sem valda sárum og sýk­ingum hjá eld­is­löx­unum í kví­unum sem þeir geta svo drep­ist úr. 

Þegar veður er vont og vinda­samt og öldur eru kraft­miklar, auk sjáv­ar­kuld­ans, eru eld­is­laxar í sjó­kvíum í sér­stakri hættu. Ekki síst þeir laxar sem veik­astir eru fyrir og sem minni mögu­leika hafa á að lifa af erf­iðar aðstæður. 

Laxarnir eru í torfu í kví­unum. Þeir sterk­ustu og kraft­mestu koma sér fyrir mitt í torf­unni á meðan burð­ar­minni fiskar eru á jaðri torf­unnar og þar með nær nót­inni í sjó­kví­unum sem getur valdið þeim tjóni af fisk­arnir lenda utan í henni í þeim velt­ingi sem er inni í kví­unum. Sár mynd­ast á eld­is­fisk­unum sem nudd­ast utan í nót­ina og gera þeim erf­ið­ara fyrir að lifa af vegna sýk­inga og sjúk­dóma sem þeir eru lík­legri til að fá vegna sár­anna. Með tím­anum verða sjó­kví­arnar svo gróðr­ar­stía sýkla og sjúk­dóma sem valdið geta altjóni á eld­is­löx­unum ef ekk­ert er að gert.

Arnarlax er hins vegar að reyna að bregð­ast við þessum aðstæðum eftir bestu með því að fá utan­að­kom­andi hjálp með dauða lax­inn og eins við slátr­un­ina. 

Þeim mun fleiri laxar sem eru í kví­unum; þeim mun lík­legra er að þeim mun fleiri drep­ist við slíkar aðstæður sem verið hafa. 

Of mikið af laxi í kvíunum

Eitt af því sem sagt hefur verið um stöð­una hjá Arn­ar­laxi er að of mikið af eld­is­laxi sé í hverri kví. Ekki meira en 150 þús­und laxar geta verið í hverri sjó­kví ef vel á að vera. Samkvæmt heim­ildum hefur Arnarlax hins vegar verið með umtals­vert fleiri laxa í sínum kvíum í firð­inum en þetta, allt að rúm­lega 200 þús­und í kví. 

Einn sér­fræð­ingur í sjó­kvía­eldi sem Stundin hefur rætt segir að það sé hans reynsla að í svona aðstæðum, þar sem sjáv­ar­kuldi og vont veður fara saman, þá deyi laxar í kví­unum ef það er meira í þeim en 150 þús­und laxar. 

Ein af spurn­ing­unum sem Kjartan Ólafsson hefur ekki viljað svara er hversu mikið af eld­is­laxi er í kvíum fyr­ir­tæk­is­ins í Arn­ar­firði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Tekjur Arnarlax lækkuðu um 39 prósent á milli ára – Eigið fé metið á 17 milljarða króna
InnlentLaxeldi

Tekjur Arnarlax lækk­uðu um 39 pró­sent á milli ára – Eigið fé metið á 17 millj­arða króna

Arnarlax hefur nú birt afkomu­upp­lýs­ingar sínar frá 2024 en þar má sjá að afkoman er mun verri en árið 2023. Mikill laxa­dauði vegna lúsa­fárs árið 2023 hafði þar mikil áhrif. BB.is segir frá því að tekjur Arnarlax á síð­asta ári hafi verið 39 pró­sent minni en árið áður eða um 9 millj­örðum lægri. Tekj­urnar 2024 urðu um 15 millj­arðar króna...
Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“
Menning

Steinunn Ólína orti tæki­fær­is­galdur gegn lax­eldi fyrir norðan: „Ratið út villu­sauðir!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir orti tæki­fær­is­galdur gegn áformum um upp­setn­ingu eld­is­stöðva á Norð­ur­landi, og birti á Facebook. Leik­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir birti í morgun magn­þrungna vísu eða tæki­fær­is­galdur eins og hún orðað það. Þar mót­mælir hún eld­is­stöðvum sem setja á upp víða á Norð­ur­landi með til­heyr­andi mengun og raski. Hefst færsla hennar á eft­ir­far­andi hátt: „Nú er horfið...
Sir Jim Ratcliffe framleiðir gin til verndar villta laxinum
Landið

Sir Jim Ratcliffe fram­leiðir gin til verndar villta lax­inum

Sir Jim Ratcliffe og sam­tök hans, Six Rivers munu á næst­unni fram­leiða sér­stakt gin í sam­starfi við sænskan gin­fram­leið­anda. Hluti sölu­hagn­að­ar­ins mun renna til verndar villta Atl­ants­haf­s­lax­inum. Samkvæmt heima­síðu Six Rivers segir um Íslands­deild sam­tak­anna: „Six Rivers Iceland er vernd­ar­á­ætlun sem er ekki rekin í hagn­að­ar­skyni, sem leit­ast við að snúa við hnignun Atl­ants­haf­s­laxa.“ Það er í því ljósi sem...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár