Play boðar flugfreyjur og flugþjóna í viðtal

Sala flug­miða er ekki hafin, félagið er ekki komið með flug­rekstr­ar­leyfi og óákveðið hvenær fyrsta flug­ferðin verður. Verðandi flug­freyjur og -þjónar hafa verið boðuð í við­töl.

Play boðar flugfreyjur og flugþjóna í viðtal
Play Flug­fé­lagið Play, sem kynnt var til sög­unnar í byrjun nóv­em­ber í fyrra hefur boðað umsækj­endur um störf flug­freyja og -þjóna í við­töl. Félagið er ekki komið með flug­rekstr­ar­leyfi og óvíst er hvenær fyrsta flug félags­ins verður farið. Mynd: Play

Umsækj­endur um störf flug­freyja og -þjóna hafa verið boð­aðir í við­töl hjá flug­fé­lag­inu Play. Félagið er ekki komið með flug­rekstr­ar­leyfi, óvíst er hvenær fyrsta flug félags­ins verður farið og sala á flug­miðum er enn ekki hafin.

Tilkynnt var um stofnun félags­ins á blaða­manna­fundi í Perlunni fyrir rúmum þremur mán­uðum,  5. nóv­em­ber í fyrra. Þá sögðu for­svars­menn félags­ins að félagið myndi fljót­lega taka tvær Airbus A320 vélar í þjón­ustu sína sem hvor um sig tekur 200 manns og fljúga ein­göngu til Evrópu fram á vor, en þá yrði stefnan sett á Banda­ríkin og vél­arnar yrðu orðnar sex í sumar.  

Sala á flug­miðum átti að hefj­ast í nóv­em­ber, en í lok þess mán­aðar birti félagið  til­kynn­ingu á Facebook-síðu sinni þar sem sagði að söl­unni hefði verið frestað þar sem verk­efnið hefði tekið lengri tíma en áætlað var.

Salan er enn ekki hafin og María Margrét Jóhanns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Play segir að ekki liggi enn fyrir hvenær það verður. Dag­setn­ing jóm­frúr­flugs félags­ins hefur ekki heldur verið stað­fest, að sögn Maríu Mar­grétar.

Sama dag og greint var frá stofnun félags­ins í byrjun nóv­em­ber var aug­lýst eftir fjölda starfs­fólks á vef­síðu Play, flyplay.com,  meðal ann­ars í störf „bros­andi flug­liða“ sem myndu vilja taka þátt í að breyta íslenskri flug­sögu. Athygli vakti að lág­marks­aldur fólks í þessi störf var til­tek­inn 18 ár, sem er nokkuð lægra en verið hefur hjá hinum íslensku flug­fé­lög­unum. 

Á vef­síðu Sam­göngu­stofu er listi yfir hand­hafa flug­rekstr­ar­leyfa. Play er ekki á þeim lista og María Margrét stað­festir að leyfið sé ekki komið í hús.  Spurð um hvernig hluta­fjár­mögnun félags­ins gengi sagði hún engar upp­lýs­ingar gefnar um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
6
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár