Samið um tveggja vikna laun fyrir 210 sjómenn Samherja í Namibíu

Sjómenn sem starfað hafa hjá Samherja í Namibíu fá tveggja vikna laun til að byrja með í kjöl­far ákvörð­unar útgerð­ar­fé­lags­ins að yfir­gefa landið. Verka­lýðs­for­kólfur í Namibíu segir að málið hafi haft hræði­legar afleið­ingar fyri sjó­menn­ina sem unnu á tog­ur­unum.

Samið um tveggja vikna laun fyrir 210  sjómenn Samherja í Namibíu
Munu standa við sitt Björgólfur Jóhanns­son hefur sagt að Samherji muni standa við sitt gagn­vart sjó­mönnum og öðru starfs­fólki Samherja í Namibíu. Mynd: Vísir/Sigurjón

210 namibískir sjó­menn, sem starfað hafa við útgerð Samherja í Namibíu, fá greidd laun í tvær vikur í kjöl­far þess að íslenska útgerð­ar­fyr­ir­tækið er hætt veiðum í land­inu í kjöl­far mútu­máls­ins sem nú er til rann­sóknar þar ytra og á Íslandi. Eins og Stundin, Kveikur og Al-Jazeera sögðu frá í nóv­em­ber, á grund­velli gagna frá Wikileaks, þá greiddi Samherji mútur upp á vel á annan millj­arð króna til áhrifa­manna til að kom­ast yfir hesta­makríl­skvóta í land­inu á árunum 2012 til 2019. 

Útgerð Samherja í Namibíu rak þrjá verk­smiðju­tog­ara­tog­ara þar í landi, Heinaste, Geysi og Sögu og hefur Heinaste verið kyrr­settur vegna gruns um notkun hans í þeirri brota­starf­semi sem til rann­sóknar er í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu en Geysir og Saga hafa yfir­gefið landið. Geysir hefur haldið til veiða í Márit­aníu en tog­ar­inn Saga er í slipp á Spáni. 

Samið var um þessar launa­greiðslur til sjó­mann­anna á föstu­dag­inn var sam­kvæmt namibísku miðl­unum The Namibian og New Era Live en fram­tíð atvinnu sjó­mann­anna hefur verið í upp­námi og óljós vegna þess að Samherji yfir­gefur nú í Namibíu. 

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja, sagði í frétta­til­kynn­ingu á fimmtu­dag­inn að Samherji myndi standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart öllum starfs­mönnum Samherja í Namibíu. „Eins og áður hefur komið fram munu fyr­ir­tækin sem um ræðir standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart öllum starfs­mönnum í sam­ræmi við gild­andi lög og reglur,“ sagði Björgólfur. 

Frekari fundir á næstunni

Verka­lýðs­sam­tök sjó­mann­anna, National Union of Namibian Workers (NUNW) og Namibia Food and Allied Union (Nafau) sömdu um tveggja vikna launa­greiðsl­urnar við Sögu Seafood, fyr­ir­tæki Samherja sem rekið hefur tog­ar­ana þrjá. Frekari funda­höld við verka­lýðs­fé­lögin verða á næst­unni til að ræða launa­greiðslur til sjó­mann­anna vegna þeirra áhrifa sem brott­för Samherja frá Namibíu hefur á þá.  Samherji mun því þurfa að greiða sjó­mönn­unum frek­ari laun sam­kvæmt þessu. 

Í frétt namibíska mið­ils­ins kemur fram að verka­lýðs­fé­lögin séu ekki fylli­lega sátt við sam­komu­lagið en það sé betra en ekk­ert að sinni fyrir umrædda sjó­menn. 

„Ljóst er að Fishrot-málið hefur hræði­legar afleið­ingar fyrir venju­lega sjó­menn og fjöl­skyldur þeirra.“

Samherjamálið „hræðilegt“ fyrir sjómennina

Forseti verka­lýðs­sam­tak­anna NUNW, Phillip Munenguni, krafð­ist þess eftir fund­inn á föstu­dag­inn þar sem samið var um þessar tveggja vikna launa­greiðslur að for­svars­menn Samherja yrðu með á næstu fundi um fram­tíða sjó­mann­anna en ráð­gert er að hann fari fram 24 febr­úar næst­kom­andi. 

Þá sagði Munenguni að stjórn­völd í Namibia þyrftu að aðstoða við að finna „var­an­lega lausn“ á mál­inu þar sem Sam­herj­a­málið í Namibíu hefði svo slæmar afleið­ingar fyrir sjó­menn­ina. „Ljóst er að Fishrot-málið hefur hræði­legar afleið­ingar fyrir venju­lega sjó­menn og fjöl­skyldur þeirra,“ er haft eftir honum í frétt namibíska mið­ils­ins. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár