Norðurljós og kuldi til sölu á 69. breiddargráðu

Asískir auð­menn í snjó­bolta­stríði og upp­tekið fólk sem fer langt norður fyrir heim­skauta­baug til að gera ekki neitt. Ferða­mönnum sem sækja nyrstu byggðir Noregs heim hefur fjölgað mikið. Einn slíkur staður er Sommerøy, lítið fiski­þorp skammt frá Tromsø þar sem Halldór Gíslason sinnir mark­aðs­málum.

Hvað fær fólk til að velja einn áfanga­stað umfram annan? Oft er það vegna þeirrar afþrey­ingar sem við­kom­andi staður hefur upp á að bjóða eða að þar séu nátt­úru­undur eða bygg­ingar sem gaman gæti verið að sjá. Ef Íslend­ingur, sem hyggur á ferða­lag, er spurður þess­arar spurn­ingar er ekki ólík­legt að hlýtt veð­ur­far spili stórt hlut­verk. Versl­un­ar­mögu­leikar gætu líka haft nokkur áhrif.

En svo eru til öðru­vísi áfanga­staðir. Þeir sem full­yrða (ef þeir gætu talað): „Ég er nóg“, svo vitnað sé í vin­sæla setn­ingu frá síð­asta ári. Einn þess­ara staða er Sommerøy í Norður-Noregi, 400 íbúa fiski­þorp skammt frá Tromsø, norðan við 69. breidd­argráðu. Staður flestum ólíkur, eins og Halldór Gíslason, sem ber hið fágæta starfs­heiti mark­aðs­sendi­herra eða Markeds ambassa­dør á Hotel Sommerøy, yrði lík­lega fyrstur til að sam­þykkja.

Þar býður hann asískum auð­mönnum í snjó­bolta­stríð langt fyrir norðan heim­skauts­baug og selur ferða­fólki norð­ur­ljósin. Fjöldi þeirra ferða­manna sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár