Getur ekki stutt „áróðursherferð“ Eflingar

Björn Leví Gunn­ars­son segir til­gang­inn ekki helga með­alið í kjara­deilu Eflingar við Reykja­vík­ur­borg. Eini odd­viti meiri­hlut­ans sem þáði boð Eflingar um fund var Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata.

Getur ekki stutt „áróðursherferð“ Eflingar
Björn Leví Gunn­ars­son og Dóra Björt Guð­jóns­dóttir Píratar segj­ast styðja bar­áttu lág­launa­fólks.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, seg­ist ekki styðja Eflingu skil­yrð­is­laust í kjara­við­ræðum félags­ins við Reykja­vík­ur­borg. „Áróð­urs­her­ferðin sem er í gangi núna er heldur ekki eitt­hvað sem ég get stutt,“ skrif­aði hann á Facebook í gær­kvöldi. „Þar krist­all­ast kannski helst mun­ur­inn á því að ég styð lág­launa­fólk en ekki Eflingu. Á meðan ég vona að þau nái góðum samn­ingum þá get ég ekki stutt aðferð­ina.“

Efling boð­aði odd­vita meiri­hlut­ans í borg­inni til fundar til að ræða yfir­stand­andi kjara­deilu. Að óbreyttu hefj­ast verk­föll félags­ins á morgun. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata og sam­flokks­kona Björns Levís, var eini borg­ar­full­tú­inn sem hafði boðað komu sína sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Eflingu og var fund­inum því frestað. „Það stóð ekki á mér að taka til­boði Eflingar um að funda með lág­launa­fólki í leit að sann­girni við samn­inga­borðið,“ skrif­aði hún á Facebook í gær. „Píratar standa með lág­launa­fólki.“

Björn Leví gerði málið að umfjöll­un­ar­efni á síðu sinni í gær­kvöldi. „Þær launa­kröfur sem nú er verið að gera líta ágæt­lega út, stytt­ing vinnu­viku er ekki nógu fram­ar­lega í umræð­unni og sú stytt­ing sem náð­ist í lífs­kjara­samn­ing­unum var drasl,“ skrif­aði hann. „Var í raun bara til­færsla á pásum en ekki eig­in­leg stytt­ing vinnu­tíma.“

„Á meðan ég styð kjara­bætur lág­launa­fólks þá þýðir það ekki að ég styðji það skil­yrð­is­laust“

Bætti hann því við að margt í kjara­bar­áttu Eflingar slái á nei­kvæðar nótur í umræð­unni og að til­gang­ur­inn helgi ekki með­alið. „Fólk sem spyr mig, „styður þú Eflingu“ og ætl­ast til þess að það sé sama­sem­merki á milli þess og að styðja lág­launa­fólk ... nei og nei. Á meðan ég styð kjara­bætur lág­launa­fólks þá þýðir það ekki að ég styðji það skil­yrð­is­laust. Ég bara virka þannig. Ég geri mér vænt­ingar um meiri stytt­ingu vinnu­vik­unnar, áróð­urs­lausa umræðu og betri kjör. Eins og ég sé þetta þá tikkar núver­andi kjara­deila í eitt af þeim boxum. Gangi þeim sem allra best með það og betur með hitt,“ skrif­aði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár