Stéttaflakkandi njósnari

Við höldum áfram að rann­saka [kyn]hegðun og líðan kvenna í land­inu. Í þetta skipti situr mynd­list­ar­konan Olga Bergmann fyrir svörum. Hún myndar lista­mannateymið Berghall ásamt Önnu Hallin. Í jan­úar lauk sýn­ingu þeirra, Fangelsi, í Hafn­ar­borg.

Stéttaflakkandi njósnari

Árið 2013 unnu Anna og Olga sam­keppni um lista­verk fyrir örygg­is­fang­elsið á Hólms­heiði. Verkinu skiptu þær í þrjá hluta: trjá­safn, fugla­hótel og skrá­sett flug­mynstur fugla. Í aðkomu­garði fang­els­is­ins plönt­uðu þær tíu trjá­teg­undum og reistu skúlp­t­úra sem eru fugla­hótel og fugla­veit­inga­hús. Úr eft­ir­lits­mynda­vélum litlu fugla­hót­el­anna má fylgj­ast með af skjá inn á bóka­safni fang­els­is­ins sam­tíma fugl­anna sem þar hreiðra um sig og þar er líka hægt spóla aft­urá­bak í tím­ann. Á sjö steyptum útveggjum fang­els­is­ins eru grafnar teikn­ingar af flug­mynstri sjö fugla: skóg­ar­þrastar, hrafns, smyrils, branduglu, mar­íu­erlu, hrossa­gauks og þúfu­titt­lings. Í til­efni sýn­ing­ar­innar kom út bókin Fang­elsið, sem segir og sýnir sögu og til­urð verks­ins. Berghall hefur starfað að list­sköpun síðan 2005. Anna og Olga kynnt­ust í Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands árið 1988. 

Hér er rætt við Olgu, hún situr hinum megin við stofu­borðið í lopa­peysu sem þær Anna og móðir Önnu prjón­uðu í sam­ein­ingu. 

Olga Bergmann – fædd …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár