Mynd: Önundur Pálsson

Svona er umhorfs á Flateyri eftir flóðin

Tvö „mjög stór“ snjóflóð féllu á Flateyri. Snjó­flóðavarnir vörðu byggðina að mestu, en bæði flóðin vekja spurningar hjá Veður­stofu Íslands.

Snjó­flóðið sem féll úr Skolla­hvilft yfir Flateyri í gærkvöldi og olli tjóni á bátaflota bæjarins „virðist hafa verið mjög stórt“, að mati Veður­stofu Íslands.

Hitt snjó­flóðið sem féll, úr Innra-Bæjargili og lenti hinum megin í bænum, og fór yfir snjó­flóða­varnirnar, veldur því að Veður­stofan mun fara yfir gögn og matsferla, þar sem veður þótti ekki gefa tilefni til þess að rýma svæðið.

Aðstæður ekki metnar hættulegar

Unglings­stúlka grófst undir í flóðinu, en var bjargað af heima­mönnum í björgunar­sveitinni Sæbjörgu. Húsið er illa farið, eins og sést af meðfylgjandi myndum. 

„Snjóflóða­vakt Veður­stofunnar mat snjó­flóða­hættuna í gær ekki svo að aðstæður væru þannig“

„Snjóflóða­vakt Veður­stofunnar mat snjó­flóða­hættuna í gær ekki svo að aðstæður væru þannig. Veður­hamurinn í þessari snjóflóða­hrinu var ekki jafn mikill og í hrinunni árið 1995 og því voru aðstæður metnar skárri nú. Þegar þessari hrinu slotar þarf að greina veður­aðdraganda hennar og upplýsingar um þessi og önnur flóð sem fallið hafa í henni til þess að geta sagt nánar til um ástæður þess að svo stór flóð féllu nú.“

Legið fyrir að flætt geti yfir varnargarða

Legið hefur fyrir í skýrslum og mati á snjó­flóðahættu að flóðin geti náð yfir varnar­garða þegar þau eru stærst.

„Flóðið úr Innra-Bæjargili kallar á mat á virkni varnar­garðsins og ýtarlegar mælingar á flóðunum sem féllu í gær. Mæla þarf hversu mikið rann yfir garðinn og hvernig flóð­tungan þar liggur til þess að sjá betur hvernig flóðið féll á garðinn og hversu stór hluti þess rann yfir hann. Einnig þarf að mæla þykkt og rúmmál flóðsins og kanna hvort flæddi yfir garðana ofar í hlíðinni. Þetta verður gert strax og aðstæður leyfa,“ segir í greiningu snjóflóða­vaktar Veður­stofu Íslands.

Eyðileggingin blasir við

Stundin birtir hér myndir af eyði­leggingunni eins og hún blasir við eftir snjó­flóðin. Myndirnar tók Önundur Pálsson, íbúi á Flateyri.

Á myndunum sést bátafloti Flateyringa liggja í höfninni, en snjó­flóðavarnir miðuðust við að verja byggðina en ekki höfnina. „Varnar­garðurinn beindi því frá byggðinni og til sjávar, en garðurinn er ekki miðaður við að verja hafnar­svæðið.“

Enn snjóflóðahætta 

Hér eru nýjustu fréttir frá Almanna­vörnum:

Uppfært kl. 15.15: „Enn er snjó­flóðahætta á Vestfjörðum og óvissu­stig á norðan­verðum Vestfjörðum og hættustig á Ísafirði. Flat­eyrarvegur og vegurinn um Súða­víkurhlíð eru lokaðir vegna snjó­flóðahættu. Í undir­búningi er flutningur á hjálpar­liði almanna­varna vestur til að styðja við heimamenn. Athugað verður með flug til Ísafjarðar nú í eftir­miðdaginn. Hvasst hefur verið á Vestfjörðum í morgun og gert er ráð fyrir að smá saman dragi úr ofan­hríðinni. Gert er ráð fyrir 15-17 m/s á fjall­vegum síðdegis og enn er skaf­renningur. Lægir enn frekar í kvöld og horfur eru á skaplegu veðri á morgun, 5-10 m/s og verður að mestu éljalaust. Frekari upplýsingar um veður og færð má nálgast á vefsíðu Veðurstofunnnar vedur.is og hjá Vega­gerðinni.“

Faðir stúlkunnar á leið vestur 

Uppfært kl. 16:00.

Þyrla Landhelgis­gæslunnar var kölluð út í sjúkra­flug vestur á Flateyri og Ísafjörð. Til stóð að sækja allt að þrjá á Flateyri til að koma þeim undir læknis­hendur. Vegna ófærðar síðustu daga hafa þeir ekki komist frá bænum. Um leið átti að sækja einn til Ísafjarðar og flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík. 

Á leið vestur var faðir stúlkunnar sem grófst undir í snjóflóðinni einnig um borð í þyrlunni. Honum var boðið að fara með svo hann gæti hitt dóttur sína. Gert er ráð fyrir að þyrlan lendi fyrir vestan á fimmta tímanum í dag. 

Ástandið í höfn­inniÓttast er að allir bát­arnir séu ónýtir.
Ólafstún 14Ung­lings­stúlka lenti undir flóð­inu í her­bergi sínu fjalls­megin í hús­inu. Móðir hennar og tvö börn komust út af sjálfs­dáðum.
Þak­skemmdir á Ólafs­túni 14
Snjó­flóða­varnir í bak­sýnHæð snjó­flóða­varna, sem flóðið sprakk yfir, sést á mynd­inni.
Heimilið fariðFjögurra manna fjöl­skylda bjó í hús­inu. Það tók björg­un­ar­sveit­ar­menn 40 mín­útur að grafa ung­lings­stúlku út úr her­bergi sínu, þar sem hún hafði legið í rúm­inu í fóst­ur­stell­ingu undir sæng og snjó­fargan.
Varðskip í bak­sýnÍ for­grunni sést flot­bryggjan, sem færð­ist yfir höfn­ina við flóðið.
Yfirsýn yfir höfn­inaUmmerki snjó­flóðs og flóð­bylgju eru á vett­vangi, en enn á eftir að meta hvað raun­veru­lega gerð­ist.
Smábátur í fjör­unniHér sést hvernig kraftur flóð­anna feykti trillu upp í fjöru.
SokkinnBátur sokk­inn í krapa og sjó. Fiskikar sést fyrir miðið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Mest lesið undanfarið ár