Með mestu verðhækkunum á fyrsta degi viðskipta frá hruni

Verð­hækkun á hluta­bréfum í PLAY á fyrsta við­skipta­degi félags­ins á First North-mark­aðnum í Kaup­höll­inni er með því hæsta sem sést hefur frá árinu 2008.

Formleg skráning PLAY á First North markaðinn átti sér stað í dag.
Formleg skrán­ing PLAY á First North mark­að­inn átti sér stað í dag. Mynd: Nasdaq Iceland

Hluta­bréfa­verð flug­fé­lags­ins PLAY er nú 23 til 37 pró­sentum hærra en útboðs­gengi þess var eftir einn dag í reglu­legum við­skiptum á First North mark­aðnum í Kaup­höll­inni. Með þess­ari verð­hækkun raðar félagið sér í röð þeirra félaga sem hafa hækkað hrað­ast í verði eftir skrán­ingu á hluta­bréfa­markað á síð­ustu þrettán árum.

Samkvæmt grein sem Baldur Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland, skrif­aði í síð­asta hefti Vís­bend­ingar hefur hluta­bréfa­verð nýskráðra félaga í Kaup­höll­inni að með­al­tali hækkað um 8 pró­sent fyrsta dag­inn eftir frumút­boð þeirra. Fyrir dag­inn í dag var hækk­unin mest hjá TM, en eftir frumút­boð félags­ins árið 2013 hækk­aði hluta­bréfa­verð þess um 33 pró­sent.

Næst­mesta hækk­unin átti sér stað hjá Íslands­banka, en líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um hækk­aði verð félags­ins um fimmt­ung eftir fyrsta dag­inn í reglu­legum við­skiptum. Verð­hækk­unin var einnig tölu­verð í kjöl­far frumút­boðs Arion banka og Haga, en þar nam hún 18 pró­sentum á fyrsta degi við­skipta.

Útboðs­gengið hjá PLAY nam 20 krónum á hlut fyrir til­boð yfir 20 millj­ónum króna og 18 krónum á hlut fyrir til­boð undir 20 millj­ónum. Dagsloka­gengi PLAY er nú í 24,6 krónum á hlut, sem þýðir að ávöxtun þeirra sem fjár­festu á undir 20 millj­ónum í félag­inu nemur heilum 37 pró­sentum.

Alls námu við­skipti með bréf í PLAY 794,3 millj­ónum króna og var veltan lang­mest af öllum félögum sem skráð eru í Kaup­höll­inni. Næst­mesta veltan var með bréfum í Íslands­banka, en hún nam 389,8 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár