Segir lögreglu hafa lamið sig: „Hann öskraði á mig að ég skyldi ekki reyna að flýja“

„Má lög­reglan kannski bara gera fólki upp sakir og lemja það síðan inni í lög­reglu­bíl?“ segir Atli Jason­ar­son, starfs­maður á Vist­heim­ili barna, sem lýsir því hvernig hann hafi verið hand­tek­inn og beittur ofbeldi af lög­reglu eftir að hafa aðstoðað með­vit­und­ar­lausa konu í Aust­ur­stræti. Hann hefur beðið í hálft ár eftir svörum vegna kvört­unar sinnar.

Segir lögreglu hafa lamið sig: „Hann öskraði á mig að ég skyldi ekki reyna að flýja“
Lýsir ofbeldi lög­reglu Atli segir að lög­reglu­maður hafi lamið hann án nokk­urrar ástæðu.

„Með hverjum deg­inum sem líður þykir mér þetta fárán­legra,“ segir Atli Jason­ar­son, meist­ara­nemi og starfs­maður á Vist­heim­ili barna, sem hefur kvartað form­lega undan því sem hann nefnir lög­reglu­of­beldi.

Í júlí á síð­asta ári kom Atli að konu sem lá með­vit­und­ar­laus í Aust­ur­stræti. Hann hringdi strax á Neyð­ar­lín­una og óskaði eftir því að sjúkra­bíll yrði sendur á stað­inn. Þess í stað var það lög­reglan sem mætti á svæðið og urðu atvik svo með þeim hætti að Atli var han­djarn­aður og settur inn í lög­reglu­bíl, þar sem hann segir lög­reglu­mann hafa lamið sig. Hálfu ári síðar hefur hann engin svör fengið eftir að hafa lagt fram kvörtun vegna starfa lög­regl­unnar.

Eftir alla bið­ina ákvað Atli að lýsa atvik­unum á Facebook-síðu sinni. Þar segir hann frá því að hann hafi, skömmu eftir mið­nætti, komið að konu sem lá með­vit­und­ar­laus í Aust­ur­stræti. „Það fyrsta sem ég gerði var að hringja á Neyð­ar­lín­una en þegar hún, konan, komst til með­vit­undar þrá­bað hún mig um að hringja ekki þangað. Ég sagði henni að ég væri því miður búinn að því en ég skyldi vera með henni,“ skrifar Atli.

Sögðu hann trufla störf lögreglunnar

Þrátt fyrir að Atli hafi kallað eftir sjúkra­bíl í sam­tali við Neyð­ar­lín­una var það lög­reglan sem birt­ist, á tveimur bílum.

Atli útskýrir í sam­tali við Stundina að hann hafi sagt við lög­reglu­menn sem komu út úr öðrum bílnum að konan hafi verið því mót­fallin að lög­regla kæmi að mál­inu og hann hafi svo spurt hvort þeir myndu ekki bara skutla kon­unni upp á spít­ala. „Ég fór og tal­aði við lög­reglu­fólk úr öðrum bílnum um málið og það ég best veit voru þau bara á að hlusta á mig. Þá vindur sér út úr hinum bílnum lög­reglu­maður, að mér, ýtti mér upp að fyrri lög­reglu­bílnum og sagði mér að ég væri að trufla störf lög­regl­unnar. Ég hafði ekki sagt við hann orð áður en að þessu kom. Hann snýr mér að bílnum og spurði mig til nafns, sem ég neit­aði að gefa upp, sem voru mis­tök af minni hálfu. Ég veit það núna að ég hefði betur sagt honum hvað ég héti. Þá sagði hann mér að brotin væru orðin tvö, hann hand­járnar mig og setur mig inn í bíl.“

„Þá sagði hann mér að brotin væru orðin tvö, hann hand­járnar mig og setur mig inn í bíl.“

Atli segir að ástæða þess að hann hafi ekki gefið upp nafn hafi ein­fald­lega verið sú að honum hafi verið svo brugðið við fram­kom­una. „Ef ég hefði fund­ist á morð­vett­t­vangi þá finnst mér ekki óeðli­legt að ég væri spurður til nafns og hvað ég væri að gera þar. Mér fannst þetta hins vegar bara svo súr­r­eal­ískt, að þurfa að segja lög­reglu­manni sem ég hef aldrei séð áður og hef ekk­ert truflað, hvað ég héti, þegar ég hafði ekk­ert gert annað en að reyna að aðstoða full­orðna konu í nauðum. Þetta var bara svo skrýtið, svo óeðli­leg fram­vinda máls­ins. Ég hef áður hringt á Neyð­ar­lín­una vegna stelpu sem hafði dottið á and­litið og slasað sig. Þá komu bæði sjúkra­bíll og lög­regla og ég spjall­aði við lögg­urnar. Ég var ekki lam­inn í það skipti.“

Hand­járn­aður fyrir aftan bak sat Atli svo við hlið lög­reglu­manns­ins sem hafði hand­tekið hann í lög­reglu­bílnum. Hann lýsir því að sökum þess hversu óþægi­legt hafi verið að sitja þannig með hendur járn­aðar fyrir aftan bak hafi hann hallað sér eilítið til hliðar, upp að hurð­inni. Hann hefði ekki sagt orð við lög­reglu­mann­inn.

„And­ar­taki síðar fékk ég oln­boga lög­reglu­manns­ins í and­litið“

„Það voru ein­hver heimsku­leg­ustu mis­tök ævi minnar. And­ar­taki síðar fékk ég oln­boga lög­reglu­manns­ins í and­litið. Hann öskr­aði á mig að ég skyldi ekki reyna að flýja og að ég skyldi horfa út um glugg­ann. Viðbrögð mín við þessu voru einnig afar heimsku­leg, því ég horfði ekki út um réttan glugga, ég horfði út um gluggan hans meg­inn. Aftur fékk ég oln­boga í and­litið — í þetta skiptið fastar en áður og lög­reglu­mað­ur­inn lagð­ist ofan á mig með til­heyr­andi öskrum. Ef ég á að reyna að skýra hvað gerð­ist hlýtur hann að hafa haldið að ég væri að ögra honum en það var ég alls ekki að gera. Ég verð að við­ur­kenna að ég man ekki nákvæm­lega hvað það var sem hann sagði en það tengd­ist því eitt­hvað að ég skyldi hlýða honum. Meðan á þessu stóð heyrð­ist ekk­ert í lög­reglu­þjón­inum sem ók bílnum,“ segir Atli.

Hefur áhrif á andlega líðan

Atli var svo færður inn í fanga­klefa við kom­una á lög­reglu­stöð en færður til skýrslu­töku um það bil tíu mín­útum síðar. Þar hafi verið haldin yfir honum ræða, eins og hann orðar það, og honum síðan sleppt. Félagi hans, sem hafði orðið vitni að hand­tök­unni, kom og sótti hann og skutl­aði honum heim. Þeir hafi hlegið að mál­inu, sem hafi verið við­brögð við því hversu fárán­leg atburð­ar­rásin var. Það var ekki fyrr en heim var komið sem Atli átt­aði sig á því hvað hafði í raun gerst. „Þá brotn­aði ég niður og fatt­aði hvað þetta var fárán­legt.  Ég fór dag­inn eftir og fékk áverka­vott­orð vegna þessa en það var ekki mikið sem sá á mér, aðeins smá­vægi­leg bólga á kjálka. Ég fór svo og lagði fram kvörtun vegna þessa 11. júlí.“

„Má lög­reglan kannski bara gera fólki upp sakir og lemja það síðan inni í lög­reglu­bíl?“

Atli segir að hann hafi fengið upp­lýs­ingar um það frá nefnd um eft­ir­lit með störfum lög­reglu að þar hafi fólk mót­tekið öll gögn máls­ins 29. ágúst á síð­asta ári. Hann hafi sent kvörtun­ina til lög­regl­unnar 11. júlí hins vegar og því leið rúmur einn og hálfur mán­uður frá því að gögnum máls­ins var skilað til nefnd­ar­innar. „Ég sendi póst á nefnd­ina 29. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og benti á að þá væru liðnir rúmir 90 dagar frá því að hún hefði mót­tekið gögn máls­ins. Í fram­haldi af því spurði ég hvað afgreiðslu þess liði. Í svari við þeim pósti sagði starfs­maður nefnd­ar­innar að málið hefði ekki verið tekið til með­ferðar vegna anna.“

„Það er búið að vera ansi lýj­andi að fá engin svör. Það virð­ist ekk­ert vera að ger­ast í mál­inu og ég er orð­inn hund­þreyttur á því . Þess vegna ákvað ég að skrifa þennan status til að sjá hvort það myndi skapa umræðu og jafn­vel koma hreyf­ingu á hlut­ina. Með hverjum deg­inum sem líður þykir mér þetta fárán­legra. Mér hefur liðið verr og verr yfir þessu og þetta er að angra mig. Þetta er tvennt, ann­ars vegar að hafa verið lam­inn af lög­regl­unni og hins vegar að fá engin svör. Er þetta í lagi? Má þetta kannski bara? Má lög­reglan kannski bara gera fólki upp sakir og lemja það síðan inni í lög­reglu­bíl?“

Fannst harkalega farið með Atla

Jón Sigurður Gunn­ars­son, félagi Atla, varð vitni að hand­tök­unni og segir að hann hafi ekki séð nokkra ástæðu fyrir því hvernig komið var fram við Atla. „Eins og hann segir þá vildi hann ekki gefa upp nafnið sitt, sem maður á auð­vitað að gera. Mér fannst samt ansi harka­lega fram gengið og farið harka­lega með Atla fyrir litlar sakir. Þegar Atli síðan sagði mér frá með­ferð lög­reglu­manns­ins á honum í bílnum þá fannst mér það hins vegar alveg brjálað.“

Lögreglan sendi gögn frá sér í ágúst

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir Lög­reglu­stjóri lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að hún þekki til máls­ins. Hún hafi orðið þess áskynja að í gær­kvöldi að Atli hafi skrifað færsl­una sem er hér til umræðu og þá kannað stöðu málið. Þá hafi komið í ljós að öll gögn er málið varða hafi verið send til nefndar um eft­ir­lit með störfum lög­reglu í ágúst á síð­asta ári.

„Við tökum mjög fast á þessum málum þegar þau koma upp.“

„Við tókum allt saman sem til var og sendum nefnd­inni því við getum ekki skoðað okkur sjálf. Það fór allt frá okkur þarna í ágúst. Við viljum hafa gegn­sæi í þessu. Við erum að inn­leiða búk­mynda­vélar hraðar en til hafði staðið, einmitt til að tryggja sönn­un­ar­stöðu í svona málum. Við höfum líka vikið fólki úr starfi vegna ofbeldis gegn borg­ur­unum og við tökum mjög fast á þessum málum þegar þau koma upp.“

Á að ljúka meðferð innan mánaðar

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu hefur það hlut­verk að taka til athug­unar mál sem beint er til hennar af hálfu borg­ar­anna er varða ætluð refsi­verð brot lög­reglu­manna, ámæl­is­verða hátt­semi þeirra eða fram­komu, auk ann­ars. Í reglum um nefnd­ina sem settar eru af inn­an­rík­is­ráð­herra kemur fram að nefndin skuli greina þau erindi sem henni ber­ast og senda þau til með­ferðar hjá við­eig­andi stjórn­valdi, telji hún ástæði til. Nefndin skal hraða með­ferð máls eftir því sem kostur er og jafn­aði ljúka með­ferð þess innan mán­aðar frá mót­töku til­kynn­ingar. Telji nefndin ekki efni til að vísa til­kynn­ingu borg­ara áfram skal við­kom­andi gerð grein fyrir því ásamt rök­stuðn­ingi.

Stundin óskaði eftir skýr­ingum frá nefnd um eft­ir­lit með störfum lög­reglu á því hvers vegna Atli hefði ekki fengið upp­lýs­ingar um stöðu máls­ins. „Nefndin tjáir sig ekki um ein­stök mál,“ sagði starfs­maður nefnd­ar­innar, Ellen Ósk Eiríks­dóttir, í sam­tali við Stundina. Spurð hvaða skýr­ingar geti hugs­an­lega verið á því að afgreiðsla mála tefj­ist umfram þann mánuð sem til­tekið er að með­ferð skuli að jafn­aði taka end­ur­tók Ellen að nefndin tjáði sig ekki um ein­stök mál en miklar annir væru hins vegar hjá henni þessi miss­erin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár