Hætta tímabundið að gefa DV út á pappír

Ákveðið hefur verið að hætta að prenta DV tíma­bundið. Í stað­inn á að styrkja vef mið­ils­ins. Lestur prentút­gáfu DV hjá öllum ald­urs­hópum var innan við þrjú pró­sent sam­kvæmt könnun Gallup í febr­ú­ar­mán­uði.

DV mun tímabundið hætta að koma út á prenti. Greiðsluseðlar áskrifenda fyrir apríl verða felldir niður.
DV mun tíma­bundið hætta að koma út á prenti. Greiðslu­seðlar áskrif­enda fyrir apríl verða felldir niður.

Ákveðið hefur verið að prentút­gáfa DV fari í tíma­bundið útgáfu­hlé. Þetta kemur fram á vef mið­ils­ins. Útgef­andi DV er Torg ehf., sem einnig er útgef­andi Frétta­blaðs­ins og Hring­brautar.

Heims­far­ald­ur­inn er sagður helsta ástæðan fyrir þess­ari ákvörðun, en hann er sagður hafa „gert aug­lýs­inga­sölu erf­iða og hamlað útgáfu með ýmsum hætti.“

Á vef mið­ils­ins segir að á meðan DV komi ekki út á pappír verði auk­inn kraftur settur í vef­mið­il­inn DV.is og boðað er að nýj­ungar muni líta dags­ins ljós þar á næstu vikum.

DV hefur und­an­farin miss­eri verið viku­blað í áskrift og komið út um helgar. Fram kemur í frétt á vef DV að helg­ar­við­tal blaðs­ins muni áfram birt­ast alla föstu­daga á vefnum, auk þess sem það verði sent þeim sem skrá sig á póst­lista DV í umbrot­inni raf­rænni útgáfu, án end­ur­gjalds. Greiðslu­seðlar áskrif­enda fyrir apríl verða felldir niður.

Lestur blaðs lítill en vefs mikill

Tobba Mar­in­ós­dóttir rit­stjóri DV, sem sagði starfi sínu lausu í lok febr­úar en starfar áfram hjá Torgi, mun fylgja þessum breyt­ingum úr hlaði, sam­kvæmt frétt DV.

Heild­­ar­­lestur prentút­gáfu DV, hjá öllum mældum ald­­ur­s­hóp­um, mæld­ist 2,9 pró­­sent í könnun Gallup um lestur prent­miðla í febr­ú­ar­mán­uði. Af lands­mönnum undir fimm­tugu sögð­ust 2 pró­sent lesa DV í þeirri könnun, sem Kjarninn fjall­aði um nýlega.

Vefur DV er hins vegar einn mest lesni vefur lands­ins og var með um 121 þús­und not­endur á dag að með­al­tali í síð­ustu viku, sam­kvæmt mæl­ingum Gallup. Einungis mbl.is og Vísir eru meira lesnir en vefur DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár