Gróðureldarnir í Ástralíu aðeins upphafið að vandanum

Vonast er til að skóg­ar­eld­arnir í Ástralíu slokkni í kjöl­far regns á næstu mán­uðum en það kann að skapa önnur vanda­mál í land­inu.

Gróðureldarnir í Ástralíu aðeins upphafið að vandanum
Skóg­ar­eldur í Ástralíu Árlega eru miklir skóg­ar­eldar í Ástralíu, en vet­ur­inn 2019 til 2020 hafa þeir verið verri en áður. Mynd: Shutterstock

Miklir gróð­ur­eldar hafa geisað víða um Ástralíu á und­an­förnum vikum. Eldarnir hafa þegar haft víð­tæk áhrif á mann­fólk, önnur dýr og nátt­úru. 

Gróðureldar algengir í Ástralíu

Gróð­ur­eldar eru vel þekkt fyr­ir­bæri í Ástralíu, sem og á öðrum svæðum heims­ins. Í raun eru gróð­ur­eldar hluti af nátt­úru­legu ferli sem á sér stað með reglu­legu milli­bili og eru sumar teg­undir plantna til dæmis háðar reglu­legum eldum til að end­ur­nýja sig. Gróð­ur­eldar eru því upp að vissu marki eðli­legt fyr­ir­bæri.

Þeir gróð­ur­eldar sem nú geisa í Ástralíu eru þó á skala sem eru langt yfir eðli­legum mörkum og eru með þeim allra verstu sem hafa átt sér stað í land­inu til þessa.

Af hverju eru eldarnir í Ástralíu óvenjulegir?

Gróð­ur­eld­arnir sem nú herja á Ástralíu hafa haft hörmu­legar afleið­ingar í för með sér. Svo slæmir eru eld­arnir að í des­em­ber 2019 var lýst yfir neyð­ar­á­standi í land­inu vegna þeirra. Eldarnir hafa þegar leitt til dauða fimm íbúa lands­ins og ger­eyði­lagt yfir 2.500 bygg­ingar í land­inu.

Áhrifin á líf­ríki lands­ins hafa ekki síst vakið athygli á heims­vísu. Talið er að eld­arnir hafi haft áhrif á um hálfan millj­arð dýra. Þar með taldar eru teg­undir sem þegar eru við­kvæmar, svo sem kóala­birnir sem eiga í vök að verj­ast vegna búsvæða­eyð­ingar af manna­völdum.

Árið 2019 var þurrasta ár Ástralíu frá því að mæl­ingar hófust. Að auki hafa miklar hita­bylgjur gengið yfir landið. Þetta tvennt hefur ýtt undir það að gróð­ur­eld­arnir í ár eru eins miklir og raun ber vitni. Heitasta tíma­bili sum­ars­ins í suð­ur­hluta Ástralíu er þó ekki enn náð og má því ætla að staðan fari versn­andi áður en hún skánar.

Rigningu fylgja ný vandamál

Í nýlegri grein um stöðu gróð­ur­eld­anna í Ástralíu fjallar Neville Nicholls, pró­fessor við Monash-háskóla, um það sem búast má við að ger­ist í fram­hald­inu. Að hans sögn benda spár til þess að staðan komi til með að skána á milli febr­úar og mars­mán­aðar. Þá er spáð rign­ingu á þeim svæðum þar sem eld­arnir geisa nú. 

Þó svo að rign­ing myndi vissu­lega vera mik­il­vægur liður í því að vinna bug á gróð­ur­eld­unum er ekki ólík­legt að henni fylgi önnur vanda­mál.

Á und­an­förnum árum hefur þurrka­tíma­bilum í land­inu gjarnan lokið með miklum regn­tíma­bilum. Vegna þess hve þurr gróður og jarð­vegur er eftir langt þurrka­tíma­bil er hann illa und­ir­bú­inn undir mikla rign­ingu. Þetta getur leitt til mik­illa flóða og jafn­vel leift­ur­flóða.

Fellibyljir seinna á ferðinni en vant er

Annar vandi sem gæti steðjað að land­inu er að felli­bylja­tíma­bilið, sem gengur árlega yfir landið, er seinna á ferð­inni en vana­legt er. Þegar að því kemur að tíma­bilið hefj­ist er lík­legt að þeim fylgi strand­flóð sem bætir síst stöð­una.

Það er ekki ólík­legt að staðan í Ástralíu muni versna tölu­vert áður en hún skánar. Tíminn mun síðan leiða í ljós hvort sagan end­ur­taki sig á ný í ár og ekki síður hvort við­kvæmt líf­ríki lands­ins nái sér á strik í milli­tíð­inni.

Afleið­ingar eld­anna eru enn ein áminn­ing um áhrif lofts­lags­breyt­ing­anna á jörð­ina. Búist er við að öfgar í veð­ur­fari haldi áfram að aukast á ákveðnum svæðum heims­ins. Slíkt hefur í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir íbúa sem og annað líf­ríki á þeim svæðum sem veð­urofs­inn snertir.

Ítarefni

Búist við felli­byljum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár