Spáð 2,6 prósenta hagvexti í ár

Gera má ráð fyrir að hag­kerfið vaxi um 2,6 pró­sent í ár, sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu. Búist er við meira atvinnu­leysi og hærri verð­bólgu í ár heldur en í fyrra.

Hagstofa reiknar með 2,6 pró­senta hag­vexti í ár og 4,8 pró­senta hag­vexti á næsta ári. Hins vegar er spáð 7,8 pró­senta atvinnu­leysi og 3,2 pró­senta verð­bólgu að með­al­tali í ár, sem er meira en í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtri þjóð­hags­spá Hagstofu fyrir árin 2021-2024.

Gangi þjóð­hags­spáin eftir verður hag­kerfið orðið næstum því jafn­stórt í árs­byrjun 2023 og það var í byrjun síð­asta árs. Í ár ætti aukin einka­neysla og meiri fjár­fest­ing að leiða hag­vöxt­inn, en búist er við að fram­lag útflutn­ings til hag­vaxtar verði mest á næsta ári.

Hag­vaxt­ar­spá Hagstofu fyrir þetta ár er svipuð þeirri sem Seðla­bank­inn gerði í nóv­em­ber á síð­asta ári, en þar spáði hann 2,3 pró­senta vexti. Íslands­banki var þó nokkuð bjart­sýnni í þjóð­hags­spá sinni í jan­úar, en þar bjóst hann við að hag­kerfið myndi vaxta um 3,2 pró­sent.

Fjárfesting fyrst, svo ferðaþjónustan

Samkvæmt Hagstofu mun atvinnu­leysi ná hámarki í ár og fara svo minnk­andi með bata í ferða­þjón­ustu á spá­tím­anum. Ekki er búist við fullum bata í grein­inni í ár, en þó er gert ráð fyrir rúm­lega 10 pró­senta vexti í útflutn­ingi, miðað við síð­asta ár. Á næsta ári er svo búist við 16,8 pró­senta vexti í útflutn­ingi.

Hag­stofan gerir ráð fyrir 18 pró­senta vexti í fjár­fest­ingum hins opin­bera í ár, en hún dróst saman um rúm 7 pró­sent í fyrra. Einnig er talið að atvinnu­vega­fjár­fest­ing taki við sér á spá­tím­anum og auk­ist um 6,9 pró­sent í ár og 7,8 pró­sent á næsta ári. Þar ætti sögu­lega lágur fjár­magns­kostn­aður í formi lágra vaxta að styðja við þessa þróun.

Minni íbúðafjárfesting og meiri verðbólga

Hins vegar er búist við áfram­hald­andi sam­drætti í íbúða­fjár­fest­ingu og gert ráð fyrir að hún verði 6,7 pró­sentum minni í ár. Samkvæmt Hagstofu leiddi sam­dráttur í þess­ari teg­und fjár­fest­ingar í fyrra, sam­hliða auk­inni eft­ir­spurn, til hærra íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Einnig telur Hag­stofan að verð­bólga verði meiri í ár heldur en í fyrra. Reiknað er með að hún nái 3,2 pró­sentum að með­al­tali í ár, en haldi sér svo í 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans næstu árin. Til sam­an­burðar var verð­bólgan að með­al­tali 2,8 pró­sent í fyrra.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár