„Ástæður til að hafa ákveðnar áhyggjur af smitinu sem greindist í gær“

Lík­leg­ast er búið að ná utan um hóp­sýk­ingu sem kom upp fyrir um tveimur vikum. „Við sjáum það að veiran er ekki með öllu horfin og ef við pössum okkur ekki getum við fengið aðra bylgju í bakið,“ sagði Þórólfur

Á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag sagð­ist Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, binda vonir við að sú hrina smita sem greinst hafi hér inn­an­lands fyrir tæp­lega tveimur vikum væri nú afstaðin. Ekki sé þó hægt að úti­loka sam­fé­lags­legt smit en einn greind­ist inn­an­lands með virkt smit í gær en sá ein­stak­lingur var ekki í sótt­kví.

„Það eru ástæður til að hafa ákveðnar áhyggjur af smit­inu sem greind­ist í gær utan sótt­kvíar. Við erum nú á fullu að rekja það smit og setja fólk í sótt­kví og skima í kringum þennan ein­stak­ling eins og hægt er,“ sagði Þórólfur. Hann hvatti fólk ein­dregið til að huga að per­sónu­legum sótt­vörnum eftir sem áður og til að fara í sýna­töku ef fólk yrði vart við ein­kenni COVID-19. Nú sé mik­il­vægt að passa sig: „Við sjáum það að veiran er ekki með öllu horfin og ef við pössum okkur ekki getum við fengið aðra bylgju í bakið.“

Hann sagði að enn greind­ist fólk smitað á landa­mær­unum og heldur fleiri und­an­farið en verið hefur oft áður. Í gær hefi einn ein­stak­lingur greinst með virkt smit en 340 sýni voru tekin. Flestir sem greindust á landa­mær­unum væru með breska afbrigði veirunnar en hingað til hefði einn ein­stak­lingur greinst með suður-afríska afbrigðið.

Frá 19. febr­úar hafa 30 manns af þeim 34 sem greinst hafa með COVID-19 eftir kom­una til lands­ins fram­vísað nei­kvæðu PCR vott­orði. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hann sagði helm­ing­inn af þeim 34 sem greinst með COVID-19 eftir kom­una til lands­ins hafa greinst á landa­mær­unum en hinn helm­ing­ur­inn hafa greinst í seinni skimun.

Ekki skynsamlegt að taka bara við vottorðum frá fólki innan EES

Þá fjall­aði Þórólfur um und­an­þágur fyrir þá sem hafa bólu­setn­ing­ar­vott­orð eða vott­orð um fyrri sýk­ingu. Hann sagði að frá 15. jan­úar hafi verið í gildi reglu­gerð um að ein­stak­lingar frá löndum innan EES með vott­orð um bólu­setn­ingar hafi verið und­an­þegnir skimunum sem og ein­stak­lingar utan EES með bólu­setn­ing­ar­vott­orð frá alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni.

„Þessi ráð­stöfun hefur gengið ágæt­lega. Til þessa hafa um fimm pró­sent far­þega fram­vísað slíkum vott­orðum. Ég var sjálfur dálítið hik­andi um þessa ráð­stöfun í byrjun en þá einkum vegna þess að það lá ekki fyrir nið­ur­stöður rann­sókna um hvort bólu­settir ein­stak­lingar gætu borið með sér smit eða ekki,“ sagði Þórólfur. Fréttir frá Ísrael benda hins vegar til að áhættan af smitum sé lítil.

Þá hafa vott­orð um fyrri sýk­ingu verið tekin gild fyrir fólk sem kemur frá EES löndum og það því ekki þurft að fara í skimun síðan í des­em­ber. „Að mínu mati fannst mér ekki skyn­sam­legt að taka bara vott­orð frá fólki innan EES heldur fannst mér það skyn­sam­legt að það myndi líka gilda um fólk sem hefur sýkst og smit­ast utan EES. Þess vegna lagði ég það til við ráð­herra þann 13. síð­ast­lið­inn að vott­orð um fyrri sýk­ingu hjá fólki utan EES yrði líka tekin gild.“

Opnun ytri landamæra Schengen hins vegar ákvörðun dóms­mála­ráð­herra. „Það sem dóms­mála­ráð­herra hefur lagt til um það að opna ytri landa­mæri Schengen fyrir öllum sem eru með bólu­setn­ing­ar­vott­orð eða vott­orð um fyrri sýk­ingu, það er ákvörðun sem að dóms­mála­ráð­herra hefur tekið og sótt­varna­læknir eða ég hef ekki haft neina aðkomu að því. Þessi reglu­gerð hefur ekki tekið gildi og mér er ekki kunn­ugt hvenær reglu­gerðin mun koma til fram­kvæmda,“ sagði Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár