VÍ og VR ósammála um hlut heimila í efnahagsviðbrögðum ríkisins

VR hefur haldið því fram að stuðn­ings­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar í krepp­unni hafi fyrst og fremst verið fyrir atvinnu­lífið, á meðan Við­skipta­ráð segir heim­ilin í land­inu vera þunga­miðja úrræð­ana. Hvort er það?

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands Mynd: Samsett

Samkvæmt nýjum útreikn­ingum Við­skipta­ráðs hafa 70 pró­sent fjár­magns­ins sem rík­is­stjórnin hefur varið í efna­hagsúr­ræði til að sporna gegn áhrifum yfir­stand­andi kreppu runnið að ein­hverju leyti til heim­il­anna. Þetta er langtum hærra hlut­fall en VR fékk í útreikn­ingum sínum í nóv­em­ber á síð­asta ári, en sam­kvæmt þeim myndu ein­ungis 13 pró­sent af fjár­magn­inu renna til heim­il­anna.

Munurinn á útreikn­ingum VR og Við­skipta­ráðs felst í mis­mun­andi skil­grein­ingu því hvaða útgjalda­liðir rík­is­sjóðs telj­ast til sér­stakra úrræða rík­is­stjórn­ar­innar. Einnig eru stofn­an­irnar ósam­mála um það hvort ein­stök úrræði renni til heim­ila eða fyr­ir­tækja.

Hlutabótaleiðin talin gagnast báðum

Í útreikn­ingum VR eru fjár­munir sem fóru í hluta­bóta­leið rík­is­stjórn­ar­innar, sem fól í sér launa­greiðslur starfs­manna í skertu starfs­hlut­falli, flokk­aðir sem stuðn­ingur við fyr­ir­tæki.

Samkvæmt Við­skipta­ráði fellur hluta­bóta­leiðin hins vegar í flokk úrræða sem gagn­ast bæði fyr­ir­tækjum og heim­ilum, þar sem hún gerir fyr­ir­tækjum kleift að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi með sem minnstri skerð­ingu á tekjum ein­stak­linga. Sömu sögu er að segja um nið­ur­greiðslur launa á upp­sagn­ar­fresti, sem VR flokkar sem styrkur til fyr­ir­tækja, en Við­skipta­ráð flokkar sem styrkur til bæði heim­ila og fyr­ir­tækja.

Misræmi í aðgerðum til að greiða fyrir innflutningi

Samkvæmt Við­skipta­ráði eru úrræði stjórn­valda til stuðn­ings fyr­ir­tækjum skipt í þrjá flokka: Í fyrsta flokknum eru greiðslu­hlé lána, en sam­tökin telja að þau séu ígildi 27 millj­arða króna stuðn­ings. Í öðrum flokki eru svo brúar- og stuðn­ings­lán, og í þeim þriðja eru tekju­falls- og lok­un­ar­styrkir, auk frestun gjalda. Þessir liðir eru hvor um sig taldir nema 12 millj­örðum króna.

Samkvæmt útreikn­ingum VR höfðu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til að greiða fyrir inn­flutn­ingi. kostað rík­is­sjóð rúm­lega 20 millj­arða króna í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þessar aðgerðir fela í sér nið­ur­fell­ingu toll­af­greiðslu­gjalds vegna flug­véla og skipa og frestun gjald­daga aðflutn­ings­gjalda, en Við­skipta­ráð greinir ekki sér­stak­lega frá þeim í sínum útreikn­ingum.

Atvinnuleysisbætur taldar með, en ekki minni tekjuskattur

Stærsta mis­ræmið milli útreikn­inga Við­skipta­ráðs og VR er þó vegna þess að Við­skipta­ráð telur aukin útgjöld atvinnu­leys­is­bóta með í úrræðum rík­is­ins í krepp­unni. Samtökin bæta þó við að þessi útgjöld, sem talin eru hafa styrkt heim­ili um 34 millj­arða króna, köll­uðu ekki á sér­stakar ákvarð­anir rík­is­stjórn­ar­innar, heldur séu þau svokölluð sjálf­virk sveiflu­jöfn­unar­úr­ræði, sem hafi komið heim­ilum til góðra nota.

Samkvæmt Við­skipta­ráði voru ekki til staðar sam­bæri­leg sveiflu­jafn­andi úrræði fyrir fyr­ir­tæki þegar far­ald­ur­inn hófst. Ef litið er hins vegar á skýrslu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í krepp­unni sést að sjálf­virkir sveiflu­jafn­arar fela bæði í sér aukin útgjöld vegna atvinnu­leys­is­bóta og lægri inn­heimtu tekju­skatta og trygg­inga­gjalds.

Ætla má að fyr­ir­tæki hafi borgað umtals­vert minna í tekju­skatt á síð­asta ári vegna krepp­unnar, en sam­kvæmt nýjum tölum Hagstofu minnk­uðu heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs um 44,6 millj­arða króna í fyrra, miðað við árið 2019.

Hvað með séreignarsparnaðinn?

Annað mis­ræmi milli útreikn­ing­anna sam­tak­anna tveggja var að Við­skipta­ráð tekur með útgreiðslu sér­eign­ar­sparn­aðs ein­stak­linga sem stuðn­ings­úr­ræði stjórn­valda til heim­ila. Þennan lið, nemur 26 millj­örðum króna, tekur VR hins vegar ekki með í reikn­ing­inn sem úrræði stjórn­valda, þar sem sparn­að­ur­inn sem tek­inn er út sé í eigu heim­il­anna.

Aftur á móti telur VR að útgreiðsla sér­eign­ar­sparn­aðar hafi falið í sér nei­kvætt fram­lag hins opin­bera til heim­il­anna, þar sem sparn­að­ur­inn hafi verið stað­greiðslu­skyldur, og að úttekt hans hafi leitt til 7,5 millj­arða króna tekju­aukn­ingar ríkis og sveit­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár