Bjarni býst ekki við að Bankasýslan mæli með arðgreiðslum

Fjár­mála­ráð­herra þykir það ekki lík­legt að Banka­sýsla rík­is­ins mæli með því að Íslands­banki greiði út arð áður en ríkið selji eign­ar­hlut sinn í því í sumar.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra þykir það ekki lík­legt að Banka­sýsla rík­is­ins leggi til að Íslands­banki greiði út arð áður en 25 til 35 pró­senta eign­ar­hlutur hans verði skráður á hluta­bréfa­markað. Hann vill líka losa enn frekar um eign­ar­hald bank­ans á næsta ári, gangi þessi sala vel.

Þetta sagði Bjarni á opnum hádeg­is­fundi á vegum efna­hags- og við­skipta­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær, þar sem hann fór yfir fyr­ir­hug­aða sölu rík­is­ins á hluta eignar í Íslands­banka og svar­aði spurn­ingum fund­ar­gesta.

Vill losa enn frekar um eignarhald á næsta ári

Á fund­inum sagð­ist Bjarni meta það svo að ríkið ætti jafnt og þétt að losa um eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka og benti á að stefnt væri að fullri einka­væð­ingu bank­ans til langs tíma í eig­enda­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Þó segir hann að frek­ari ákvarð­anir um sölu eign­ar­hluta verði ekki teknar af þess­ari rík­is­stjórn, þar sem eitt ár þurfi að líða eftir að salan eigi sér stað þangað til enn frek­ari sala geti haf­ist.

Þó segir Bjarni að það ætti strax að koma til skoð­unar á næsta ári að losa enn frekar um eign­ar­hald rík­is­ins á bank­anum, gangi fyr­ir­huguð sala upp í ár.

Sterk eiginfjárstaða álitlegri í augum fjárfesta

Bjarni minnt­ist einnig á mögu­lega arð­greiðslu Íslands­banka til rík­is­ins fyrir skrán­ingu á markað, þar sem mörgum þyki mikið umfram eigið fé vera í bönk­unum. Samkvæmt þaki sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur sett á arð­greiðslur bank­anna fram á haustið vegna óvissunnar í efna­hags­líf­inu væri í mesta lagi mögu­leiki á arð­greiðslu upp á 3 til fjóra millj­arða króna fram í haust.

Bjarni taldi það ekki lík­legt að Banka­sýsla rík­is­ins myndi leggja til að slíkar arð­greiðslur myndu eiga sér stað fyrir skrán­ingu bank­ans á hluta­bréfa­mark­aði. „Ég held að við megum frekar gera ráð fyrir því að vel fjár­magn­aður banki með sterka lausa­fjár­stöðu sé lík­legri til að laða að sér fjár­festa heldur en banki sem hefur tæmt úr sjóðum sínum,“ bætti Bjarni við á fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár