Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkaði um fjórðung á síðasta ári

Samtals fékk 631 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi árið 2020 til sam­an­burðar við 531 ein­stak­ling 2019.

Úr 1. maí göngu árið 2019.
Úr 1. maí göngu árið 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Umsóknir um alþjóð­lega vernd árið 2020 voru 654 og fækk­aði um fjórð­ung frá árinu 2019. Mestu sveifl­urnar á fjölda umsókna voru sam­fara útbreiðslu COVID-19 far­ald­urs­ins og þeim við­brögðum sem gripið var til á landa­mærum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Útlend­inga­stofn­unar um umsóknir um alþjóð­lega vernd fyrir árið 2020.

Stofn­unin afgreiddi 685 umsóknir í efn­is­legri með­ferð, þar af fjórð­ung í for­gangs­með­ferð. Alls fengu 528 umsækj­endur jákvæða nið­ur­stöðu. Þar af fékk 121 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd, 338 við­bót­ar­vernd og 69 dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. Til sam­an­burðar afgreiddi stofn­unin 376 umsóknir með veit­ingu árið 2019 og höfðu þær þá aldrei verið fleiri, að því er fram kemur hjá stofn­un­inni.

Rúmur helm­ingur þeirra sem fengu jákvæða nið­ur­stöðu kom frá Venes­ú­ela, Írak og Sýrlandi en sam­tals voru það ein­stak­lingar af 32 þjóð­ernum.

Til við­bótar við þá 528 umsækj­endur sem fengu jákvæða nið­ur­stöðu hjá Útlend­inga­stofnun á árinu, fengu 103 ein­stak­lingar alþjóð­lega vernd eða mann­úð­ar­leyfi hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála eða vernd sem aðstand­endur flótta­manna. Samtals fékk því 631 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum árið 2020 til sam­an­burðar við 531 ein­stak­ling 2019.

Stærstu hópar umsækjenda frá Palestínu, Írak og Venesúela

Fram kemur hjá Útlend­inga­stofnun að framan af ári hafi rík­is­borg­arar Venes­ú­ela verið fjöl­menn­asti hópur umsækj­enda en komum þeirra til lands­ins fækk­aði mjög í kjöl­far inn­leið­ingar ferða­tak­mark­ana í síð­ari hluta mars­mán­aðar. Þegar litið er á árið í heild voru stærstu hópar umsækj­enda rík­is­borg­arar Palest­ínu, Írak og Venes­ú­ela.

End­ur­teknar umsóknir voru 25, níu umsóknir komu frá börnum sem fædd­ust hér á landi á meðan mál for­eldra þeirra voru til með­ferðar og tólf umsækj­endur sögð­ust vera fylgd­ar­laus ung­menni.

140 einstaklingum synjað um efnislega meðferð

Útlend­inga­stofnun tók 825 ákvarð­anir vegna umsókna um alþjóð­lega vernd sem vörð­uðu 766 ein­stak­linga en í 56 málum var tekin fleiri en ein ákvörðun. 79 ein­stak­lingar til við­bótar drógu umsókn sína um vernd til baka eða hurfu frá henni. 140 ein­stak­lingum var synjað um efn­is­lega með­ferð umsóknar um vernd, 52 á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og 88 á grund­velli þess að njóta þegar verndar í öðru Evr­ópu­ríki.

Vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins gerði Útlend­inga­stofnun tíma­bundnar breyt­ingar á mati sínu á því hvaða umsóknir skyldu fá efn­is­lega með­ferð og voru 62 ákvarð­anir um synjun á efn­is­legri með­ferð aft­ur­kall­aðar í kjöl­farið og málin tekin til efn­is­með­ferðar.

Tæp 40 prósent allra mála afgreidd á innan við þremur mánuðum

Með­al­máls­með­ferð­ar­tími hjá Útlend­inga­stofnun stytt­ist milli áranna 2019 og 2020 í öllum teg­undum máls­með­ferðar nema for­gangs­með­ferð, að því er fram kemur hjá stofn­un­inni. Þegar litið er til allra afgreiddra mála stytt­ist með­al­af­greiðslu­tími umsókna úr 144 dögum í 130 daga. Mest stytt­ist með­al­af­greiðslu­tími í hefð­bund­inni efn­is­með­ferð, eða um 57 daga, og í máls­með­ferð á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, eða um 24 daga.

Tæp 40 pró­sent allra mála voru afgreidd á innan við þremur mán­uðum og tæp 40 pró­sent á þremur til sex mán­uðum. Fimmt­ungur mála var afgreiddur á sex til tólf mán­uðum og þrjú pró­sent mála tók lengri tíma en eitt ár að afgreiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár