201 framúrskarandi fyrirtæki á hlutabótaleið

Fyr­ir­tæki sem Creditinfo hefur skil­greint sem fram­úr­skar­andi voru lík­legri til að hafa farið á hluta­bóta­leið­ina en önnur virk fyr­ir­tæki hér á landi, en tæpur fjórð­ungur þeirra nýttu sér úrræðið í vor.

Fjöldi fyrirtækja fór á hlutabótaleið í kjölfar lokana vegna veirufaraldursins í vor.
Fjöldi fyr­ir­tækja fór á hluta­bóta­leið í kjöl­far lok­ana vegna veiru­far­ald­urs­ins í vor. Mynd: Bára Huld Beck

Af þeim 842 fyr­ir­tækjum sem Creditinfo skil­greinir sem fram­úr­skar­andi fékk 201 þeirra nið­ur­greidd laun fyrir starfs­menn þeirra í gegnum hluta­bóta­leið­ina í byrjun COVID-19 far­ald­urs­ins í vor. Þetta jafn­gildir 23 pró­sentum af öllum fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækjum, en um 16 pró­sent allra virkra fyr­ir­tækja nýttu sér úrræðið.

Þetta kemur fram ef listi Creditinfo er bor­inn saman við lista Vinnu­mála­stofn­unar yfir þau fyr­ir­tæki sem voru í hluta­bóta­leið­inni í vor.

Samkvæmt Creditinfo þurfa fyr­ir­tæki meðal ann­ars að vera með gott láns­hæfi og hafa skilað rekstr­ar­hagn­aði síð­ustu þrjú ár til að vera skil­greind sem fram­úr­skar­andi, auk þess sem eig­in­fjár­hlut­fall þess þarf að hafa verið að minnsta kosti 20% síð­ustu þrjú árin. Rekstrar- og eigna­staða þeirra byggir á árs­reikn­ingum fyrir árið 2019.

Alls voru 842 fyr­ir­tæki skil­greind sem fram­úr­skar­andi í ár og hafði þeim fækkað um 45 frá árinu 2017. Samkvæmt Creditinfo gæti fækk­unin á list­anum bent til þess að kólnun hafi átt sér stað í íslensku atvinnu­lífi í fyrra, en fyr­ir­tækið telur það þó vera gott merki að fækk­unin sé hlut­falls­lega lítil og merki um að íslenskt atvinnu­líf hafi staðið sterkum fótum við síð­ustu ára­mót.

Af þessum 842 fyr­ir­tækjum voru 115 bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki, 64 ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, auk tæp­lega 60 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og 30 vátrygg­inga­fyr­ir­tækja. Alls voru þau tvö pró­sent allra virkra fyr­ir­tækja hér á landi, sem eru þá rúm­lega 41 þús­und tals­ins.

Samkvæmt Vinnu­mála­stofnun nýttu um 6.700 fyr­ir­tæki sér hluta­bóta­leið­ina í vor, en það jafn­gildir 16 pró­sent af öllum virkum fyr­ir­tækjum hér á landi. Af þessum fyr­ir­tækjum skil­greinir Creditinfo 201 þeirra sem fram­úr­skar­andi. Því voru 23 pró­sent fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár