Íslenska eilífðarþorpið og dularfulli auðjöfurinn

Rann­sóknin á leynd­ar­dómum Eyði­hússin er skemmti­legt, ljóð­rænt og ímynd­un­ar­ríkt ævin­týri úr íslenska eilífð­ar­þorp­inu, með ótal góðum vís­unum í heims­bók­menntir æsk­unnar.

Snæbjörn Arngrímsson
Snæbjörn Arn­gríms­son Bókin hans, Rann­sóknin á leynd­ar­dómum Eyði­húss­ins, ger­ist öll í smá­þorp­inu Álftabæ, sem er þó sam­kvæmt for­mála bók­ar­innar sem kall­ast „Stað­reyndir“ raun­veru­legt þorp hvers nafni hefur verið breytt til að vernda íbú­ana. Mynd: Forlagið

Það borgar sig ekki að dæma Rann­sókn­ina á leynd­ar­dómum Eyði­húss­ins af káp­unni, enda verð­skuldar bókin bæði betri kápu og raunar betri titil líka. Kápan er alltof ofhlaðin, þótt ýmis­legt við hana skýrist þegar líður á lest­ur­inn, en hins vegar eru mynd­skreyt­ingar á allra fyrstu og síð­ustu opnu bók­ar­innar mun betur heppn­aðar. Tit­ill­inn er svo ekki bara langur og þvæl­inn, heldur ýtir hann dálítið undir þann mis­skiln­ing að þetta sé ráð­gátu­bók – og þótt hún sé það kannski að ein­hverju leyti þá er þetta miklu frekar spennu­saga.

Sagan ger­ist öll í smá­þorp­inu Álftabæ, sem er þó sam­kvæmt for­mála bók­ar­innar sem kall­ast „Stað­reyndir“ raun­veru­legt þorp hvers nafni hefur verið breytt til að vernda íbú­ana. Kankvís­legur leikur höf­undar og les­enda hefst strax þarna, það er fátt sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár