39 staðfest smit – aðgerðir hertar

Staðfest virk smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 39 hér á landi. Einn hefur verið lagður inn á sjúkra­hús með COVID-19. Til­fellum af COVID-19 hefur því fjölgað um tíu síðan í gær.

Staðfest virk smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 39 hér á landi. Einn hefur verið lagður inn á sjúkra­hús með COVID-19. Til­fellum af COVID-19 hefur því fjölgað um tíu síðan í gær.

Í gær voru stað­fest smit 28 og af þeim höfðu átján ein­stak­lingar smit­ast hér á landi.

Í dag eru 215 manns komin í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 187.

Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis, sagði á blaða­manna­fundi í dag að stór hóp­sýk­ing væri nú á suð­vest­ur­horni lands­ins sem hafi fimm aðskilda anga sem þó allir tengj­ast. 24 ein­stak­lingar telj­ast til þeirrar hóp­sýk­ingar. Þá eru fjórir ein­stak­lingar í annarri hóp­sýk­ingu.

Mjög margir af þeim sem greindust í gær voru í sótt­kví en ekki allir. Því er ekki vitað hversu margir endi í sótt­kví eftir dag­inn.

Ýmsar sam­komu­tak­mark­anir munu taka gildi á hádegi á morgun. Þá mega aðeins 100 manns koma saman í stað 500 nú. Tveggja metra reglan verður tekin upp aftur og nú sem skil­yrði. Verði henni ekki við­komið skal fólk bera and­lits­grímur sagði heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag.

Alma Möller land­læknir sagði að til þess að skimun á landa­mærum virki þurfi að skerpa á tvennu: Fólk verði algjör­lega að halda sig til hlés þar til nið­ur­stöður úr fyrri skimun hafa borist. „Við biðjum alla, meðal ann­ars aðila í ferða­þjón­ustu að þetta sé virt.“

Í öðru lagi fór hún yfir mik­il­vægi heim­komusmit­gátar. „Það er afar mik­il­vægt að fólk virði hana í hví­vetna,“ sagði Alma og benti á að ef það yrði ekki gert gæti þurft að breyta henni yfir í sótt­kví. Á meðan fólk bíður eftir nið­ur­stöðum úr seinni sýna­töku á það að halda sig frá vinnu, ekki fara á manna­mót eða í veislur ef þar eru fleiri en tíu manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár