Mynd: Davíð Þór

Varpar nýju ljósi á kvenímyndir úr goðsögnum

Ástralska lista­konan Nara Walker endur­túlkar sögur af þremur konum úr vestrænum goðsögnum á nýjan og vald­eflandi hátt í nýrri myndlistar­sýningu sinni. Nara segist vera fórnar­lamb feðra­veldisins og nýtir reynslu sína sem innblástur til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi.

„Þegar ég var unglingur og í háskóla átti ég það gjarnan til að nota hendurnar mínar við list­sköpun, jafnvel þegar ég var að mála. Í þessu verki byrjaði ég á að teikna höndina mína á strigann, og allt hitt spratt þaðan.“

Svona lýsir Nara Walker, áströlsk listakona, uppsprettu að fyrsta málverkinu sem hún sýnir blaða­manni Stundarinnar í stúdíóinu sínu og er hluti af væntanlegri sýningu hennar. Blóðrautt handfar í horninu verður að óreiðu­fullri lita­sprengingu þar sem dökk form keppast um athygli áhorf­andans. Auk handar­farsins má finna eitthvað sem líkist auga, eggi, andliti, lindýri og fleiri óræð form.

Hún segir að þetta hafi verið fyrsta málverkið sem hún skapaði eftir að hafa losnað úr fangelsi í vor. Nara var sakfelld í fyrra fyrir stórfellt ofbeldis­brot eftir að hafa bitið bút úr tungu þáverandi eigin­manns síns og ráðast á vinkonu hans. Hún hefur ávallt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið undanfarið ár