Síðustu dagarnir fyrir fangelsið

Hún hefur grátið og hún hefur grínast, í tilraun til að komast yfir þá súrrealísku stöðu að vera á leið í fangelsi. Nara Walker var dæmd fyrir að beita eiginmann sinn og vinkonu hans ofbeldi, en fangelsun hennar er mótmælt á grund­velli þess að maðurinn var ekki dæmdur fyrir ofbeldi gegn henni.

Nara málar sig. Hún má ekki taka með sér krem og snyrtivörur inn í fangelsið, fyrir utan einn maskara.
Nara málar sig. Hún má ekki taka með sér krem og snyrti­vörur inn í fang­elsið, fyrir utan einn mask­ara. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bless, frjálsa líf,“ segir Nara Walker og lokar dyrunum að heimili sínu á eftir sér. „Ég hefði viljað ná að hlusta á eitt lag til viðbótar áður en ég fer inn. Síðasta lagið,“ segir hún en bætir því við að hún geti hlustað á tónlist í bílnum. Hún dregur litla ferða­tösku á eftir sér niður stigann, aðrar eigur hennar standa í töskum og pokum inni í íbúðinni og bíða þess að verða sóttar. Sjálf er hún á leið í fangelsi, þar sem hún mun afplána þann hluta dómsins sem var ekki skilorðs­bundinn á Hólms­heiði. Alls var hún dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir að bíta tungu­broddinn af eigin­manni sínum og ráðast á vinkonu hans. „Þetta er súrrealískt,“ segir hún. 

Ljós­myndari Stundarinnar hefur fylgt Nöru eftir þessa síðustu daga fyrir fangelsið. Á þeim tíma reyndi hún að koma öllum upplýsingum á framfæri varðandi dómsmálið og finna tilgang í þeirri baráttu.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár