Almenningur treystir síst Alþingi, borgarstjórn og bankakerfinu

Eitt af mark­miðum sitj­andi rík­is­stjórnar sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála var að efla traust á stjórn­mál og stjórn­sýslu. Í dag er traust á Alþingi sex pró­sentu­stigum minna en það var í upp­hafi kjör­tíma­bils, þótt að hafi auk­ist umtals­vert frá því í fyrra.

Alþingi hefur ekki tekist að endurheimta það traust sem hefur tapast frá byrjun árs 2018.
Alþingi hefur ekki tek­ist að end­ur­heimta það traust sem hefur tap­ast frá byrjun árs 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Alls bera 23 pró­sent lands­manna traust til Alþingis sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup sem mælir árlega traust til stofn­ana sam­fé­lags­ins. Það eykst um fimm pró­sentu­stig milli ára en Alþingi er samt sem áður í þriðja neðsta sæti yfir þær stofn­anir sem almenn­ingur treystir minnst. Fyrir neðan Alþingi eru ein­ungis annar stjórn­vald, borg­ar­stjórn Reykja­víkur (17 pró­sent traust) og banka­kerfið (21 pró­sent).

Mest traust er til Land­helg­is­gæsl­unnar (89 pró­sent) og for­seta Íslands (79 pró­sent). Traust til heil­brigð­is­kerf­is­ins hefur hrunið niður um tólf pró­sentu­stig á einu ári, mælist nú 57 pró­sent, og traust á dóms­kerfið dregst saman um tíu pró­sent og mælist 37 pró­sent.

Traust til Seðla­banka Íslands hefur hins vegar tekið 14 pró­sentu­stiga stökk upp á við og mælist 45 pró­sent. Seðla­banka­stjóra­skipti urðu á síð­asta ári þegar Ásgeir Jónsson tók við starf­inu af Má Guð­munds­syni, sem hafði gegnt því í ára­tug. Auk þess var Fjár­mála­eft­ir­litið sam­einað Seðla­bank­anum um síð­ustu ára­mót.

Greint var frá þjóð­ar­púlsi Gallup á RÚV í gær­kvöldi.

Minna traust en í upphafi árs 2018

Alþingi, lög­gjafa­sam­kunda Íslands, hefur átt við mikla trausterf­ið­leika að stríða allt fá hruni. Í síð­ustu mæl­ingu Gallup á trausti til Alþingis fyrir þann atburð var nið­ur­staðan sú að 42 pró­sent þjóð­ar­innar treystu Alþingi. Árin eftir hrunið fór það niður í 10 til 13 pró­sent.

[adspot]Svo virt­ist sem að traustið væri aðeins að ná sér á strik árið 2014 þegar það mæld­ist 24 pró­sent, en svo komu Panama­skjölin ári síðar og það lækk­aði aftur um nokkur pró­sentu­stig. Í byrjun árs 2017 var mynduð ný rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar og traustið mæld­ist 22 pró­sent. Hún sat í nokkra mán­uði og sprakk í sept­em­ber sama ár vegna upp­reist æru-máls­ins.

Aftur var kosið, í annað sinn á einu ári, og við tók rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur í des­em­ber 2017.

Í stjórn­ar­sátt­mála hennar er lögð umtals­verð áhersla á traust. Þar stendur meðal ann­ars: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu.“

Í fyrstu mæl­ingu sem rík­is­stjórnin fékk tók traustið kipp upp á við og mæld­ist 29 pró­sent. Það var sögu­lega enn lágt, og langt frá því sem var fyrir banka­hrun að jafn­aði, en meira en nokkru sinni eftir þann atburð.

Í fyrra hrundi það svo aftur og mæld­ist 18 pró­sent, og hafði ekki mælst lægra frá því í upp­hafi febr­úar 2016. Ástæðan var nær örugg­lega tengd, að minnsta kosti að hluta, Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða og því hvernig Alþingi tókst á við það mál.

Nú hækkar traustið lít­il­lega en er enn sex pró­sentu­stigum frá fyrstu mæl­ingu sitj­andi rík­is­stjórnar. Því virð­ist sem end­ur­heimt trausts hafi, að minnsta kosti enn sem komið er, ekki gengið eftir.

Borgarstjórn náði sér tímabundið en hefur dalað hratt

Traust til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur er á svip­uðum slóðum og þegar Gallup mældi það fyrst eftir hrunið, í febr­úar 2009, eða nokkrum mán­uðum eftir banka­hrun. Þá var traustið 18 pró­sent. Ári áður, í febr­úar 2008, hafði það reyndar mælst enn lægra, eða níu pró­sent. Það er í eina skiptið sem stjórn­vald hefur mælst með undir tíu pró­sent traust. Þá hafði gengið mikið á í borg­ar­stjórn en alls fjórir meiri­hlutar sátu við völd það kjör­tíma­bil.

Traustið lag­að­ist hægt og rólega og árin 2014 og 2015, við lok borg­ar­stjórn­ar­fer­ils Jóns Gnarr og við upp­haf borg­ar­stjórn­ar­fer­ils Dags B. Egg­erts­sonar, mæld­ist það 31 pró­sent.

Það hefur dalað á und­an­förnum árum og er þá þróun ugg­laust hægt að rekja til hneyksl­is­mála eins og Bragga­máls­ins svo­kall­aða og harð­vít­ugra átaka meiri­hluta og minni­hluta á vett­vangi borg­ar­stjórnar um flest mál sem þangað rata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár