Hringlað um kjarnann í þjóðarkarakternum

Í nýju bók Huldars Breið­fjörð, Sól­ar­hringli, er hann að hluta á svip­uðum slóðum og í Góðum Íslend­ingum; aftur er lýst ferða­lagi í kringum Ísland, en einnig ann­ars konar ferðum; til útlanda, um forn­bók­menntir, um hinn stagl­sama hvers­dag: „Skutla, vinna, sækja, versla, elda“.

Hringlað um kjarnann í þjóðarkarakternum
Huldar Breið­fjörð Ný skáld­saga hans, Sól­ar­hringl, skipt­ist í tíu mis­langa kafla. Hver kafli ber eigin yfir­skrift, teng­ingar á milli efnis kafl­anna eru mis­miklar og heild­ar­yf­ir­bragðið nokkuð laust í reip­unum.

Ríflega tveir ára­tugir eru síðan Huldar Breið­fjörð sendi frá sér fyrstu bók sína, ferða­sög­una Góðir Íslend­ingar (1998), þar sem hann lýsir ferða­lagi sínu hring­inn í kringum Ísland á Lapp­land­erjeppa á útmán­uðum. Huldar hélt síðan áfram að skrifa ferða­sögur: 2004 kom Múrinn í Kína og 2009 Fær­eyskur dansur, þar sem ferð­ast var ann­ars vegar um stærsta ríki ver­aldar og hins vegar um eitt það smæsta. Í fyrstu bók­inni, Góðum Íslend­ingum, fór saman löngun sögu­manns til að kynn­ast heima­landi sínu og um leið sjálfum sér í skemmti­legri frá­sögn af ytra og innra ferða­lagi. Í nýju bók Huldars, Sól­ar­hringli, er hann að hluta á svip­uðum slóðum og í Góðum Íslend­ingum; aftur er lýst ferða­lagi í kringum Ísland, en einnig ann­ars konar ferðum; til útlanda, um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár