Innflytjendur jákvæð innspýting í samfélögum

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor, fjall­aði um áskor­anir sem sam­fé­lög á vest­ur­löndum standa frammi fyrir.

„Til þess að bregð­ast við lægri fæð­ing­ar­tíðni og öldrun sam­fé­laga á Vest­ur­löndum er þrennt til ráða: Auka fæð­ing­ar­tíðni, auka vinnu­mark­aðs­þátt­töku ungra sem ald­inna og leyfa aðflutn­ing erlends vinnu­afls.“

Þetta kemur fram í ítar­legri grein Gylfa Zoega, hag­fræði­pró­fess­ors, sem birt­ist í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, sem ber heitið: Um börn og fóst­ur­börn.

Í grein­inni fjallar hann um lýð­fræði og alþjóða­stjórn­mál og meðal ann­ars hvernig inn­flytj­enda­mál hafa birst sem þrætu­epli á sviði stjórn­mála og einnig sem áhrifa­mikil breyta í hag­fræði.

„Í fyrsta lagi getur hið opin­bera reynt að hafa áhrif á ákvarð­anir um barn­eignir með því að nið­ur­greiða kostnað við barna­upp­eldi; greiða fyrir fæð­ing­ar­or­lof, nið­ur­greiða leik­skóla o.s.fr. Jafnvel mætti hugsa sér að umb­una þeim sem eign­ast börn með ein­greiðslum, eins konar verð­launum sam­fé­lags­ins fyrir að hafa komið með fleiri ein­stak­linga í heim­inn. Hver nýr þjóð­fé­lags­þegn mun svo síðar á ævinni sem hluti af hag­kerf­inu skapa verð­mæti og greiða skatta í rík­is­sjóð og standa undir kostn­aði við þá sem komnir eru á efri ár.

Í öðru lagi er unnt að auka vinnu­mark­aðs­þátt­töku með því að stytta skóla­göngu og hækka líf­eyr­is­aldur. Í Danmörku er líf­eyr­is­aldur tengdur við ævi­líkur og hækkar þá yfir tíma. Þetta kemur í veg fyrir að hærri ævi­líkur verði til þess að auka fram­færslu­byrði á þá sem eru á vinnu­mark­aði. Það væri æski­legt að svipað fyr­ir­komu­lag verði tekið upp hér á landi með form­legum hætti. Stytting skóla­göngu er hins vegar vara­sam­ari vegna þess að hún getur bitnað á mannauði fólks, minnkað fram­leiðni á hverju ári á vinnu­mark­aði þótt árunum á vinnu­mark­aði fjölgi. Það er alls óvíst hvort að stytt­ing fram­halds­skóla í þrjú ár hér á landi hafi verið gæfu­spor.

Í þriðja lagi er unnt að leyfa fleirum að flytja til lands­ins. Hér á landi ger­ist þetta nokkuð sjálf­krafa með búferla­flutn­ingum innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins (EES). Þannig má líta inn­flytj­endur sem „fóst­ur­börn“ sem komi í stað­inn fyrir þá sem ekki fædd­ust.

Rann­sóknir erlendis hafa sýnt að aðflutn­ingur erlends vinnu­afls einn nægi varla til þess að koma í veg fyrir hækkun á fram­færslu­byrði vinn­andi fólks á Vest­ur­löndum á næstu ára­tugum. Ein rann­sókn leiddi þó í ljós að aðflutn­ingur erlends vinnu­afls gæti komið í veg fyrir öldrun banda­rísku þjóð­ar­innar en það gerð­ist fyrst og fremst vegna þess að frjó­semi inn­flytj­enda væri meiri en frjó­semi inn­fæddra. En þessi áhrif eru minni ef inn­flytj­endur eru fyrst og fremst karlar, sem ekki ætti að koma á óvart, eins og reyndin hefur verið með inn­flytj­endur frá Mið-Aust­ur­löndum í Þýskla­landi og í Svíþjóð und­an­farin ár.

Nið­ur­staða fjölda rann­sókna hefur verið sú að til þess að stemma stigu við öldrun sam­fé­laga á Vest­ur­löndum þurfi allt þrennt að fylgj­ast að; hærri fæð­inga­tíðni, aukin vinnu­mark­aðs­þátt­taka og aðflutn­ingur erlends vinnu­afls, ekk­ert eitt þess­ara atriða nægi til þess að koma í veg fyrir öldrun sam­fé­laga í Evrópu. Einnig er með öllu óvíst hvað rík­is­valdið getur gert til þess að hafa áhrif á þessa þætti og hversu mikil þau áhrif yrðu,“ segir meðal ann­ars í grein Gylfa.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár