Hlutfall fyrstu kaupenda á höfuðborgarsvæðinu aldrei mælst hærra

Fyrstu kaup­endur hafa aldrei verið hlut­falls­lega fleiri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síðan mæl­ingar hófust fyrir 11 árum en á þriðja árs­fjórð­ungi 2019.

Á þriðja árs­fjórð­ungi 2019 var hlut­fall fyrstu kaup­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 28,2 pró­sent af heild­ar­fjölda kaup­samn­inga. Það hlut­fall hefur aldrei verið hærra frá því að byrjað var að mæla hlut­fall fyrstu kaup­enda árið 2008.

Til sam­an­burðar var hlut­fall fyrstu íbúð­ar­kaup­enda á sama árs­fjórð­ungi árið 2009 alls 5,8 pró­sent af öllum þingsamn­ingum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Þjóð­skrár.

Fyrstu kaupendur þriðjungar kaupenda á Vestfjörðum

Þrátt fyrir mikla hækkun á fast­eigna­verði síð­ast­lið­inn ára­tug, það hefur rúm­lega tvö­fald­ast í krónum talið, þá hefur hlut­fall nýrra kaup­enda ekki lækkað heldur þvert á móti auk­ist umtals­vert. Hlutfall fyrstu kaup­samn­inga hefur verið hærra í ár en á und­an­förnum árum.

Þó að hlut­fallið hafi aldrei verið hærra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá er hlut­fall fyrstu kaup­enda þó enn hærra í öðrum lands­hlutum. Hæst er hlut­fallið á Vest­fjörðum og Norð­ur­landi eystra eða alls 33 pró­sent.

Á sama tíma og hlut­fall fyrstu kaup­enda hefur aldrei verið hærra þá hefur dregið úr heild­ar­fjölda kaup­samn­inga um alls 4,3 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Alls voru 549 kaup­samn­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á þriðja árs­fjórð­ungi fyrstu kaup en fjölda kaup­samn­inga alls 1949.

Íbúðaverð hækkar nú mest á landsbyggðinni

Árs­hækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 2,4 pró­sent í ágúst síð­ast­liðnum, sam­kvæmt vísi­tölu paraðra íbúða­við­skipta. Megnið af þeirri hækkun átti sér stað í sept­em­ber til des­em­ber í fyrra, hækk­unin á fyrstu átta mán­uðum þessa árs er aðeins um 0,5 pró­sent. Árs­hækkun íbúða­verðs í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins nam 6,3 pró­sent og ann­ars staðar á lands­byggð­inni um 3 pró­sent.

Í ágúst var um 82 pró­sent allra íbúða­við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu undir ásettu verði sam­an­borið við 77 pró­sent í júlí, ef miðað er við verð í síð­ustu fast­eigna­aug­lýs­ingu áður en kaup­samn­ingur var und­ir­rit­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár