Dómsmálaráðuneytið athugar misræmi í tölum um nauðungarsölur

Mis­vísandi tölur hafa borist í svörum dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurnum á Alþingi.

Dóms­mála­ráðu­neytið skoðar nú í hverju mis­munur talna um nauð­ung­ar­sölur liggur, sam­kvæmt sam­tali Kjarnans við ráðu­neytið. Formáli máls­ins er sá að mís­vísandi tölur eru um nauð­ung­ar­sölur á Íslandi í svörum dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurnum á Alþingi.

Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar þing­manns, um nauð­ung­ar­söl­ur, fjár­nám og gjald­þrot hjá ein­stak­lingum árið 2018, sem birt var á vef Alþingis þann 31. maí síð­ast­lið­inn, segir að í heildin vor­u 2.704 nauð­ung­ar­söl­ur hjá ein­stak­lingum á tíma­bil­inu 2008 til 2017.

[adspot]Í svari dóms­mála­ráð­herra við sam­bæri­legri fyr­ir­spurn þann 15. ágúst 2018 kemur hins vegar fram að á sama tíma­bili voru 8846 nauð­ung­ar­söl­ur hjá ein­stak­ling­um.

Líkt og kom fram í fyrri umfjöllun Kjarnans hafa níu þing­menn óskað eftir skýrslu frá dóms­mála­ráð­herra um fram­kvæmd emb­ætta sýslu­manna á lögum um aðför og lögum um nauð­ung­ar­sölu frá efna­hags­hrun­inu árið 2008. Beiðni um skýrsl­una kemur í kjöl­far þeirra fjöl­mörgu ábend­inga sem komið hafa fram á und­an­förnum árum um mögu­lega mis­bresti í þeirri fram­kvæmd. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár