Þungunarrofsfrumvarpið samþykkt

40 af 63 þing­mönnum sam­þykktu þung­un­ar­rofs­frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra. Málið var umdeilt.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þung­un­ar­rofs­frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra var sam­þykkt með 40 atkvæðum gegn 18, en þrír sátu hjá, í atkvæða­greiðsl­unni. Tveir voru ekki við­staddir, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra, en hún er á Græn­landi, og Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Málið var umdeilt og klauf flokka. Þannig greiddi t.d. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, atkvæði gegn frum­varp­inu, einn ráð­herra í rík­is­stjórn. „Kven­nfrelsi geti ekki trompað hvert ein­asta annað álita­mál sem kem­ur upp í þess­um efn­um,“ sagði hann meðal ann­ars, og vís­aði til þess að málið væri marg­slungið og flókið.

Málið sem nú er orðið að lögum þýðir að þung­un­ar­rof er heim­ilt fram á 22. viku með­göngu, óháð því hvaða ástæður liggja að baki.

Sam­kvæmt gömlu lög­unum var það heim­ilt til loka 16. viku og heim­ild var til þess eftir 16 vikur við vissar aðstæð­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár