Kólnun í íslenskri ferðaþjónustu en hún er áfram í burðarhlutverki

Ef fram­heldur sem horfir mun íslensk ferða­þjón­usta ekki draga vagn­inn í hag­vexti á þessu ári, eins og hún hefur gert á und­an­förnum árum. Gjör­breytt staða er nú uppi, eftir fall WOW air og kólnun í hag­kerf­inu.

Sæta­fram­boð með flugi til Íslands dregst saman um 28 pró­sent, eftir fall WOW air, og þrátt fyrir kólnun og sam­drátt í ferða­þjón­ustu, þá munu hót­el­her­bergjum fjölga um átta pró­sent á þessu ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri skýrslu Íslands­banka um stöð­una í íslenskri ferða­þjón­ustu.

Eftir mik­inn upp­gang á und­an­förnu árum, þar sem fjöldi ferða­manna á ári fór úr um 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir í fyrra, er nú komin upp allt önnur staða.

Þrátt fyrir það, er gert ráð fyrir að ferða­þjón­ustan verði áfram í burð­ar­hlut­verki og standi undir um 36 pró­sentum af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­búss­ins, en hún hefur verið í kringum 43 pró­sent.

Áætlað er að hót­el­her­bergjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgi um átta pró­sent á árinu þrátt fyrir fyr­ir­hug­aða fækkun ferða­manna, að því er segir í skýrsl­unni. Nýt­ing­ar­hlut­fall hjá hót­elum mun því fara versn­andi.

Á síð­asta ári var fjölgun ferða­manna, frá því árið á undan, að miklu leyti borin uppi af Banda­ríkja­mönnum. Þar mun­aði mikið um flug WOW air milli Íslands og Banda­ríkj­anna, en áfanga­stöðum í flugi milli Íslands og Banda­ríkj­anna hefur fjölgað mikið á und­an­förnum árum.

Ferða­mönnum fjölg­aði um 121 þús­und í fyrra miðað við 2017, en sam­tals var fjölgun Banda­ríkja­manna 118 þús­und. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár