Uppsveifla án fordæma en nú er komið að kólnun

Gylfi Zoega pró­fessor í hag­fræði fjallar um stöðu mála í hag­kerf­inu og kjara­við­ræðum í grein í Vís­bend­ingu, sem kom til áskrif­enda í dag.

Sú upp­sveifla sem byrj­aði sum­arið 2010 hefur fært þjóð­inni betri lífs­kjör en nokkru sinni áður. Verg lands­fram­leiðsla á mann hefur frá árinu 2016 verið hærri en hún náði árið 2007 fyrir fjár­mála­á­fallið, en nú er tekið að kólna.

Þetta er meðal þess sem Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, fjallar um í Vís­bend­ingu, sem kom til áskrif­enda í dag.

Í ítar­legri grein, sem ber yfir­skrift­ina Kólnun og kjara­samn­ingar, segir hann komin séu fram skýr merki um að tekið sé að kólna í hag­kerf­inu. „Á þessu ári er búist við 2,4% fækkun ferða­manna bæði vegna minna sæta­fram­boðs og vís­bend­inga um minni eft­ir­spurn erlendis eftir ferðum til Íslands. Þannig er spáð sam­drætti í útfluttri eft­ir­spurn í fyrsta sinn frá því árið 2008. Minni útflutn­ings­eft­ir­spurn mun lækka hag­vöxt á árinu en Seðla­bank­inn spáir því að hag­vöxtur minnki úr 4,3% árið 2018 í 1,8% árið 2019. Vís­bend­ingar eru um enn meiri fækkun ferðamanan en þeim fækk­aði um 5,8% í jan­úar í sam­an­burði við jan­úar á síð­asta ári skv. nýjum tölum Isavia. Minni hag­vöxtur hér á landi hefur áhrif á vinnu­markað. Skráð atvinnu­leysi fer vax­andi. Um þriðj­ungur fyr­ir­tækja vilja fækka starfs­fólki meira og meira en helm­ingi færri fyr­ir­tæki telja sig búa við skort á starfs­fólki en árið 2017,“ segir meðal ann­ars í grein­inni.

Gylfi varar við því að hækka laun of skarpt í ljósi þeirra stöðu sem uppi er um þessar mundir. „Í ljósi þess að mik­ill kostn­aður inn­lendra fyr­ir­tækja og hátt inn­lent verð­lag er að valda umsnún­ingi í útflutn­ings­greinum og minni hag­vexti á næstu árum má leiða líkum að því að launa­hækk­anir myndu leiða til ann­ars hvors: sam­dráttar og minni atvinnu, eða hærra verð­lags og lægra gengis, að öðru óbreyttu. Það sem gæti breyst og rétt­lætt slíkar launa­hækk­anir væri mik­ill bati í við­skipta­kjörum, stór­aukin fram­leiðni eða auk­inn áhugi á íslenskum útflutn­ingi óháð verði hans. En fátt bendir til þess að þetta muni ger­ast,“ segir Gylfi.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár