Furða sig á skýrslu um hvalveiðar við Ísland

For­sæt­is­ráð­herra segir skýrslu um hval­veiðar við Ísland sér­kenni­legt útspil. Stjórn Hvala­skoð­un­ar­sam­taka Íslands gagn­rýnir skýrsl­una harð­lega.

Stórn Hvala­skoð­un­ar­sam­taka Íslands furðar sig á skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um þjóð­hags­lega hag­kvæmni hval­veiða við Ísland.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn­inni, og eru gerðar miklar efn­is­legar athuga­semdir við það sem fram kemur í henni. Meðal ann­ars sé lítið gert úr mik­il­vægi þess að nýta hval við Ísland í hvala­skoðun. Full­yrð­ingar um rekstur hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tækja stand­ist ekki.

Þá segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, í sam­tali við RÚV, að skýrsla Hag­fræði­stofn­unar sé um margt sér­kenni­legt inn­legg í umræð­una, og gagn­rýnir sér­stak­lega tal um nátt­úru­vernd­ar­sam­tök í skýrsl­unni. „Þeim er líkt við hryðju­verka­sam­tök og rætt um að þurfi að sér­stak­lega þurfi að setja lög til þess að vernda Ísland fyrir slíkum sam­tökum. Mér finnst það mjög sér­kenni­legt útspil frá Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands í garð þeirra nátt­úru­vernd­ar­sam­taka sem hafa verið að berj­ast fyrir sínum mál­stað í hval­veiðum og bara ekki til að hjálpa umræð­unni,“ sagði Katrín í sam­tali við RÚV í kvöld.

Í til­kynn­ingu stjórnar Hvala­skoð­un­ar­sam­taka Íslands segir meðal ann­ars að full­yrð­ingar séu rangar. Orðrétt segir í til­kynn­ing­unni.

„Í skýrsl­unni er því haldið fram að með því að auka hval­veiðar þannig að hrefnum og lang­reyðum sé fækkað um 40% frá því sem nú er megi skapa auknar útflutn­ings­tekjur á sjáv­ar­af­urðum upp á annan tug millj­arða króna árlega. Vís­inda­menn Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar hafna þessu og þar með eru meg­in­for­sendur fyrir nið­ur­stöðu skýrslu­höf­undar brostnar.

Í skýrsl­unni er gert lítið úr mik­il­vægi á nýt­ingu á hval með hvala­skoðun en 346.591 far­þegi fór í slíkar ferðir á árinu 2018 sem jafn­gildir heildar­í­búa­fjölda Íslands. Full­yrð­ingar um fjölda báta, laun starfs­manna og fleira stand­ast ekki en lagt til að sér­stök lög verði sett á starf­sem­ina vegna þeirrar trufl­unar sem hún valdi hvölum við fæðu­öflun. Aðild­ar­fé­lög Hvala­skoð­un­ar­sam­taka Íslands fylgja leið­bein­andi reglum um hvala­skoðun og það er með ólík­indum að Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands líti á það sem hlut­verk sitt að leggja slíkt til um leið og hvatt er til auk­inna hval­veiða einkum í því skyni að auka fisk­veiðar sem ekki stenst vís­inda­lega skoðun. Gefið er sterk­lega í skyn að hefja beri veiðar á hnúfu­bak sem er ein vin­sælasta og ein mik­il­væg­asta teg­undin í hvala­skoð­un­inni. Engin til­raun er gerð í skýrsl­unni til að útskýra hvernig stór­auknar hval­veiðar geta verið efna­hags­lega sjálf­bærar né hvaða hlið­ar­á­hrif þær kynnu að hafa á aðrar útflutn­ings­greinar þjóð­ar­innar. Heldur ekki hvaða mark­aður væri fyrir þær við­bót­ar­af­urðir. Við gagna­öflun Hag­fræði­stofn­unar varð­andi hlut ferða­þjón­ust­unnar var ekki haft sam­band við Hvala­skoð­un­ar­sam­tök Íslands eða aðild­ar­fé­lög okkar, ekki heldur Samtök ferða­þjón­ust­unnar né Íslands­stofu. Þetta hljóta að telj­ast for­kast­an­leg vinnu­brögð af hálfu Hag­fræði­stofn­unar.

Skýrsla Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands getur, að mati stjórnar Hvala­skoð­un­ar­sam­taka Íslands, ekki nýst til ákvarð­ana­töku um áfram­hald­andi hval­veiðar við Ísland. Skýrslan svarar ekki því sem henni er ætlað að svara þ.e. hvort hval­veiðar við Ísland séu og geti verið þjóð­hags­lega hag­kvæmar. Við­ur­kennt er að veið­arnar hafi ekki verið arð­bærar hingað til frá því að þær hófust árið 2009. For­sendur um þjóð­hags­legan ávinn­ing af auknum hval­veiðum eru rangar eins og stað­fest er af sér­fræð­ingum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar. Það verður ekki betur séð en að skýrslu­höf­undur hafi lagt af stað með fyr­ir­fram gefna nið­ur­stöðu og kapp­kostað að tína einkum til það sem þjón­aði þeirri nið­ur­stöðu. Það hefur hins vegar mis­tek­ist og er útkoman illa rök­studd áróð­urs­skýrsla fyrir áfram­hald­andi veiðum sem tekur ekki raun­veru­legt til­lit til hvala­skoð­unar, ferða­þjón­ustu að öðru leyti, alþjóð­legra hags­muna Íslands né dýra­vel­ferð­ar­sjón­ar­miða.

Þvi er það krafa Hvala­skoð­un­ara­m­taka Íslands að raun­veru­legt hags­muna­mat fari fram þar sem fullt til­lit sé tekið til hags­muna hvala­skoð­unar, ferða­þjón­ustu og ann­arra útflutn­ings­greina áður en nokkur ákvörðun er tekin um frek­ari hval­veiðar við Ísland.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár