Sigmundur Davíð: Ríkisstjórnin slegið 100 ára met í útþenslu báknsins

Formaður Mið­flokks­ins gagn­rýndi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna harð­lega í ræðu sinni á Alþingi í gær.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, gagn­rýndi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna harð­lega í ræðu sinni á Alþingi í gær, eftir stefnu­ræðu Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Hann beindi orðum sínum ekki síst að Fram­sókn­ar­flokknum og sak­aði flokk­inn um að standa ekki við lof­orð og flýja stefnu sína í stórum málum. Sagðist hann gátt­aður á flokknum og hvernig hann hefði haldið á málum, meðal ann­ars þegar kæmi að slæmri stöðu bænda víða um landið. „Þrátt fyr­ir að hafa haft ýms­ar áhyggj­ur af þess­ari rík­is­stjórn trúði ég því þó að hún væri skárri kost­ur en sum­ir aðrir fyr­ir bænd­ur og byggðir lands­ins. Það er öðru nær,“ sagði Sig­mund­ur Davíð.

Þá sagði hann rík­is­stjórn­ar­flokk­ana hafa sýnt það að rík­is­stjórnin snérist ekki um neitt annað en hana sjálfa. Hún væri stefnu­laus og stæði ekki fyrir eitt né neitt. „Rík­is­stjórn sem hef­ur aðeins starfað í níu mán­uði hef­ur nú, með nýju fjár­laga­frum­varpi, á 100 ára af­mæli full­veld­is­ins, slegið 100 ára met í útþenslu bákns­ins,“ sagði Sig­mund­ur Davíð, og sak­aði meða ann­ars Sjálf­stæð­is­flokk­inn um að vinna þvert á eigin stefnu, ekki síst þegar kæmi að heil­brigð­is­málum.

Rík­is­stjórnin væri að breyta heil­brigð­is­kerf­inu eftir Marxískum áherslum, og brjóta upp kerfi sem hefði marg­sinnis verið valið eitt það besta í heimi af sér­fræð­ingum. „Á sama tíma og lækna­ritið Lancet út­nefndi ís­lenska heil­brigð­is­þjón­ustu þá bestu í heimi er heil­brigð­is­ráð­herr­ann í óða önn við að skipta kerf­inu út fyr­ir marxí­sku leið­ina í heil­brigð­is­mál­um. Það er kald­hæðni ör­lag­anna að inn­leið­ing þessa ný-sós­íal­íska kerf­is skuli eiga sér stað und­ir vernd­ar­væng Sjálf­stæðis­flokks­ins,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár