Katrín: Við eigum að sækja fram með því að rækta hugvitið

For­sæt­is­ráð­herra segir fjöl­breyti­leik­ann þurfa að þríf­ast í íslensku sam­fé­lagi. Hún flutti stefnu­ræðu sína í kvöld.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í stefn­urðu sinni í dag, að Íslend­ingar ættu að sækja fram með hug­vitið að vopni. Hún sagði fram­tíð Íslands bjarta með ungu kyn­slóð­ina í far­ar­broddi. „Við eigum að byggja á þeirri fjöl­breytni og þeim gildum lýð­ræðis og mann­rétt­inda sem við höfum haft í heiðri í þess­ari sögu allri. Og við eigum að sækja fram, sækja fram með því að rækta hug­vitið, skapa nýja þekk­ingu og tryggja að hér verði sam­heldið, fjöl­breytt og kær­leiks­ríkt sam­fé­lag þar sem við lifum fram í sátt við umhverfið og tryggjum sterkan efna­hag og jöfnuð,“ sagði Katrín.

Loftslagsmál í fyrirrúmi

Hún lagði enn fremur áherslu á það í ræðu sinni að rík­is­stjórn hennar hefði lofts­lags­málin í far­ar­broddi. Metn­að­ar­full áætlun væri komin fram sem yrði fylgt eftir af festu. „Rík­is­stjórnin kynnti í fyrra­dag fyrstu áfang­ana í metn­að­ar­fullri aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Eins og kunn­ugt er hafa orðið straum­hvörf í fjár­veit­ingum til umhverf­is­mála. Aðgerða­á­ætl­unin mun útfæra hvernig þessir fjár­munir verða nýttir. Þar mun land­græðsla, skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis verða fyr­ir­ferð­ar­mikil. Annar stór áfangi eru orku­skipti í sam­göngum þar sem stór­á­tak verður í upp­bygg­ingu fyrir raf­bíla og raf­hjól og sett niður tíma­á­ætlun um að ekki verði fluttir inn nýir bílar sem ganga fyrir bens­íni eða olíu eftir 2030. Við Íslend­ingar höfum sett okkur það mark­mið að verða kolefn­is­hlut­laus ekki seinna en árið 2040 og þessir fyrstu áfangar sýna gjörla að okkur er full alvara með því verk­efni. Ég sé fyrir mér að umhverfis- og lofts­lags­mál verði eitt af flagg­skipum okkar utan­rík­is­stefnu, rétt eins og kynja­jafn­rétt­is­málin eru þegar orðin, og Ísland, þó að við séum ekki stór, geti þar með haft áhrif til góðs í alþjóða­sam­fé­lag­inu,“ sagði Katrín.

Lægri vextir og betri kjör

Í ræð­unni ræddi hún enn fremur um stöðu banka­kerf­is­ins, og sagði að vinna væri nú í gangi við gerð Hvít­bókar um banka­kerfið, þar sem þyrið fjallað um ýmsar hliðar þess. Hún sagði end­ur­skoðun á fjár­mála­kerf­inu þurfa að mið­ast við það að kerfið þjóni almenn­ingi með hag­kvæmum hætti. „Hvítbók um fjár­mála­kerfið kemur út í haust þar sem greint verður hvað hefur vel verið gert í þeim málum á und­an­förnum árum og hvað má betur gera. Hluti af því verk­efni er að greina kostn­að­inn í íslenska fjár­mála­kerf­inu en vís­bend­ingar eru um að hann sé meiri en til dæmis ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Mark­miðið er að hægt verði að lækka þann kostnað þannig að almenn­ingur fái notið lægri vaxta og betri kjara,“ sagði Katrín.

280 stafir á Twitter

Hún gerði enn fremur traust á stjórn­málum að umtals­efni, og sagði það hafa hrapað niður við hrunið, og ólík­legt væri að það kæmi alfarið til baka aftur. Sam­fé­lagið hefði breyst mikið frá hruni, og þá ekki síst sam­skipti fólks. „Ljóst er að traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu dvín­aði skarpt eftir hrun. Þetta traust hefur farið heldur vax­andi án þess að jafn­ast á við það sem áður var. Líklega verður traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu aldrei jafn mikið og það var skömmu fyrir hrun. Sam­fé­lagið hefur breyst, upp­lýs­inga­streymi er með allt öðrum hætti og sam­fé­lags­miðlar hafa breytt stjórn­mála­um­ræðu með rót­tækum hætti. Við sem munum þá tíð þegar mestu skipti að kom­ast í kvöld­frétt­irnar með það sem sagt var um morg­un­inn, finnst þetta vera bylt­ing þar sem fréttir morg­uns­ins eru oft algjör­lega gleymdar um kvöldið. Þegar slík umskipti verða á miðlaum­hverf­inu má rifja það upp að því hefur verið haldið fram að mið­ill­inn sníði skila­boðin að sér. Við sjáum þetta víða í nútím­anum, jafn­vel á sviði alþjóða­sam­skipta, þar sem valda­mesti maður heims, sjálfur Banda­ríkja­for­seti, setur fram stefnu gagn­vart öðrum ríkjum með 280 bók­stöfum á twitter. Eins og við þekkjum úr sög­unni þá geta slík umskipti breytt miklu um valda­jafn­vægið í sam­fé­lag­inu,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár