Innflytjendum á vinnumarkaði hefur fjölgað um einn Mosfellsbæ frá 2017

Fjöldi inn­flytj­enda sem starfa á Íslandi hefur tvö­fald­ast frá byrjun árs 2015 og er meiri en allir íbúar Kópavogs. Án inn­flutts vinnu­afls væri engin leið að manna þau mörg þús­und störf sem verða til hér árlega, og stuðla að end­ur­teknum hag­vexti.

Nær öll ný störf sem verða til á Íslandi eru mönnum með innfluttu vinnuafli. Það á sérstaklega við í ferðaþjónustu og byggingariðnaði.
Nær öll ný störf sem verða til á Íslandi eru mönnum með inn­fluttu vinnu­afli. Það á sér­stak­lega við í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði. Mynd: Bára Huld Beck

Þeir inn­flytj­endur sem starfa á Íslandi voru 38.765 tals­ins um mitt þetta ár, eða 18,6 pró­sent starf­andi fólks. Það þýðir að fleiri inn­flytj­endur eru starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði en fjöldi þeirra sem búa í Kópavogi, næst fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lags lands­ins, þar sem 35.966 manns bjuggu í upp­hafi þessa árs.

Fjöldi þeirra er nú rúm­lega fjórum sinnum það sem hann var í upp­hafi árs 2005 og tvö­faldur það sem hann var í byrjun árs 2015, fyrir þremur og hálfu ári.

Frá byrjun árs 2017 hefur inn­flytj­endum á íslenskum vinnu­mark­aði fjölgað um 11.544, rúm­lega íbúa­fjölda Mos­fells­bæjar, og á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 fjölg­aði þeim um 5.310, rúm­lega 700 fleiri en búa á Sel­tjarn­ar­nesi. Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um starf­andi fólk á Íslandi.

Í lykilhlutverki í góðærinu

Til að setja þennan fjölda inn­flytj­enda sem starfa á Íslandi í annað sam­hengi má benda á að að atvinnu­leysi hér­lendis mæld­ist 2,5 pró­sent í júlí. Það þýðir að um 5.300 manns voru án vinnu og/eða í atvinnu­leit í þeim mán­uði.

Því er ljóst að ef ekki væri fyrir þann mikla straum erlends vinnu­afls sem komið hefur til lands­ins á und­an­förnum árum væri engin mögu­leiki til staðar til að manna þau nokkur þús­und nýju störf sem verða til á hverju ári á Íslandi, flest í tengslum við ferða­þjón­ustu.

Inn­flytj­end­urnir hafa því leikið lyk­il­hlut­verk í þeim mikla hag­vexti sem hefur mælst hér­lendis á hverju ári frá árinu 2011. Mestur var 2016 þegar hann var 7,4 pró­sent. Hag­vöxtur í fyrra mæld­ist 3,6 pró­sent og nýbirt þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans gerir ráð fyrir því að hann verði sá sami í ár.

Öll fjölgun vegna útlendinga

Kjarninn greindi frá því í lok júlí að öll fjölgun lands­manna á fyrri hluta árs­ins 2018, og vel rúm­lega það, hefði mátt rekja til þess að erlendir rík­is­borg­ara fluttu hingað til lands. Þeir eru nú orðnir 41.280 tals­ins og hefur fjölgað um 3.328 frá ára­mót­um, eða um 8,7 pró­sent.

Alls fjölg­aði íbúum á Íslandi um 2.360 á tíma­bil­inu og því ljóst að lands­mönnum hefði fækkað ef ekki hefði verið fyrir aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nes­bæ. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár