Ferðamenn greiddu milljarð fyrir heilbrigðisþjónustu

Heild­ar­greiðslur erlendra ferða­manna, sem ekki eru sjúkra­tryggðir hér, til heil­brigð­is­stofn­ana á árinu 2017 var rúmur millj­arður króna og hefur á einu ári hækkað um rúmar 200 millj­ónir. Fullt verð fyrir komu á bráða­deild er meira en 60 þús­und krónur.

Heild­ar­greiðslur erlendra ferða­manna til íslenskra heil­brigð­is­stofn­ana á árinu 2017 var rúmur millj­arður króna og hefur á einu ári hækkað um meira en 200 millj­ónir. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þeir sem ekki eru sjúkra­tryggðir á Íslandi eiga rétt á neyð­ar­að­stoð hjá hinu opin­bera heil­brigð­is­kerfi hér á landi. Fyrir aðstoð­ina greiða þeir fullt gjald.

Lang­hæstar greiðslur ferða­manna í heil­brigð­is­kerf­inu renna til Land­spít­al­ans eða tæp­lega 871 milljón krónur. Þar á eftir kemur Sjúkra­húsið á Akureyri en ferða­menn greiddu tæp­lega 100 millj­ónir í sjúkra­kostnað þar í fyrra. Aðrar heil­brigð­is­stofn­anir veita ekki jafn mikla þjón­ustu til erlendra ferða­manna, en þó þannig að það hleypur á millj­ónum króna sem inn­heimtar eru. Engar tölur feng­ust frá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands, en þar er almennt tölu­vert um ferða­menn á hverjum tíma.

Land­spít­al­inn hefur á síð­ustu 10 árum inn­heimt tæp­lega 4,5 millj­arða króna í greiðslur fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu til erlendra ferða­manna sem ekki eru sjúkra­tryggðir hér á landi.

Heil­brigð­is­stofn­anir sjá yfir­leitt sjálfar um inn­heimtu sjúkra­kostn­aðar. Sem dæmi um ferli inn­heimtu er hjá Land­spít­al­anum lögð mikil áhersla á stað­greiðslu komu­gjalda á bráða-, dag- og göngu­deildir spít­al­ans. Hlutfall stað­greiddra krafna er nokkuð mis­jafnt eftir deildum, en að meðal tali er það 80 pró­sent. Ef ekki er stað­greitt er krafa stofnuð í net­banka og greiðslu­seð­ill sendur í pósti. Áminn­ing­ar­bréf er sent 10 dögum eftir eindaga, sem er 30 dagar, og ítrek­un­ar­bréf 45 dögum eftir eindaga. Ef ekki er greitt innan þess tíma er krafan send í lög­fræði­inn­heimtu.

Flestir ferðamenn staðgreiða kostnaðinn

Meiri­hluti þeirra erlendu ferða­manna sem ekki eru með gildar sjúkra­trygg­ingar og nýta sér heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi stað­greiða þjón­ust­una miðað við verð­skrá í reglu­gerð um heil­brigð­is­þjón­ustu við sem ekki eru sjúkra­tryggðir á Íslandi.

Í verð­skránni er til dæmis kveðið á um að koma á heilsu­gæslu­stöð á dag­vinnu­tíma kosti 9.600 krónur, en utan dag­vinnu­tíma kosti það 14.200 krónur. Koma á slysa­deild og bráða­mót­töku kostar 63.400 krónur, auk mögu­legra við­bót­ar­gjalda, líkt og fyrir til dæmis túlka­þjón­ustu, lækn­is­vott­orð eða geisla- og mynd­grein­ingar. Fyrir sjúka­flutn­inga skal sjúk­lingur greiða gjald til rekstr­ar­að­ila sjúkra­flutn­inga 42.600 krónur fyrir hverja byrj­aða klukku­stund, auk gjalds til eig­anda sjúkra­bif­reiða, 2.700 krónur á hvern ekinn kíló­metra til og með 65 kíló­metrum, að lág­marki 15 kíló­metra, sem gera því að lág­marki 40.500 krónur og þá sam­tals 83.100 krónur. Síðan 620 krónur á hvern ekinn kíló­metra umfram 65 kíló­metra.

Útgjöld Sjúkra­trygg­inga Íslands vegna veittrar heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir ósjúkra­tryggða fást að miklu leyti end­ur­greidd vegna EES-samn­ings­ins. Heild­ar­kostn­aður SÍ er því ein­ungis vegna Norð­ur­landa­samn­ings og Lúx­em­borg­ar­samn­ings, en í þeim báðum er kveðið á um gagn­kvæmt afsal end­ur­greiðslna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár