Verðbólga komin yfir verðbólgumarkmið í fyrsta skipti í fjögur ár

Nýjar verð­bólgu­tölur sýna að verð­bólgan er nú farin að skríða upp á við. En hvað þýðir það fyrir næstu miss­eri? Vandi er um slíkt að spá.

Eftir fjög­urra mán­aða tíma, þar sem verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið­inu, er hún nú farin að skríða upp á við á nýjan leik. Tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 2,8 pró­sent, sem er það mesta í fjögur ár.

Í umfjöllun Hagstofu Íslands kemur fram að verð­bólgan án hús­næðis er 388,1 stig og hækkar um 0,36% frá febr­úar 2018, en með hús­næð­inu er hækk­unin 0,56 pró­sent. Hækkun hús­næð­is­verðs er því enn að þrýsta verð­bólg­unni upp á við.

Þá hafa enda­lok á útsölum, ekki síst á fatn­aði og skóm, áhrif til hækk­unar á verð­bólg­una. Hækkaði verð á fötum og skóm um 4,4% (áhrif á vísi­töl­una 0,15%). Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði (reiknuð húsa­leiga) hækkar um 1,4% (0,29%).

Samkvæmt spá grein­enda Arion banka er ekki gert ráð fyrir að verð­bólgan sé að fara úr bönd­unum, eða aukast mikið á næstu miss­erum. „Útlit er fyrir að 12 mán­aða taktur verð­bólg­unnar lækki á kom­andi mán­uðum og fari í 2,5% í apríl. Við teljum lík­legt að árstakt­ur­inn hald­ist í kringum verð­bólgu­mark­mið fram á sumar. Þetta er í ágætu sam­ræmi við okkar hag­spá en þar er gert ráð fyrir að verð­bólgan verði í kringum mark­mið fram á seinni hluta þessa árs og taki þá að stíga. Einnig er mögu­legt að mæl­ingar Hagstofu á fast­eigna­verði flökti eitt­hvað næstu mán­uði þannig að eftir miklar verð­hækk­anir komi fram verð­lækk­anir í mæl­ingu, og þá sér­stak­lega á lands­byggð­inni þar sem við­skipti með fast­eignir þar eru strjál­ari. Gögnin benda til tals­vert meira flökts á þeirri und­ir­vísi­tölu á milli mán­aða en á verði fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka.

Þá er á það bent að samn­ingar Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með ýmsar vöru taki brátt gildi, og sam­kvæmt þeim muni tollar á mörgum vörum falla niður og skapa þannig mögu­leika á lægra vöru­verði. „Samn­ingar Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að­ar­vörur taka gildi 1. maí 2018 og falla niður tollar á yfir 340 vöru­núm­erum, þ.á.m. súkkulaði, pizzum, pasta, bök­un­ar­vörum, villi­bráð, frönskum kart­öflum og úti­rækt­uðu græn­meti,“ segir í umfjöllun Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár